Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1919, Blaðsíða 13

Sameiningin - 01.04.1919, Blaðsíða 13
43 um, þar sem líkt stóð á. Risavaxinn iðnaður ýiniskonar, sem ófriðurinn Ieidcli af sér, safnaði -saman miklum s;pg verkamanna úr öllum áttum á ýmsar atvinnustöðvar í landinu. 1 þeirn mannfjölda var auðvitað mikið af lútersku fólki, sem komið var alstaðar að, alveg eins og í herbúðunum, og sanwinnuþörfin því litlu minni. Hafa því mörg félög fyibt sér saman um starfið rneðal þessa fólks. Enn annað hefir mörgum leiðtogunum skilist að nauðsynlegt væri. Ivirkja vor þarf að geta látið til sín taka ,sem heild í málum þeim öllum, kirkjulegum og þjóð- legum, isem Ihana varða. Og eins, ef hún vill rétta lijálp- arhönd trúhræðrum vorum í Norðurálfu—sem víða hafa orðið fyrir miklum áföillum, bæði í ófriðnum sjálfum, og eins í róstunum, sem honum liafa fylgt—þá þurfa hér- lendir Lútersmenn að vera í samlögum um það verk, svo að vel fari. Lang-flest hafa lútersku félögin orðið á eitt sátt í þessu efni, og samvinnan, sem átti upptök sín í trúboði og sállgæslustarfi meðal lúterskra hermanna, hefir nú færst yfir á önnur svið og er komin á fastan fót. Á síð- asta hausti var sett alf stokkunum nokkurs konar sam- vinnunefnd eða bandálags-ráðaneyti, sem heitir “Na- tional Lutheran Council.” Sú stofnun á, skilst mér, að beita sér fyrir samvinnunni, sem þegar var ’hafin, og færa kvíarnar talsvert út. 1 ráði þessu hafa flest lútersku félögin erindsreka—ekki þó Missouringar, auð- vitað. Eitt verkefni nefndarinnar átti að vera það, að koma í veg fyrir árekstur og tvíverknað á heimatrúboðs- svæðinu, og hjálpa hinum ýmsu felögum til þess að skifta þar með isér verkum í bróðerni. En þegar út í þá sálma var farið, þá kom það fljótt í Ijós, að sú samvinna gat ekki komist á góðan rekspöl, nema öll félögin, sem gengið höfðu í bandalag þetta, gæti með sameiginlegri vfirlýs- ing sýnt það og sannað, að hjá þeim öllum ríkti sami skillningur á grundvallaratriðum trúarinnar. Fyrir því voru félögin beðin að senda erindsreka á sérstakan fund, er ræða iskyldi málið og gjöra þær samþyktir, sem nauð- synlega þvrfti, um trúar-eining þessa nýja bandalags.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.