Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1919, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.04.1919, Blaðsíða 4
34 Lífið og ódauðleikinn. (Páska-hugleiðing). Hjarta yffar skelfist ekki; trúiff á Guff og trúiff á mig. i í hiísi föffur míns eru mörg híbýli; væri ekki svo, mundi eg þá hafa sagt yffur, aff eg fœri burt aff búa yffur staðf Og þegar eg er farinn burt og hefi búiff yffur staff, kem eg aftur og mun taka yffur til mín, til þess aff þér séuff og þar sem eg er.—Jóh. 14, 1-3. Elzta ráðgáta mannsins er dauðinn. Hann er einnig ráðgátan yngsta. Og gáta sú er jafnvandráðin nú eins og þegar móðir vor Eva horfði fyrsta sinn á lík Abels sonar síns og undraðist hinn djúpa svefn, sem siginn var á augu hins fyrsta manns, er dauðinn vafði örmum sínum. Fyrirbrigði það, er nefnum vér dauða, þekkjum vér að eins frá annari. hlið, þeirri ihlið, sem snýr að oss. En hvað ier hinum megin? Hver áhrif hefir það, sem þar er, á sérvoruleik og áframhald sjálfstæðs og sjálfs- meðvitandi lífs? Er það víst, að sénlíf einstaklingsins þoli þá raun, að .sýnileg mynd þess hverfi og áþreifanleg efni þess leysist öll í sundur! Fæðist nýtt líf í dyrum dauðans, eða opnast þær dyr að eilífri auðn? Haldi lífið áfram eftir það að líkaminn devr, hvemig verður þá líf vort og hverjum kjörum liáð hinum megin? Munum vér fá að vita og vilja, óska og elska, iðja og biðja líka þar ? Sú stund er nálæg oss öllum, þá alt hið jarðneska hverfur oss; þá árstíðirnar komandi og farandi vekja hjá oss framar Ihvorki þörf né iþrá; þá vér ekki fáum framar vaknað við ylgeisla morgunsárins, né horft hug- fangmir á dýrð sólsetursins í vestrinu, né lyft augum vor- um upp til alstimdrar festingar himinsins bláa; þá kliður fuglanna og niður lækjanna nær ekki til hlusta vorra; ])á vér sjáumst ei framar á götunum, sem vér nú daglega göngum, í húsunum þar vér nú búum, í kirkjunum þar sem vér biðjum Guð; þá vér ekki lengur fáum sáð akra vora og séð kornið og grösin og blómin spretta; þá vér ekki lengur fáum sótt fundi vina vorra, bundist handa- böndum og skifst kveðjuorðum við bræður vora; þá vér ekki fáum hugleitt hvílíkur leikur lífsins er, ekki gert

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.