Fréttablaðið - 21.03.2011, Page 18
2
Ron Arad fæddist í Tel Aviv og
lauk prófi úr Listaháskóla Jerúsal-
em áður en hann flutti til London
þar sem hann nam arkitektúr. Hér
á landi eru nokkur verka hans vel
kunn. Eitt það þekktasta er bóka-
hillan „Bookworm“ sem endur-
speglar aðalvinnuaðferð Arad; að
sveigja stál eftir eigin höfði og
gæða húsögn þannig lífi.
Arad fer óvenjulegar leiðir.
Hans fyrsta húsgagn kom á mark-
að árið 1981. Síðan þá hefur hann
hannað fyrir marga þekktustu
framleiðendur heims, þar á meðal
Magis og Rosenthal og verk hans
er að finna á öllum helstu söfnum
veraldar, þar á meðal á Metropo-
litan Museum of Art og Centre
Georges Pompidou í París.
Frá árinu 1997 hefur arkitekt-
inn gegnt stöðu prófessors við hús-
gagna- og iðnhönnunardeild Royal
College of Art í London og hefur
því ekki aðeins áhrif með hönnun
sinni heldur líka sem kennari á
hönnuði framtíðarinnar. - jma
Stálhönnuðurinn sextugur
Ísraelski hönnuðurinn og arkitektinn Ron Arad er talinn til þeirra núlifandi hönnuða sem hafa haft hvað
mest áhrif á hönnunarheiminn síðustu áratugi. Hönnuðurinn stendur á sextugu um þessar mundir.
Voido-stóllinn þykir
einn best heppnaði
ruggustóll síðari tíma.
Stólinn hannaði Arad fyrir
Magis.
Ron Arad
hefur
ekki síður
sérstakan stíl
sjálfur en hús-
gögnin hans.
Bookworm, eða bókaormur, kallast þessi hilla sem
er einn þekktasti gripur Rons Arad.
Hönnunarteymið Attikatti er
með hugmynda- og viðburða-
smiðju og hefur numið land að
Grettisgötu 4.
Innan Attikatti eru hönnuðirnir
Bára Kristgeirsdóttir, Hanna Jóns-
dóttir og Rúna Thors. „Við tökum
að okkur að hanna alls konar við-
burði, merki, bæklinga, sviðs-
myndir, húsgögn og fylgihluti eftir
því sem við á,” segir Bára sem sér
um almannatengslin.
Í tilefni af HönnunarMars gengu
þær Lilja Kjerúlf og Ninna Mar-
grét Þórarinsdóttir í lið með Atti-
katti. Opnunarhóf gallerísins
verður á Grettisgötunni þann 23.
mars frá klukkan 18. „Sett verða
á svið(akjamma) hæna, skipti-
nemi, sverð og fleira svona land-
náms-..., eins og til dæmis skjöld-
ur og maður höggvinn í herðar
niður,“ segja stúlkurnar sem segj-
ast munu stíga í vænginn við land-
námshænur og eigi það vafalaust
eftir að enda með heljarinnar átök-
um og fjaðrafoki. -gun
Með gallerí á Grettisgötunni
Hanna Rúna Thors og Bára Kristgeirsdóttir skipa hönnunarteymið Attikatti.
Sænsku hönnuðurnir Marcus Abrahamsson og Kristoffer
Fagerström hafa hannað ansi skemmtilegan garðbekk fyrir fyrir-
tækið Nola. Hann er litfagur og búinn til úr lituðum furuspýtum.
Hönnunina kalla þeir Pylon en hún var sýnd á hönnunarsýning-
unni í Stokkhólmi nýlega.
Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld (element),
hitastillar, hitastýringar, rafhitarar til húshitunar
og flest annað til rafhitunar.
Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu sem við
kemur rafhitun. Við bjóðum einungis úrvals tæki
sem hafa sannað sig með áralangri reynslu.
íslensk
framleiðsla
í 20 ár
Rafhitarar fyrir heita potta
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Stólinn „Tom
Vac“ hannaði
Arad fyrir Vitra en
hann hefur notið
talsverðra vinsælda
hérlendis.
Skemmtilegir
vasar sem Arad
hannaði fyrir
Rosenthal árið
1996.