Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1919, Blaðsíða 5

Sameiningin - 01.07.1919, Blaðsíða 5
127 Forseti lagði og til að yfirlýsingar fyrri kirkjuþinga (1909 og 1910) út af deilunni, væri úr gildi numdar, en bundið sig við grundvallarlögin ein. Því máli fylgdu þeir sérstaklegp, séra Hjörtur Leó, séra Kristinn Olafsson, séra Haraldur Sigmiar, Séra Friðrik Hallgrímsson og séra Rúnólfur Marteinsson; en á móti mæltu einkum þeir séra Jóhann Bjarnason og séra Jónas Sigurðsson. Áreið- anlega hafði málið fylgi mikils meirahluta þingmanna, en með því að óttast var, að óánægja kynni að verða á nokkrnm stöðum ef samþykt yrði slík yfirlýsing, sá nefnd, er um málið fjallaði, sér ekki fært að leggja til um frek- ari aðgjörðir í málinu, en þær, að kirkjuþingið bjóði söfn- uðunum til sín að koma og hjá sér að vera á játningar- grnndvelli grundvallarlaganna — þar sem menn höfðu áður staðið saman frá upphafi. Var sú tillaga nefndar- innar samþykt í einu hljóði. Allir embættismemi kirkjufélagsins voru endurkosn- ir: Forseti séra Björn B. Jónsson, varaforseti séra Kristinn Iv. Ólafsson, skrifari séra Friðrik Hallgxúms- son, varaskrifari séra Jóhann Bjarnason, féhirðir Jón J. Vopni, varaféhirðir Jón J. Bíldfell. Sú breyting var gjörð á fyrirkomulagi nefnda, að í stað margra, er áður hafa verið, kemur ein framkvæmd- arnefnd. Hefir hún umsjón allra mála milli þinga, nema þeirra, sem lúta að hinum löggiltu stofnunum, og þeim, er embættismönnum eru falin samkvæmt grundvallarlög- um. Formaður framkvæmdarnefndarinnar er forseti kirkjufélagsins, en hinir nefndarmennirnir eru séra Kristinn K. Ólafsson, séra Friðr. Hallgrímsson, séra Jóhann Bjarnason, hr. Jón J. