Fréttablaðið - 21.03.2011, Blaðsíða 34
21. mars 2011 MÁNUDAGUR18
BAKÞANKAR
Júlíu
Margrétar
Alexanders-
dóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Það er ekki vinsælasta afþreyingin á Spáni – en sumum finnst samt hlaup nautamauranna vera ansi hættulegt...
Hvað finnst þér
um púlarana í
ár? Þeir þurfa
á góðu tímabili
að halda!
Sammála?
Já heldur
betur! Og
ég held að
það sé eitt-
hvað stórt í
fæðingu!
Góð tilfinning!
Sammála þér,
alveg sam-
mála þér! Það
er komið fjör í
þá sem maður
hefur ekki séð
lengi!
Það ræðst
auðvitað
mikið af
forminu á
Steven Gerr-
ard. Hann er
ómetanlegur!
Já, sammála
þér! Steven er
góður maður!
Ég væri nú
alveg til í að
komast í þær
buxurnar!
Ha...
nú
tapaðirðu
mér!
Sammy Lee!
Sá var flottur
kubbur! Hann
fyllti sko út í
stuttbuxurnar!
Sammála?
Nei, þú
gengur
einn í
þessu!
Blessaður!
Nei! Nei! Nei!
Nei! Nei!
Ha? Fötin, klippingin, skórnir, allur
pakkinn, þetta er
RANGT, RANGT, RANGT!
Hver spurði
þig? Mér finnst að allir
eigi rétt á minni
skoðun.
Híhíhí!
Þetta er svo sætt!
Lóa er mjög
ánægð með
það sem hún
sér í spegl-
inum.
Njóttu þess
meðan
það endist
elskan.
LÁRÉTT
2. spil, 6. samanburðarteng., 8.
samræða, 9. meðvitundarleysi, 11.
2000, 12. framrás, 14. samband, 16.
sjó, 17. kraftur, 18. hress, 20. komast,
21. borg í Portúgal.
LÓÐRÉTT
1. land í S-Ameríku, 3. pot, 4. sam-
tíningur, 5. angan, 7. nýta, 10. viður,
13. spíra, 15. feikn, 16. gras, 19.
númer.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gosi, 6. en, 8. tal, 9. rot,
11. mm, 12. útrás, 14. félag, 16. sæ,
17. afl, 18. ern, 20. ná, 21. faró.
LÓÐRÉTT: 1. perú, 3. ot, 4. samsafn,
5. ilm, 7. notfæra, 10. tré, 13. ála, 15.
glás, 16. sef, 19. nr.
Hvernig væri að fljúga út í heim og skoða
framandi staði og töfrandi heimsborgir?
Skoðaðu nýja og spennandi staði og taktu þér far
með einhverju af þeim 15 flugfélögum sem fljúga
frá Íslandi á árinu.
Prófaðu Dohop leitarvélina á Vísi, flug og
gisting, öll hagstæðustu tilboðin á einum stað.
08.08.11
15.08.11
Reykjavík
390 orða pláss er of stutt fyrir málefni sem er milljónfalt stærra. Ég tæpi því
á örfáu. Tilefnið er grein sem hópur fólks
birti í Fréttatímanum í síðustu viku og
fjallaði um kynjahlutfall í viðfangsefnum
bókmenntaþáttarins Kiljunnar í umsjá
Egils Helgasonar. Færslur voru skoðaðar
þar sem viðfangsefni, bæði viðmælendur
og það sem þeir ræddu um, hafði verið
fært til bókar. Samkvæmt niðurstöðum
voru 77% þeirra sem fengu umfjöllun í
Kiljunni, í 78 þáttum, karlar.
ÞAÐ má deila á þessa aðferðafræði þótt
ég efi ekki niðurstöður. Kiljan hefur
vísun bæði í nútíð og þátíð. Þátíðin
er karllæg, þar sem þjóðfélagslegar
aðstæður buðu konum oft hvorki tæki-
færi né tíma til þátttöku í bókmenntum
. Góður þáttur Sigríðar Pétursdóttur,
Kvika, er í eftirlæti undirritaðrar. Kvik-
myndasagan er hins vegar sama marki
brennd og bókmenntafortíðin; karlmenn
eru þar í aðalhlutverki og þrátt fyrir
mjög góða þátttöku kvenna í setti
Sigríðar eru karlmenn þar eflaust í
meirihluta séu viðfangsefnin dregin
með í sama pott með sama hætti.
ENDA er það gott. Það er gott
að skoða kvikmynda- og bók-
menntasöguna og átta sig á því
sem hefur unnist síðan bara fyrir
fimmtíu árum. Sagnfræðin er mikilvæg
til að kenna okkur hvernig gera má betur í
dag en í gær, þótt endalaust megi deila um
hversu mikið eða lítið bókmenntaþættir
eigi að sinna fortíð í hlutfalli við nútíð, það
er svo önnur umræða.
FLJÓTLEGAST í þessu öllu, er að líta hvorki
til hægri né vinstri og beina spjótum að
þáttastjórnandanum. Ég held þetta sé hins
vegar kjörið tækifæri til að staldra við og
velta við margfalt fleiri steinum. Í hvaða
röð viljum við breyta þessu – eigum við að
byrja á egginu eða hænunni. Ef Egill er
bakarinn eru bókaútgefendur smiðirnir,
sem stjórna því hvað kemur út. Bókatíðindi
síðasta árs hljóta að gefa eitthvað til kynna
þar. Lauslegur útreikningur, þar sem farið
er yfir listann yfir íslenska höfunda í öllum
bókaflokkum gefa til kynna að hlutfall
kvenna í útgáfu síðasta árs sé 36%.
FRÁ þessum steini er svo hægt að fara
að næsta og þeim þarnæsta. Mikilvæg-
ast er að yfirgefa ekki þetta átakasvæði
og tilltektin þarf líka að fara fram í okkar
heimahögum. Sjálf þarf ég að skoða niður-
stöður umræðna helstu blaðakvenna heims
sem sýna að skrif blaðakvenna eru að
megninu til um „mýkri“ málefnin en ekki
af vettvangi stjórnmála og efnahagsmála.
Fréttablaðið er þar eflaust engin undan-
tekning.
Kynja-Kiljan