Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1919, Blaðsíða 17

Sameiningin - 01.04.1919, Blaðsíða 17
47 mn á lífi og starfi kirkjunnar, 'þ'á vonurn vér, að -livonær sem einliverjum verður eittiivað á í samvinnunni, þá verði lruganum um það kent, fremur en ihjartanu; og er það í samræmi við 1. Kor. 13. 3. Það er hvorki trú né kenning lútersku kirkjunn- ar, að hún sé hin heilaga aímenna kirkja, eða eina sálu- lijálplega kirkjan. Þvert á móti trúir hún því, að í öllum kirkjudeildum, sem af guðlegum sannleik heilagrar ritn- ingar hafa nógu inikið meSferðis til aS endurfæSa börn Guðs, sé sannkristna menn að finna. En liitt er trú lútersku kirkjunnar, að í öllu verulegu beri að skoða hana sem hina postullegu kirkju, sem kennir G-uðs orð ómengað og fer með sakramentin eftir innsetningarorð- um Drottins sjáilfs. Kirkja vor skoðar það því sem sjálfsagða megin- reglu, að meðlimir hennar sæki messur í sínum eigin kirkjum, lúti sína eigin presta skíra börn sín og neyti heilagrar kvöldmáltíðar við slín eigin ölturu; enn fremur, að það sé varhugavert og miður lúterskt, að heimila klerkum og leikmönnum úr öðrum kirkjudeildum aðgang að prédikunarstól og altari í kirkjum vorum. 4. Sérhvert félag, sem hefir einhvers konar trúar- siði um hönd og ieyfir ekki, að nefnt sé þar nafn Jesú Krists eða iieilagrar þrenninigar, eða kennir að verkin gjöri menn hólþna, hlýtur eftir heilagri ritning að skoð- ast í eðli sínu mótsnúið trúarbrögðum kirkjunnar, og vorrar kirkju sérstaklega, hvort sem félagsmenn g’jöra sér nokkra grein eða enga fyrir andstæðunni. Vér heitum liver öðrum því, að vér skulum með hug- heilu liðsinni og djarflegum vitnisburði kosta kapps um að fá réttan og kristilegan skilning á málum þessum við- urkendan, hver hjá sínu kirkjufélagi.” Var svo samþykt að fá National Council í hendur fundarályktun þessa, með þeim tilmælum, að sá félags- skapur beri hana svo undir kirkjufélögin, og mæli með því, að þau veiti henni fúllgilding. Verði ])að, þá er meiri hluti lútersku kirkjunnar í þessu landi búinn að koma sér saman um flest þau atriði, siem áður hafa valdið allmiklum deilum og staðið í vegi fyrir sameining Að rekja sögu lúterskrar trúarbaráttu hér megin

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.