Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.06.1927, Side 13

Sameiningin - 01.06.1927, Side 13
Frásögnin er ekkert frábær, en þó víÖa góÖ og á síÖustu köfl- unum ágæt. Efni'ð er mikiÖ. Höfundurinn gengur aÖ því eins og sá maÖ- ur, sem'plægir akur sinn. En hann plægir djúpt, þessi ungi prest- ur. AÖ sumu leyti finst manni sögunni svipa til “Ofureflis’’ Ein- ars H. Kvarans. Ekki er þó um eftirlíking aÖ ræða. MaÖur verð- ur að álykta, að þegar þessir tveir höfundar hafi litast um, þá hafi þeir séð nokkurnveginn sömu þokuna á íslenzku fjöllunum og báð- um reynst það ofurefli að dreifa henni. í fæstum orðum er efni sögunnar á þessa leið: AÖal-persóna sögunnar er Brynhildur dóttir Sigfúsar bæjar- fógeta í Reykjavík. Það er hún, sem segir söguna. Hún er alin upp við auðlegð og eftirlæti. Er í bernsku áköf og heimtufrek. Eyrir fermingar-aldur hefir hún breyst og rétt- lætið sezt í öndvegi í sálu hennar. Um fermingar-aldur opnast augu hennar fyrir misfellum lífsins: annarsvegar auður, hinsvegar örbyrgð. Hún kynnist eymd fátækra barna. Hún ásetur sér að þiggja ekki dýru fermingargjafirnar, en biður móður sína að gefa þá peninga fátækum. Því fær hún ekki ráðið. Hún fær dýrgripi og fermingarveizla er haldin. Árin næstu á eftir fermingunni á hún í miklu stríði. Hugur hennar er við það eitt að bæta böl mannanna. Hún gefur sig alla við líknarverkum. Hún safnar fé hjá efnuðum mönum oft og einatt til liknar, þar sem mest ligg- ur á. Hún ákveður að helga líf sitt alt líknarstarfi. Hún ráð- færir sig við prestinn. Hann sýnir henni fram á, að til þess að nokkur veruleg bót fáist á eyrnd fátæklinganna og olnbogabarn- anna,. þá þurfi að stofna öflug félög og koma upp líknarstofnun- um. Segir hann henni frá þess kyns starfa í útlöndum og hvetur hana til aÖ sigla og kynna sér líknarstörf hjá öðrum þjóðum. Unga konan fyllist hrifning og helgar sig þeirri köllun með óum- ræðilegum fögnuði. Hún fær samþykki foreldra sinna, sem raun- ar eru bæði góðar manneskjur, þó þau sé börn tíðar sinnar og berist meÖ straumi tíðarandans. Er nú utanförin ráðin að hausti, en það sumar fer Brynhildur kynnisför til systra sinna tveggja. Er önnur prestkona í sveit, og býr við skort og vonbrigði. Hin er læknisfrú á Siglufirði. Á Siglufirði verða þau straumhvörf, sem breyta allri stefnu. Eæknishjónin á Siglufirði baða i rósum. Læknirinn er stórríkur. Brynhildur veitir því eftirtekt, aö ekki vitja þó sjúklingar hans. Hún kemst að raun um, að hann lifir og græðir á brennivínssölu og saurlífis-atvinnu. Sjaldséð er mynd jafn-ljót og þessi mynd af lifnaðarháttum fólks á Siglufirði. Slorið og óþverrinn eru i kné. Kona, margra barna móðir, eigin-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.