Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1919, Blaðsíða 14

Sameiningin - 01.04.1919, Blaðsíða 14
44 Fundur sá var íialdinn í Cliieag'o, nær miðjum Marz- miánuði. Erindsrekar voru Iþar mættir frá átta aðal- deildum lútersku kirkjunnar hér í landi: United Luthera Church, (Nonvegian) Lutheran Church, Augustana Synod, Joint Synod of Ohio, lowa Synod, United Danish Synod, Free Church og Buffalo Synod. Þeir voru tuttugu talsins, og í þeim hópi sumir hinna allra-lærðustu guðfræðinga, sem lúterska kirkjan hefir á að skipa hér megin hafs. Samþyktin, fsem hér fer á eftir, er ávöxturinn af starfi þess fundar. Hún er afar-merkileg, fvrir margra hluta sakir. Þar er markaður játningar-grunnurinn, sem handalagið—National Lutheran CLmncil—skuli hvíla á, og um leið sýnit og sannað, að mikill meiri hluti lútersku kirkjunnar í landi þessu stendur enn á gömlum merg, evangelískum og hé-lúterskum. í annan stað er orðalagið skýrt og ákveðið. Þar hefir hvergi verið fal- inn gamall ágreiningur í þokukendum orðatiltækjum, eins og stundum vill verða, þeg’ar reynt er með samþykt- um að eyða verulegum skoðanamun. Og öll er samþyktin á vegum sögulegs kristindóms; Iþar er engum nýmælum ■eða efasemdum gefið undir fótinn. Þegar litið er á trú- arlegt ástand Mótmælenda-kirkjunnar í heild sinni, eins 'Og það er nú, þá verður samþykt þessi enn markverðari. Engin önnur kirkjudeild prótestantísk hefði getað í ein- ingu og friði fengið samþykta jafn-skorinorða játning trúarinnar og um leið jafn samróma við sögulegan krist- indóm, eins og Iþessi er. Samþvktin hljóðar á þessa leið í lauslegri þýðing: — “Inngangsorð: Öll hin lútersku kirkjufélög, sem gjörst hafa meðlim- ir í National Lutheran Council, samlþykkja þann kenn- ingar-grundvöli með einum huga, að kanoniskar bækur gamia og nýja testamentisins sé óskeikult og innblásið orð Drottins og liin eina regia fyrir trú manna, kenning og lífi; tenn fremur Að Ágsborgarjátningin óbreytt og Fræði Lúters hin minni fari með réttar skýringar á kenningum heilagrar ritningar, og veita því nefnd kirkjufélög ritum þessum skýlausa viðurkenning sem játningum sínum; en

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.