Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.03.2011, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 21.03.2011, Qupperneq 42
21. mars 2011 MÁNUDAGUR26 Enska úrvalsdeildin: SUNDERLAND - LIVERPOOL 0-2 0-1 Dirk Kuyt, víti (32.), 0-2 Luis Suarez (77.). CHELSEA - MAN. CITY 2-0 1-0 David Luiz (79.), 2-0 Ramires (90.) ASTON VILLA - WOLVES 0-1 0-1 Matt Jarvis (37.). BLACKBURN ROVERS - BLACKPOOL 2-2 0-1 Charlie Adam (24.), 0-2 Charlie Adam (28.), 1-2 Christopher Samba (48.), 2-2 David Hoilett (92.). EVERTON - FULHAM 2-1 1-0 Seamus Coleman (35.), 2-0 Louis Saha (48.), 2-1 Clint Dempsey (61.). MAN. UNITED - BOLTON WANDERERS 1-0 1-0 Dimitar Berbatov (87.). STOKE CITY - NEWCASTLE UNITED 4-0 1-0 Jonathan Walters (28.), 2-0 Jermaine Penn- ant (45.), 3-0 Danny Higginbotham (48.), 4-0 Ricardo Fuller (92.). WEST BROMWICH ALBION - ARSENAL 2-2 1-0 Steven Reid (2.), 2-0 Peter Odemwingie (57.), 2-1 Andrei Arshavin (69.), 2-2 Robin van Persie (77.). WIGAN ATHLETIC - BIRMINGHAM CITY 2-1 0-1 Liam Ridgewell (5.), 1-1 Tom Cleverley (24.), 2-1 Maynor Figueroa (91.) STAÐAN: ManUnited 30 18 9 3 64-30 63 Arsenal 29 17 7 5 59-29 58 Chelsea 29 16 6 7 53-24 54 Man City 30 15 8 7 45-27 53 Tottenham 29 13 10 6 41-34 49 Liverpool 30 13 6 11 41-36 45 Bolton 30 10 10 10 42-41 40 Everton 30 9 13 8 40-39 40 Sunderland 30 9 11 10 33-37 38 Stoke City 30 11 4 15 36-38 37 Newcastle 30 9 9 12 44-45 36 Fulham 30 7 14 9 33-33 35 Blackburn 30 9 6 15 39-51 33 Aston Villa 30 8 9 13 37-51 33 Blackpool 30 9 6 15 45-60 33 WBA 30 8 9 13 41-56 33 West Ham 30 7 11 12 36-49 32 Wolves 30 9 5 16 35-49 32 Birmingham 29 6 13 10 28-41 31 Wigan Athletic 30 6 12 12 29-51 30 ÚRSLIT FÓTBOLTI Tíu leikmenn Man. Utd unnu mikilvægan sigur á Bolton á sama tíma og Arsenal missteig sig illilega er það sótti WBA heim. Þar var markvörðurinn Manuel Alm- unia skúrkurinn hjá Arsenal. Það var varamaðurinn Dimitar Berbatov sem tryggði Man. Utd sigur gegn Bolton tveim mínútum fyrir leikslok. Rúmum tíu mínút- um áður hafði Jonny Evans, varn- armaður Man. Utd, verið rekinn af velli fyrir skrautlega tæklingu. Leikmenn United létu það ekki á sig fá, héldu áfram að sækja og uppskáru sigur. „Þetta var ekki fullkomin frammistaða hjá okkur en við gáf- umst aldrei upp. Það er það sem karakterinn í þessu félagi snýst um. Hér gefast menn aldrei upp og ekkert annað félag státar af þeim karakter sem þetta félag hefur,“ sagði sigurreifur stjóri Man. Utd, Sir Alex Ferguson, sem mátti gera sér að góðu að horfa á leikinn úr stúkunni þar sem hann er nýbyrj- aður í fimm leikja banni. Manuel Almunia gaf WBA seinna mark sitt í leiknum gegn Arsenal með glórulausu úthlaupi. Arsenal kom til baka og náði að jafna. „Tölfræðilega töpuðum við stig- um en sálfræðilega unnum við stig eftir að hafa lent undir. Bar- áttan er ekki búin,“ sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal. - hbg Manchester United áfram á toppnum eftir að tíu leikmenn liðsins lögðu Bolton: Berbatov kom United til bjargar HETJAN Dimitar Berbatov hefur mátt sætta sig við bekkjarsetu upp á síðkastið en svaraði því með góðu sigurmarki um helgina. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Velski vængmaðurinn Gareth Bale virðist ekki vera á förum frá Tottenham því hann er búinn að framlengja samning sinn við félagið til ársins 2015. Þessi 21 árs gamli kantmað- ur hefur slegið í gegn í vetur og stimplað sig inn sem einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildar- innar. Bale kom til Spurs frá South- ampton er hann var 17 ára gam- all. Hann er þegar búinn að spila 112 leiki fyrir Spurs og skora 17 mörk. - hbg Bale framlengir við Spurs: Hjá Spurs til ársins 2015 EKKI Á FÖRUM Gareth Bale hefur trú á því að Spurs sé á leið á toppinn. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI John Terry hefur ekki fengið mikið af góðum fréttum síðustu mánuði en hann gat glaðst um helgina þegar Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, stað- festi að hann væri aftur orðinn fyrirliði enska landsliðsins. Capello tók fyrirliðabandið af Terry á sínum tíma er upp komst að hann hafði verið að sænga hjá unnustu liðsfélaga síns, Wayne Bridge. Sá tók málið svo nærri sér að hann hætti í landsliðinu þar sem hann vildi ekki vera nærri Terry. Rio Ferdinand tók við bandinu af Terry á sínum tíma og hann er sagður vera hundfúll út í lands- liðsþjálfarann. Telur Capello hafa sýnt sér lítilsvirðingu. Capello segist hafa reynt að boða Rio á fund síðasta miðviku- dag vegna málsins en Rio hafi ekki viljað mæta. Capello segist ekki hafa neinar skýringar. Dramatíkin í kringum þetta blessaða fyrirliðaband heldur því áfram. - hbg Terry aftur orðinn fyrirliði: Rio í fýlu FÆR BANDIÐ AFTUR John Terry verður kominn með fyrirliðabandið í næsta leik. