Fréttablaðið - 02.03.2011, Qupperneq 41
Síminn og Grapewire bjóða þér
Bestu lögin við öll tækifæri
Grapewire er ungt hugbúnaðarfyrirtæki
sem sérhæfir sig í tónlistartengdum lausn-
um. Frá stofnun þess árið 2006 hefur það
rekið fjölda netverslana fyrir tónlistarmenn
og útgáfufyrirtæki. Í des ember 2010 urðu
svo vatnaskil hjá Grape wire þegar ný
tónlistarþjónusta, sér stak lega hönnuð fyrir
fjarskiptafyrirtæki, var opnuð við skipta-
vinum Símans undir heitinu Bestu lögin.
Með aðgangi að Bestu lögunum geta
viðskiptavinir Símans valið tónlist fyrir öll
hugsanleg tækifæri. Fólk velur rás með
tónlist, sem hentar stemmningunni hverju
sinni, og sparar þannig tíma við að safna
henni saman. Tónlistarrásunum er stjórnað
af rúmlega þrjátíu fagaðilum, DJ-um,
tónlistarunnendum og tónlistarmönnum
sem gjörþekkja tónlistarsmekk og
músík þörf Íslendinga. Hverri rás er svo
einfaldlega streymt um netið í símanum
eða tölvunni.
Það sem gerir Bestu lögin einstök er sú
staðreynd að hverri einustu rás er stýrt
af fagfólki með óslökkvandi ástríðu fyrir
tónlist. Tölvur koma hvergi nálægt lagavali
enda er það bjargföst trú Grapewire að
dagskrá þurfi að setja saman af alúð,
innsæi og tilfinningu fyrir viðfangsefninu.
Umfram allt þarf viðkomandi að hafa
einstaka þjónustulund og njóta þess að
hafa áhrif á líðan og umhverfi fólks.
Fimmtudaginn 10. mars nk. mun Síminn standa fyrir ráðstefnu á Hilton
Reykjavík Nordica um upplýsingatækni- og samskiptalausnir, sem eru ríkur
þáttur í rekstri fyrirtækja í dag. Erlendir sem innlendir fyrirlesarar munu
segja frá því sem framundan er í hýsingu á fjarskipta- og upplýsingatækni
og á það erindi við alla sem vilja viðhalda þekkingu sinni og fylgjast vel
með nýjungum á þessu sviði.
BROADWORKS
Samskiptalausnir
Vöxtur í háhraða og hágæða gagna-
flutnings þjónustu hefur flýtt fyrir þróun
samskiptalausna frá stökum vörum yfir í
leigða eða fyrirframgreidda þjónustu frá
þjónustuaðilum. Meðal þess sem Ben Bunn,
sérfræðingur hjá Broadsoft, mun segja frá
í erindi sínu er hugbúnaðurinn Broadworks
sem gerir þjónustuaðilum kleift að veita
viðskiptavinum sínum úrval hýstra IP
samskiptalausna eins og einkasímkerfi
(sbr. VIST Símans), myndsímtöl,
samþættingu á upplýsingatækni og fjar-
skiptum og tengingu milli farsíma- og
talsímaþjónustu.
OUTSOURCERY
Upplýsingatæknilausnir
Framkvæmdastjóri upplýsingatæknimála
hjá Outsourcery, Mark Seemann, mun
flytja erindi undir yfirskriftinni „Unified
Communications in the Cloud“ eða
„Samræmd fjarskipti og skýið“. Hann mun
rekja sögu hýstra, samræmdra fjarskipta,
hvernig farsíma- og IP símkerfaþjónustur
passa inn í Unified Communications og
hvernig samræmd fjarskipti virka betur
í Skýinu. Þess má geta að Outsourcery
vann titilinn Microsoft Worldwide Hosting
Solutions Partner of the year 2010 fyrir
að vera leiðandi á heimsmarkaði í þróun á
Unified Communications lausnum.
MICROSOFT Á ÍSLANDI
Úthýsing
Halldór Jörgensen, framkvæmdastjóri
Microsoft á Íslandi, flytur erindi á ráð-
stefnunni um úthýsingu póst- og
framleiðnikerfa og mikilvægi þess að
fyrirtæki einbeiti sér að kjarnastarfsemi
sinni. Halldór veltir upp spurningunni um
hvenær fyrirtæki komi að þeim tímapunkti
að þau eigi að hugsa sig alvarlega um hvort
það borgi sig fyrir þau að standa í rekstri á
kerfum á borð við póstkerfi, þegar slíkt er
fjarri kjarnastarfsemi fyrirtækisins.
Næturklúbbur? Lögin við vinnuna? Afslöppun?
BESTULOGIN.IS
SÍMINN EFNIR TIL RÁÐSTEFNU
Framtíðin er núna!
Nánari upplýsingar og skráning á siminn.is
siminn.is 800 4000