Fréttablaðið - 02.03.2011, Page 35
F R É T T I R
MARKAÐURINN 9MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2011 5
Íslenski markaðsdagurinn verður
haldinn á föstudaginn, en í ár eru
sannkölluð tímamót hjá markaðs-
fólki og ÍMARK. Félagið fagnar 25
ára afmæli sínu en um leið verð-
ur Lúðurinn, íslensku auglýsinga-
verðlaunin, afhentur í 25. skipti.
Gunnar B. Sigurgeirsson, for-
maður ÍMARK, segir í samtali við
Markaðinn að dagskráin hafi sjald-
an verið glæsilegri enda mikið lagt
í viðburðinn. Þrír erlendir fyrir-
lesarar verða á ráðstefnunni, þar
á meðal Scott Bedbury, sem er
fyrrum markaðsstjóri Starbucks
og Nike og hugmyndasmiður her-
ferðarinnar Just Do It fyrir síðar-
nefnda fyrirtækið.
„Koma Scotts er hvalreki fyrir
íslenskt markaðsfólk. Fólk sem
kemur að markaðsmálum mun
vafalítið sækja sér þekkingu og
styrkingu í starfi með því að sækja
ráðstefnuna,“ segir Gunnar.
Meðal umfjöllunarefna á ráð-
stefnunni eru hinir svoköll-
uðu nýmiðlar og notkun þeirra í
markaðsstarfi.
„Markaðsfólk hefur mikinn
áhuga á nýmiðlum og vill vita
meira um það hvernig á að fóta
sig á þeim vettvangi,“ segir Gunn-
ar. „Það gildir það sama um þá og
aðrar leiðir til að koma skilaboðum
á framfæri til neytenda.“
Gunnar segir að fyrirlesarar
á ráðstefnunni muni vafalítið
fjalla um þetta og vonandi gefa
áheyrendum dæmi um hvernig
hægt sé að koma skilaboðum á
áhrifaríkan hátt til neytenda með
farsímum, samfélagsvefjum og
fleiri slíkum miðlum.
Gunnar bætir því við að vissu-
lega hafi harðnað á dalnum í aug-
lýsinga- og markaðsgeiranum, en
nú sé ljóst að þeir sem héldu sínu
striki séu að koma betur undan
kreppu en þeir sem drógu úr
markaðsstarfsemi.
„Vissulega hafa fyrirtæki þurft
að laga sig að breyttu ástandi frá
því í lok árs 2008 hafa sum fyrir-
tæki virkilega styrkt sína stöðu
með öflugu markaðsstarfi og munu
sannarlega njóta ávaxtanna þegar
markaðurinn réttir úr kútnum. Öfl-
ugt og markvisst markaðsstarf er
svo sannarlega mikilvægur partur
af verðmætasköpun fyrirtækja.“
Ráðstefnan hefst kl. 9 á Hilton
Nordica og stendur til kl. 16. - þj
Fagna aldarfjórðungsafmæli
á Íslenska markaðsdeginum
Opni háskólinn í HR og viðburða- og hvata-
fyrirtækið Practical kynna nýtt samstarf
sitt í Opna háskólanum við Menntaveg eitt
milli klukkan hálffimm og fimm á morg-
un fimmtudag.
Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri
Opna háskólans, segir í tilkynningu að sam-
legðaráhrif fyrirtækjanna séu mikil, Opni
háskólinn hafi frá stofnun einbeitt sér að
endurmenntun og fræðslu fyrir íslensk fyr-
irtæki en Practical getið sér gott orð fyrir
hópefli og starfsdaga.
Áhersla verði lögð á „lifandi vinnustof-
ur“, fyrirlestra og hópefli þar sem þátttak-
endur taki virkan þátt í dagskránni í stað
þess að vera í hlutverki áhorfenda. Meðal
annars á að bjóða upp á vinnustofur um ár-
angur undir álagi, árangursrík samskipti
og eflingu stjórnendateyma.
- óká
Lifandi vinnustofur og hópefli
Opni háskólinn og Practical taka höndum saman.
GUÐRÚN
HÖGNADÓTTIR
F Y R I R TÆ K I Ð
Nýtt fjarskiptafyrirtæki að
nafni Hringdu tók til starfa í síð-
asta mánuði og stefnir að því að
bjóða viðskiptavinum sínum upp
á ódýrari valkosti í internetþjón-
ustu og heimasíma. Frændurnir
Davíð Fannar Gunnarsson og Ját-
varður Jökull Ingvarsson stofn-
uðu Hringdu eftir að hafa áður
reynt fyrir sér með fyrirtækið
callit.is, sem sérhæfir sig í ódýr-
um símtölum til útlanda.
„Það má segja að hugmynd-
in að Hringdu hafi sprottið út
frá því,“ segir Játvarður í sam-
tali við Markaðinn. „Við fórum
að skoða það verð sem var í boði
á markaðnum og sáum að við
gætum boðið upp á internet-þjón-
ustu og heimasíma á góðu verði.”
Hringdu nýtir sér dreifikerfi
Símans, en er að öðru leyti óháð
öðrum fyrirtækjum á markaðn-
um.
Játvarður segir að lykillinn
að því að lítið fyrirtæki, nýtt á
markaði, geti boðið betra verð sé
takmörkuð yfirbygging og elja.
„Við vinnum bara fjórir hjá
fyrirtækinu eins og er, og erum
að fram á öll kvöld. Þannig erum
við að láta þetta ganga.“
Hann segir viðbrögðin hafa
komið þeim nokkurn veginn í
opna skjöldu og þeir hafi þurft að
hafa sig alla við til að sinna við-
skiptavinum. „Þetta byrjaði með
miklum látum hjá okkur, en við
leggjum mikla áherslu á að geta
sinnt okkar kúnnum. Það skiptir
meira máli að sinna okkar fólki
vel heldur en að sprengja sig á
kostnað þjónustunnar strax í upp-
hafi.” - þj
Áherslan á þjónustu
Hringdu er nýtt fyrirtæki á íslenska fjarskiptamarkaðnum.
BJÓÐA
BETUR Þeir
Játvarður og
Davíð halda
ótrauðir inn
á fjarskipta-
markaðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Til leigu Skrifstofuhúsnæði á besta stað í Reykjavík
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 692 2323 eða 692 0900.
Til leigu er skrifstofuhúsnæði
að Rauðarárstíg 27. Um er að ræða húsnæði
á fjórum hæðum sem leigist út að hluta til eða í heild.
Á jarðhæð til leigu 333 fm.
2. hæð samtals 479 fm.
3. hæð samtals 479 fm.
4. hæð samtals 479 fm.
Gott aðgengi og næg
bílastæði bakatil.