Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1927, Page 4

Sameiningin - 01.06.1927, Page 4
um og sameiginleg bæn beðin af öllnm kristnum mönn- um. Vonandi taka allir söfnuðir kirkjufélag’s vors í Canada þetta mál til greina og lialda hátíðar-guÖsþjón- ustur hvar sem því verður við komið. Eng-um mönnum ætti að vera ljúfara að taka þátt í hátíðahöildunum, en Islendingum í Canada, og þeim, sem af íslenzku bergi eru brotnir. Enga menn hefir Canada farið betur með en íslendinga. Ekki á Canada heldur tíeina tryg-gari syni en Islendinga. 1 vesturhluta lands- ins eru þeir með elztu íbúum fylkjanna og- ættu að vera öðrum þóðflokkum til fyrirmyndar. Þátttaka vor í hérlendu þjóðiífi skal hér ek'ki rædd jiema aðeins frá sjónarmiði trúarinnar. Þess orðs vors góða skálds skal minst, að “án lifandi vonar er þjóð hver dauð.” En lifandi von kemur af trú á lifandi Guð. Margt eigum vér að leggja hér á borð með oss, en ekk- ert er þjóðinni hér jafn-ómissandi til lífsviðurværis, sem lifandi trú á almáttugan Guð og hlýðni við boðoi’ð þau, er Kristur setti játendum sínum. Við eigum að hjálpa til þess, að þetta land megi vera Gaðs lancl. Ekki í þeirri merkingu, að Canada sé öðrum löndum fremra, eða vor þjóð fremur Guðs barn en aðrar þjóðir. Vér eigum að biðja um það, að öll lönd sé Guðs lönd. En til vorra kasta kemur, að gera vort land Guðs land, í von um, að aðrar þjóðir geri ein.s og allar þjóðir verði Guðs börn og’ allir menn á jörðu bræður. Hátíðir og hátíða-guðsþjónustur gera lítið gagn, nema svo sé, að lýður landsins ásetji sér, að framfylgja varadýrkun sinni með helgtíðu líferni, svo hvort sem er í stjómmálum, atvinnumálum, eða hverju því máli, sem lýtur að sambúð borgaranna, fái að ráða jöfnum hönd- um sannur guðsótti og' kærleiks-andi Krists. Réttlætis- vitund þjóðfélagsins verður að eiga i-ætur í guðsóttanum. Ábyrgðin fyrir Guði verður að vera ljós jafnt yfirmönn- um sem undirge'fnum. Hver sem land sitt elskar, verð- ur sífelt að vera þess minnugur, að “réttlætið hefur upp lýðinn, en syndin er þjóðanna skömm.” Landinu voi’u kæra, fáum vér engan hlut jafn-góðan gefið eins og lifandi trú á .sannan Guð og' þann, sem hann sendi, Jesúm Krist.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.