Fréttablaðið - 02.03.2011, Qupperneq 25
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
M
exíkóar eru sér-
lega skemmtilegir
og þægilegir í
umgengni,“ segir
Steingrímur Jónsson tölvunar-
fræðingur eftir að hafa dvalið í
Mexíkó frá því í september á síð-
asta ári fram í janúar. Sem dæmi
um liðlegheit innfæddra nefnir
hann að þegar strætisvagnarnir
eru svo troðfullir að fólk kemst
bara inn að aftan þá láta þeir far-
gjaldið ganga fram eftir vagnin-
um og skiptimyntin gengur sömu
leið til baka.
Steingrímur er nemandi í
alþjóðaviðskiptum við HR og var
í námi í borginni Guadalajara í
Mexíkó þar sem íbúar eru um
fjórar og hálf milljón. Hann segir
götulífið þar hávaðasamt. „Rusla-
karlarnir eru með kúabjöllur sem
þeir hringja í gríð og erg og þá
hleypur fólk út með ruslið ef það
hefur gleymt því kvöldið áður.
Karlinn sem labbar um og brýnir
hnífa er með sérstaka flautu og
aðrir þeyta lúðra. Svo er gríðar-
leg umferð og bílflautur gjalla.“
Mexíkóar eru margir og vinnu-
aflið ódýrt, að sögn Steingríms.
„Varla er til götuhorn þar sem
ekki eru karlar að þvo framrúður
farartækja og víða stendur fólk
tilbúið að hjálpa bílstjórum að
bakka út af stæðum,“ segir hann.
Veðráttunni lýsir Steingrímur
þannig að í byrjun september
hafi komið helliskúrir svo göt-
urnar hafi breyst í stórfljót um
stund á milli þess sem sólin
skein. „En frá því í október þar
til við komum heim rigndi aldrei,
heldur var alltaf 27 stiga hiti,
sól og hægur vindur. Afskaplega
notalegt,“ lýsir hann.
Eitt af því sem Steingrímur
kynntist var lucha-libre,
mexíkósk fjölbragðaglíma, sem
hann segir gríðarlega vinsæla.
Hann fór tvisvar að horfa á hana
og varð sér úti um grímu sem til-
heyrir íþróttinni.
gun@frettabladid.is
Þótt hávaði sé áberandi í Mexíkó eru íbúarnir afslappaðir að mati Steingríms Jónssonar tölvunarfræðings.
Steingrímur með tveimur Mexíkóum sem stunda nám við HR. Öðrum þeirra lánaði hann grímuna sína. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ný námskeið í kerrupúli hefjast 7. mars. Þar geta
nýbakaðar mæður í fæðingarorlofi komið með barnið
í vagni og fengið markvissa þjálfun í fallegu umhverfi.
Hist er við innganginn á Húsdýragarðinum. www.
kerrupul.is
Ruslakarlar
með kúabjöllur
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
Heildsöludreifing • Skemmuvegur 10 • Sími 567 1330 • www.hringas.is
• Vörn gegn frosti og tæringu
• Hentugt fyrir alla málma
• Eykur endingartíma
• Kemur í veg fyrir gerlamengun
• Vörn allt niður að -30°C
• Engin eiturefni – umhverfisvænt
• Léttir dælingu
fyrir hita og kælikerfi
frostlögur
Umhverfisvænn