Fréttablaðið - 02.03.2011, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 2. mars 2011 3
Fjöllin í kringum austurrísku
borgina Innsbruck mynda full-
komna umgjörð um reynslu-
akstur hins nýja Chevrolet Cap-
tiva, sportjeppa með sídrifi. Þar
var enda bæði hægt að prófa kraft
og þægindi bílsins á langferð um
hraðbrautir og auk þess láta reyna
á bílinn í torfærum og snjó.
Captiva hefur fengið sport-
legra og frísklegra útlit. Mestu
breytingarnar á bílnum er þó
að finna undir húddinu. Captiva
verður framleiddur með fjórum
vélum, en hingað til lands verður
aðeins flutt 2,2-turbo dísilvélin
með 184 hestöflum.
Aksturseiginleikar bílsins eru
mjög ánægjulegir. Hann liggur
vel og sjálfskiptingin er mjúk.
Krafturinn er nægur þó hröð-
unin yfir 80 km sé fremur seig.
Akstursupplifunin er ljóm-
andi og á sér stoð að sumu leyti
í fallega hannaðri innréttingu
bílsins. Má segja að fólk fái
mikið fyrir lítið því mælaborðið
er næstum ríkmannlegt en í
því er bakkmyndavél og snerti-
skjár sem hægt er að tengja við
Garmin-GPS.
Tvö þúsund metrum yfir sjáv-
armáli hafði verið útbúið svæði
þar sem blaðamenn fengu að
prófa búnað bílsins á sérstakri
snjó- og ísilagðri braut. Þar var
hægt að prófa skriðvörnina í ísi-
lögðum beygjum og stóðst bíllinn
þá raun með sóma. Einnig fengu
menn að prófa hvernig hin nýja
tækni, brekkuhjálp og skriðhem-
ill, virkaði vel, en hún auðveldar
ökumönnum verulega að taka af
stað í miðri brekku og að fikra
sig niður brattar hæðir.
Chevrolet Captiva er sjö sæta
bíll en vel er gengið frá öftustu
sætunum svo þau falla vel ofan í
gólfið þegar ekki er verið að nota
þau. Þannig getur farangurshólf
bílsins verið allt frá 97 upp í
1.565 lítrar.
Á heildina var reynslan af
Captiva ánægjuleg. Eini gallinn
er beinskiptingin, sem var frem-
ur stíf og langt á milli gíra. Það
kemur þó ekki að sök enda verð-
ur aðeins sjálfskipting í boði hér,
en hinn nýi bíll er væntanlegur
til Íslands í lok maí.
solveig@frettabladid.is
Stællegur sportjeppi
Stórt ár er fram undan hjá Chevrolet. Sjö nýir bílar verða kynntir í tilefni af 100 ára afmæli fyrirtækisins.
Fyrstur var Captiva sem blaðamenn frá allri Evrópu fengu að kynnast í austurrísku Ölpunum í febrúar.
Captiva er sjö manna bíll en lítið fer fyrir öftustu sætunum
þegar þau hafa verið felld niður.
Mælaborðið er fagurlega hannað.
Austurrísku Alparnir mynduðu fallega umgjörð um reynsluakstur Chevrolet Captiva og juku aðeins á akstursánægjuna.
REYNSLUAKSTUR
Chevrolet Captiva
Vél: 2,2 l dísil
Skipting: sjálfskipting
hestöfl: 184
Tog: 400 nm
Eyðsla, bl. akstur: 7,7 l/100 km
0-100 km/klst: 10,1 sek.
Koltvísýringur: 203 g/km
Farangursrými: 97/769/1577 l
Verð: 5.990.000 krónur
Plús: Eyðslugrannur miðað við
sportjeppa. Lætur vel að stjórn
bæði á vegum úti og í torfærum.
Mínus: Beinskiptingin er hálf
leiðinleg. Kemur þó ekki að sök
því bíllinn verður ekki fáanlegur
með henni hér á landi.
KAUPMANNAHÖFN - LA VILLA
Guesthouse á besta stað í bænum.Stúdíoíbúðir
og herbergi. Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk. GSM. 0045 2848 8905
Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is
BÍTIÐ
MEÐ HEIMI OG KOLLU
ALLA VIRKA DAGA KL. 6.50