Sameiningin - 01.07.1919, Blaðsíða 3
^ainetntngtn.
Mánaðarrit til stuð'nincjs kirlcju og lcristindómi íslandinga
gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vestrheimi
XXXIV. árg. WINNIPEG, JÚLÍ, 1919 No. 5
Kirkjuþingið.
Það var haldið eins og.til stóð dagana 25.—30. Júní,
í Árborg.
Þingið sátu 60 manns, þar af voru 14 prestvígðir.
Móttökur voru ágætar og meðferð á gestum hjá
Árdals-söfnuði. Nágranna-söfnuðirnir sýndu og gest-
risni mikla. Var ekið í bílum til heimboða út að Víði,
austur að Hnausum og norður þaðan til Riverton.
Á undan þingsetning var vígð kirkjan í Árborg —
mvndarlegt guðshús, fullgert að öllu leyti og skuldlaust.
Við þingsetningu prédikaði séra Friðrik Hallgrímsson
og gengu þingmenn til altaris.
Skýrslur emibættismanna og starfsnefnda báru með
sér, að hagur stofnana og fyrirtækja félagsins er fremur
góður. Tala safnaðanna er 62. Gjörðabók þingsins flyt-
ur allar skýrslur og yfirlit vfir ástandið, og er til hennar
vísað um það alt.
Fyrirlestrar tveir voru fluttir á þinginu. Flutti
annan séra Haraldur Sigmar og nefnist erindi það
Vandamál á vegamótum. Hinn fyrirlesturinn flutti séra
N. Steingr. Thorláksson um efnið: Líf eða dauði. Kvöld-
fundur einn var helgaður umræðum um trúargrundvöll
þann, er lúterska kirkjan í Ameríku hefir komið sér sam-
an um fyrir hönd fulltrúa sinna í The Lutheran National
Council.
Á dagskrá þingsins voru 14 aðal-mál. Voru þrjú
þeirra ný og skal geta þeirra liér stuttlega, en að öðru
leyti vísað til prentaðrar gjörðaliókar um alt starf
þingsins.