Sameiningin - 01.12.1918, Qupperneq 6
294
afl hafði um sig- búið sérstaldega í miðveldunum í Evrópu
og svo bundist samsæri til sóknar og varnar við leifar
liins forna kúgunarvalds, sem enn stóð í blóma á Tyrk-
landi og sumstaðar á Balkanskaga, þar sem enn var nið-
dimt miðalda myrkur. ldöfuð þessarar ófreskju einveld-
isins var keisaradæmið þýzka.
Það gat ekki hjá því farið, að öflum þessum slægi
saman. Augljóst er það og orðið nú, að einvaldsliðið og
ofunnenna sambandið hafði gert sér það ljóst, að líf sitt
ætti það undir því komið, að verða fyrri til og bæla með
valdi og kæfa lýðstjórnar lmgsjónirnar. Áætlanir voru
því gerðar, ráð lögð og alt var til reiðu, svo brjóta mætti
heiminn undir sig- og leggja liann að fótum hátignarinnar
í Berlín, þar sem nýtt Bómaveldi skyldi stofna, er réði
yfir öllum heimi. Þegar alt var í haginn búið og óska-
stundin komin, var óhappa-atvik notað til þess að stökkva
út úr hýðinu og slá hramminum á óviðbúnar þjóðirnar.
Þannig hófst stríðið. Saga þess verður nú ekki sögð til
hlítar. En því lengur, sem leið á stríðið, því meir söfn-
uðuist saman til varnar gegn heimsofbeldinu flestar lýð-
frjálsar þjóðir. Til Parísarborgar var för ofbeldisdýrs-
ins heitið, því þar þurfti fyrst af öllu að kæfa elda frelsis-
ins, sem logað höfðu frá því á tíð stjórnarbyltingarinnar,
og’Iýst höfðu öðrum þjóðum fram á brautir frelsisins. En
þangað varð aldrei komist Bretland hið mikla, þó óvið-
búið væri, kom til sögunnar með frelsissinnum á megin-
landinu. Engum vafa er það bundið, að England hefir
séð sig knúð til þess að skerast í leikinn, af ótta fyrir því,
að yrði. ofbeldið ofan á á megiidandinu, þá væri og' riti um
frelsi og lýðstjórnarliugsjónir sínar. Og þó hefði England
og' nýlendurnar í brezka samveldinu lfklega ekki komið
svo fljótt og kröftulega til hjálpar, ef ekki liefði verið
fyrir glæpinn mesta í mannkynssögunni síðan í fornöld,
glæpinn gegn Bel'gíu. Frá þeirri stundu stóð ljónið
brezka í vegi hins mannýga nauts er bölvandi fór um
Belgíu og reif upp jörðina. Hver sögulok |)ó liefðu orðið
er óvíst, ef ekki hefði komið drekinn úr vestri. Banda-
ríkin í Ameríku, sem sjálf liöfðu á sinni tíð keypt frelsi
sitt dýru verði, stóðu lijá og liorfðu á öflin tvö berjast
upp á líf og dauða í Evrópu. Lengi stóðu þau aðgerðar-