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES HANDBOLTI Hamburg steig ansi stórt skref í átt að þýska meist- aratitlinum í gær er liðið valt- aði yfir lið Dags Sigurðssonar, Füchse Berlin. Hamburg var miklu sterkara frá upphafi og leiddi 19-9 í leik- hléi. Þegar upp var staðið vann Hamburg 13 marka sigur, 22-35. Alexander Petersson skoraði tvö mörk fyrir Berlin í leiknum. Kiel er enn fjórum stigum á eftir Hamburg en Kiel vann sinn leik á sama tíma í gær. Kiel lék þá gegn nágrönnum sínum í Flens- burg og vann stórsigur, 38-26. Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir Kiel í leiknum. - hbg Þýski handboltinn: Hamburg í kjörstöðu ARON PÁLMARSSON Hér á fullri ferð í leiknum gegn Flensburg í gær. NORDIC PHOTOS/BONGARTS FÓTBOLTI Chelsea er á mikilli sigl- ingu þessa dagana og var betra liðið í leiknum gegn Man. City í gær. Chelsea er níu stigum á eftir toppliði Man. Utd en á leik inni. Svo á Chelsea eftir að mæta United í deildinni þannig að það er erfitt að afskrifa meistarana í barátt- unni. Brasilíumaðurinn David Luiz heldur áfram að slá í gegn hjá Chelsea en hann braut ísinn með góðu skallamarki gegn Man. City í gær. Michael Essien segir að þessi skrautlegi Brasilíumaður hafi mjög góð áhrif á hópinn hjá félaginu. „Hann hefur verið frábær síðan hann kom. Chelsea þarf á svona leikmönnum að halda. Hann er alveg magnaður,“ sagði Essien um Luiz sem er búinn að skora tvö mörk á meðan 50 milljón punda maðurinn Fernando Torres hefur ekki enn tekist að skora. Torres var enn og aftur slakur í gær. Essien veit að Chelsea er að blanda sér í toppslaginn af fullri alvöru en er með báða fætur á jörð- inni. „Við tökum einn leik í einu og sjáum svo hvað gerist. Við verðum að halda áfram að trúa því að við getum unnið deildina. Það er mikið eftir og við verðum að berjast fyrir hverju stigi. Þessi sigur var mjög mikilvægur en við þurftum að hafa fyrir sigrinum,“ sagði Essien. Liverpool vann afar sterkan úti- sigur á Sunderland. Smá heppnis- stimpill var yfir sigri liðsins enda fékk Liverpool gefins víti sem skil- aði þeim fyrra marki leiksins. Sem fyrr var mikið talað um framtíð Kenny Dalglish, stjóra Liverpool, eftir leikinn en það er beðið eftir því að forráðamenn Liverpool bjóði honum langtímasamning. Sjálfur er Dalglish pollrólegur. „Blöðin segja að ég hafi beðið um fjögurra ára samning. Ég kannast ekki við það. Svo sá ég að mér hefði verið boðinn tveggja ára samningur. Ég hef ekki séð það til- boð,“ sagði Dalglish yfirvegaður en hann kippir sér lítið upp við fréttir fjölmiðlanna. „Ég hef ekkert að segja fyrr en það er frá einhverju að segja. Það er ekkert vandamál hjá mér og það er engin pressa á neinum. Það eru hagsmunir félagsins sem skipta mig mestu máli.“ Dalglish vildi lítið tjá sig um vítið umdeilda. „Ég sá þetta ekki almennilega þar sem ég var. Það sem skiptir máli er að strákarnir lögðu mikið á sig og skiluðu góðu verki,“ sagði Dalglish en það var dómarinn vinalegi, Kevin Friend, sem ákvað að dæma víti eftir að hafa ráðfært sig við aðstoðardóm- arann. „Ég sá á sjónvarpsmyndum í hálfleik að þetta var ekki víti en ég hélt upprunalega að þetta hefði verið víti. Þetta féll með okkur,“ sagði Jamie Carragher, varnar- maður Liverpool. henry@frettabladid.is Chelsea nálgast toppinn Chelsea er komið í bullandi toppbaráttu eftir sanngjarnan sigur á Man. City, 2-0, í uppgjöri ríku liðanna. Brasilíumaðurinn David Luiz hefur góð áhrif á lið Chelsea og gengur honum mun betur að skora fyrir Chelsea en Fernando Torres. BA(R)NVÆNIR Luis Suarez fagnaði marki sínu með því að heiðra Lucas Leiva sem var að eignast barn. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES MAGNAÐUR David Luiz er að slá í gegn hjá Chelsea og hann skoraði mikilvægt mark gegn Man. City í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.