Sameiningin - 01.06.1927, Page 6
164
má engin trúarbrögð kenna. Xú liafa uppeldisfræðing-
ar vakið máls á því, að varliugavert sé, að fleiri miljónir
bama vaxi upp án áhrifa nokkurra trúarbragða. Benda
á, að siðgæði þjóðfélagsins stafi hætta af því. Það er
og haft orð á því, að undarlega sé því farið, að víðlesn-
asta og áhrifamesta bókin í veröldinni megi ekki koma
inn fyrir dyr í skólunum. Vilja nú margir fá lögum
breytt, svo lesa megi að minsta kosti biblíuna, athnga-
semdalaust, í skólunum. 1 sumurn ríkjum hefir það og
verið heimilað með lögum, að hálfan dag í viku hverri
fái hver trúflokkur að taka við sínum börnurn til trfiar-
bragðakenslu ýmist í skólahúsinu sjálfu, eða á öðrum
stað. En mikilli mótspyrnu hefir það mætt og skotið
hefir því verið hvað eftir annað til dómstóla, hvort það
fyrirkomulag gæti samrýmst við grundvallarlög lands-
ins (e. g. New York). Iíefir ýmislega verið í þeim mál-
um dæmt. Um' trúarbragða kenslu í skólum ríkisins
standa nú yfir kappræður miklar í tímaritum Banda-
ríkja. Er sú senna einna hörðust, er þeir hevja í tíma-
ritinu Forum, presturinn Benjamin S. Winchester, sem
nýlega hefir gerður verið framkvæmdarstjóri fræðslu-
nefndar kirkna-sambandsins í Ameríku, og rithöfund-
urinn Harvey M. Watts, sem manna mest hefir ritað
um andstöðu trúarbragða og vísinda. Álítur prestur-
inn, að bæði mentun og siðferði þjóðarinnar sé hætta
búin af fáfræði skólalýðsins í kristnum fræðum; sér þó
annmarka á þeim aðferðum öllum, sem reyndar hafa
verið eða stungið hefir verið upp á og telur óráðlegt, að
.skilja þau börn frá öðrum börnurn, sem foreldrar vilji
að njóti trúarbragðakenslu. Mr. Watts telur það aftur
á móti ekki ofætlun kirkjunni, að sjá um trúarbragða-
kenslu á sunnudögum og í heimahúsum, ef menn á annað
borð vilji halda á lofti þeim bábiljum.
Ekki má ætla, að kirkjan sé alrnent, á þenna hátt eð-
ur annan, að troða sér inn í skóla ríkisins. Sumar deild-
ir kirkjunnar mega það ekki heyra, að skólar þeir, sem
öllum eru ætlaðir jafnt og styrktir eru af almanna-fé,
sé notaðir til kristindóms-kenslu. Telja það borgara-
legt .brot gegn þeim, sem andstæðir sé öllum trúarbrögð-
um, eða önnur trúarbrögð hafa en kristna trú. Engin