Fréttablaðið - 21.03.2011, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 21.03.2011, Blaðsíða 2
21. mars 2011 MÁNUDAGUR2 STJÓRNSÝSLA Kristján Jóhanns- son, fulltrúi Bankasýslu ríkisins í stjórn Arion banka, mun víkja úr stjórninni á aðalfundi bankans í vikunni. Stjórn Bankasýslunn- ar telur rétt að endurnýja ekki umboð Kristjáns vegna ákvörð- unar hans um að samþykkja launakjör Höskuldar H. Ólafs- sonar, bankastjóra Arion banka. Kristján þykir þó ekki hafa brotið gegn eigendastefnu ríkisins. „Mat okkar var, að teknu tilliti til alls, að fulltrúi ríkisins hefði átt að sitja hjá við kosningu um launakjör Höskuldar,“ segir Þor- steinn Þorsteinsson, stjórnar- formaður Bankasýslunnar, og bætir við: „Við erum að fara með hlut í eigu ríkisins og miðað við ástandið í þjóðfélaginu, viðhorf gagnvart fjármálafyrirtækjum og aðgerðir ríkisins til að tak- marka hækkanir hærri launa, þá hefði fulltrúi ríkisins átt að sýna aðgæslu í þessu máli.“ Þorsteinn segir Kristján þó ekki hafa brot- ið gegn eigendastefnu ríkisins og utan þessa máls hafi ríkt sátt um störf Kristjáns. Kristján, sem er lektor við við- skiptafræðideild Háskóla Íslands, greiddi atkvæði með launakjör- um Höskuldar í stjórn Arion banka en launakjör Höskuldar hafa undanfarið verið gagnrýnd fyrir að vera óhófleg. Til marks um það sagði Jóhanna Sigurðardóttir, for- sætisráðherra, í kvöldfréttum RÚV á laugardag, að launakjör æðstu stjórnenda bankanna væru kjaftshögg fyrir fólk sem þurft hefði að takast á við atvinnu- leysi og launalækkanir á síðustu misserum. Þá lýsti hún yfir von- brigðum með ákvarðanir stjórn- armanna Bankasýslunnar hjá Arion banka og Íslandsbanka en Kolbrún Jónsdóttir, stjórnarmað- ur hjá Íslandsbanka, sat hjá við ákvörðun stjórnar um launakjör Birnu Einarsdóttur, bankastjóra. „Ég harma þessa niðurstöðu. Ekki síst þar sem öll samskipti við Bankasýsluna hafa verið fag- leg, opin og góð. Formaður banka- sýslunnar sagði að ég hefði ekki brotið gegn eigendastefnu rík- isins. Hann gefur þá einkunn,“ segir Kristján Jóhannsson sem stendur við ákvörðun stjórnar- innar um starfskjör Höskuldar, ýtarleg vinna hafi legið að baki þeirri niðurstöðu. Stjórn Bankasýslunnar bauð Kristjáni að segja af sér fyrir helgi en hann varð ekki við þeirri beiðni. Í kjölfarið var honum til- kynnt að umboð hans til stjórnar- setu í Arion banka yrði ekki end- urnýjað. magnusl@frettabladid.is Ég harma þessa niðurstöðu. Ekki síst þar sem öll samskipti við Bankasýsluna hafa verið fagleg, opin og góð. KRISTJÁN JÓHANNSSON STJÓRNARMAÐUR Í ARION BANKA HAÍTÍ Forsetakosningar fóru fram á Haítí í gær. Frambjóðendurn- ir eru tónlistarmaðurinn Michel Martelly og forsetafrúin fyrrver- andi Mirlande Manigat. Tónlistarmaðurinn Wyclef Jean, sem er dyggur stuðnings- maður Martelly, var skotinn í hendina kvöldið fyrir kosning- arnar, en hann útskrifaðist af spítala í gær. Lögreglan í landinu hefur ekki upplýst um frekari til- drög skotárásarinnar. Wyclef ætlaði sjálfur að bjóða sig fram til forseta, en var synjað þar sem hann hafði ekki dvalið í landinu í nægilega mörg ár. Tilkynnt verður um niðurstöð- ur forsetakosninganna um miðjan apríl. - sv