Fréttablaðið - 02.03.2011, Side 39
Gott samband skiptir öllu
SIMMI OG JÓI
Hin vel útfærða markaðssetning félaganna
á Fabrikkunni – sem skilaði þeim útnefningu
ÍMARK sem Markaðsmenn ársins 2010 – og
ljúffengir hamborgararnir hafa haldið þeim
rækilega uppteknum síðan staðurinn opnaði
síðastliðið vor.
Ódýrt með mikla möguleika
„Þegar við vorum að starta Fabrikkunni var
það ófrávíkjanlegt sjónarmið að fara hag-
kvæmustu leiðina á öllum sviðum,“ segir
Jói. „Við blasti að okkur vantaði símkerfi
sem væri ódýrt í upphafi en gæti engu að
síður leyst allar okkar þarfir, og auk þess
þurfti það að geta vaxið með Fabrikkunni ef
til þess kæmi.“ Þeir Simmi leituðu ráða hjá
Símanum og fundu út að heppilegasta lausn-
in væri að fá leigt símkerfi og fara í VIST.
Bara gaman – líka í símanum
Á Fabrikkunni er lögð áhersla á að öll
upplifun gesta sé skemmtileg og barnvæn.
Simmi bendir á að þá hafi frá upphafi langað
til að viðskiptavinir fengju stemmninguna
beint í æð strax við að hringja. „Símtalið er
oft fyrsti snertiflötur viðskiptavinarins við
okkur og því vildum við að tónninn yrði
gefinn þegar á þeim tímapunkti,“ bendir
hann á. „Þetta leystum við með svarvél
þar sem meðal annars er hægt að heyra
veðurspá og hlusta á Michael Bolton,
auk þess að fá samband við skrifstofu
og borðapantanir. Okkar metnaður er að
stemmningin hér inni skili sér eins og hægt
er í öll samskipti og kynningarstarf sem
unnið er í nafni Fabrikkunnar.“
Allir með á nótunum
Vegna vinsælda staðarins er starfsfólk í
salnum oftast á þönum. Einhvern veginn
þarf þó að koma því við að hægt sé að
ná sambandi við þjónana án fyrirvara ef
eitthvað kemur upp á sem þolir enga bið.
„Það sem við þurfum er þráðlaus sími fyrir
salinn. Lausnin á þessu er í rauninni einföld;
við tengdum GSM síma inn í kerfið okkar í
stað þess að setja upp marga senda innan
staðarins.“
Það hringir stöðugt
Þeir félagar leggja áherslu á að huga þurfi
vel að samskiptunum út á við. „Fabrikkan
er, þvert á það sem við áttum von á, að
þróast í borðapantanastað. Símhringingum
í 5757575 fjölgar dag frá degi sem og
pöntunum á fabrikkan@fabrikkan.is. Þessi
þróun kom aðeins aftan að okkur í fyrstu
og nú erum við að vinna í ferlunum okkar til
að lágmarka brottfall símtala. Það er nánast
hringt stöðugt allan daginn.“
Hamborgarafabrikka þeirra Simma og Jóa er vafalaust einn
vinsælasti veitingastaður landsins. Margir ólíkir þættir þurfa
að ganga upp til að ná þeim árangri – ekki síst gott samband
við viðskiptavini.
við að greina
Ráðgjöf
Á grundvelli greiningarinnar veittu þeir ráðgjöf um
upplýsingatækni og fjarskiptalausnir. Markmiðið var, eins og
ævinlega, að fyrirtækið fengi hvorki meiri né minni þjónustu
en það þarfnaðist og að rekstrarhagræðið yrði sem mest.
Sveigjanleiki
VIST gerir ráð fyrir að lausnirnar geti þróast og
stækkað með fyrirtækinu. Auðvelt er að bæta við
og breyta samsetningu þjónustunnar eftir því sem
fyrirtækið sjálft breytist.
Lausnir fyrir Fabrikkuna