Wyclef skotinn í hendina: Kosið til forseta á Haítí í gær BRUNI Maður á fimmtugsaldri ligg- ur á gjörgæslu Landspítalans með reykeitrun eftir að mikill eldur kom upp í bifreiðaverkstæði á Smiðjuvegi í Kópavogi um sexleyt- ið í gærmorgun. Hann var einn á verkstæðinu þegar kviknaði í. Samkvæmt upplýsingum frá vatkhafandi lækni á Landspítal- anum fer líðan mannsins batnandi. Hann mun líklega verða færður af gjörgæslu í dag. Eldurinn kom upp í bíl á verk- stæðinu og barst í þak hússins. Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuð- borgarsvæðinu var kallað á stað- inn. Reykkafarar fundu manninn stuttu eftir að tilkynning barst um að húsið væri ekki mannlaust og fluttu hann strax á sjúkrahús. Töluverðar skemmdir urðu á verkstæðinu og rífa þurfti þakið á húsinu til þess að komast í allar glæður. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu tók slökkvistarfið túma tvo klukkutíma og voru um tuttugu manns að vinna að verk- inu. Upptök eldsins eru ókunn en lögregla vinnur að rannsókn máls- ins. - sv Allt tiltækt slökkvilið kallað út vegna bruna á verkstæði í Kópavogi í gærmorgun: Einn á gjörgæslu með reykeitrun FRÁ BRUNANUM Það tók slökkviliðið rúmlega tvo klukkutíma að slökkva eldinn í bifreiðaverkstæðinu í Kópavogi í gærmorgun. MYND/SIGURJÓN ÓLASON JAPAN Áttræðri konu og sextán ára barnabarni hennar var bjargað úr rústum húss í Ishinomaki í Japan í gær, níu dögum eftir skjálftann þar í landi. Þau höfðu verið föst í húsinu en komust í ísskáp og gátu því nærst. Þau eru nú á spítala. Lögregla í Japan segir nú að 15 þúsund manns í Miyagi-hér- aði einu hafi látist í hamförunum. Heildartala látinna fari því yfir tuttugu þúsund manns. Opinber tala látinna var í gær 8.450 og tæp- lega þrettán þúsunda var saknað. Stjórnvöld hafa hafist handa við að láta byggja tímabundið hús- næði fyrir hluta þeirra sem misstu heimili sín. Áfram er unnið í kjarnorku- verinu í Fukushima og segja yfir- völd að þau séu nálægt því að ná stjórn á aðstæðum þar. Tek- ist hafi að kæla niður tvo af sex kjarnaofnum versins á öruggan máta. Þrýstingur jókst þó óvænt í þriðja kjarnaofninum í gær, sem gæti orðið til þess að sleppa þurfi geislavirkri gufu út í andrúmsloft- ið. Mest er óttast að matur og vatn hafi orðið fyrir mengun og var flutningur á spínati og mjólk frá nágrenni kjarnorkuversins stöðv- aður í gær. - þeb Stjórnvöld vonast til að ná tökum á geislavirkni í Fukushima: Bjargað úr rústum eftir níu daga FUKUSHIMA Fólk beið í röðum eftir því að fá mælingu á geislavirkni í Fukushima um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP EFNAHAGSMÁL Alls eru um 75 milljarða króna lán í vanskilum hjá Íbúðalánasjóði. Forsætisráð- herra segir allt benda til þess að ríkið þurfi að auka fjárveitingar til sjóðsins umfram þá 33 millj- arða sem Alþingi hefur þegar samþykkt að veita sjóðnum. Það verði jafnvel hærri fjárhæð held- ur en ríkið þarf að borga Bretum og Hollendingum vegna Icesave. RÚV greindi frá þessu í fréttum sínum í gær. Vanskil hafa aukist mikið hjá Íbúðalánasjóði á undanförnum misserum. Reiknað er með því að afskriftir verði mun meiri en áður var gert ráð fyrir. - sv Íbúðalánasjóður í vanskilum: 75 milljarða lán í vanskilum SJÁVARÚTVEGUR Forsætisráðherra vill vísa nýju frumvarpi um stjórn fiskveiða til þjóðarinnar. Hún segir eðlilegt og sjálfsagt að hald- in verði þjóðaratkvæðagreiðsla um kvótakerfið, er fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld. Sjávarútvegsráðuneytið vinnur nú að frumvarpi að breytingum á lögum um fiskveiðistjórn og stefnt er að birtingu í lok þessa mán- aðar. Í frumvarpinu verður meðal annars tilgreint að framsal á afla- heimildum verði afnumið og veð- setningar verði bannaðar. - sv Forsætisráðherra um veiðar: Kvótafrumvarp til þjóðarinnar Fulltrúa ríkisins í stjórn Arion skipt út Stjórn Bankasýslu ríkisins hefur ákveðið að endurnýja ekki umboð Kristjáns Jóhannssonar, stjórnarmanns í Arion banka, á aðalfundi bankans sem haldinn verður í vikunni. Ákvörðunin kemur í kjölfar gagnrýni á launakjör bankans. ARION BANKI Laun æðstu stjórnenda Arion banka og Íslandsbanka hafa sætt gagn- rýni undanfarið því þau þykja óhófleg. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR WYCLEF JEAN Tónlistarmaðurinn var skotinn í hendina í aðdraganda forsetakosninga á Haítí á laugardag. Bogi, eruð þið ekki í skýjunum? „Jú, þessi niðurstaða gefur okkur byr undir báða vængi.“ Bogi Nils Bogason er fjármálastjóri Icelandair Group. Icelandair Group birti á föstudag ársskýrslu sína en þar kom fram að fyrirtækið skilaði methagnaði á síðasta ári. SLYS Harður árekstur tveggja bíla varð á Suðurlandsvegi rétt austan við Hvolsvöll í gærdag. Einn ökumaður var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur. Alls voru þrír í bílunum. Loka þurfti annarri akreininni vegna slyssins og urðu nokkrar tafir á umferð. Að sögn lögregl- unnar á Hvolsvelli virtist slysið alvarlegra við fyrstu sýn. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út en aðstoð hennar var afturköll- uð. Tildrög slyssins eru óljós en málið er í rannsókn. - sv Betur fór en á horfðist: Harður árekst- ur á Hvolsvelli EGYPTALAND, AP Mikill meirihluti kjósenda samþykkti breytingar á stjórnarskrá Egyptalands í kosn- ingum á laugardag. Kosningarnar voru fyrstu frjálsu kosningar í landinu í meira en hálfa öld. Almennar þing- og forsetakosningar verða nú haldnar í landinu innan sex mánaða. Gagnrýnendur óttast að vegna skamms fyrirvara muni Múslimska bræðralagið ná völd- um, vegna þess að flokkurinn sé skipulagðasta stjórnmálaaflið í landinu. Flokkurinn hefur barist hart fyrir því að breytingarnar yrðu samþykktar. - þeb Frjálsar kosningar haldnar: Breytingar á stjórnarskránni Undirskriftarsöfnun hafin Undirskriftarsíðan www.börn.is var opnuð í gær. Á síðunni er skorað á borgarstjórn Reykjavíkur að hætta við fyrirhugaðar breytingar á starfi leik- skóla, grunnskóla og frístundaheimila. Samstarfshópur íbúa Reykjavíkur opnaði vefinn á fundi á þaki Æsufells 4 í Breiðholtinu í gær. SKÓLAMÁL SPURNING DAGSINS Taktu góða ákvörðun Borgartúni 29 S. 585 6500 www.audur.is Auður býður til kynningarfundar þriðjudaginn 22. mars kl. 17:15 að Borgartúni 29. Opinn kynningarfundur • Séreignarsparnaður • Eignastýring • Langtímasparnaður Allir velkomnir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.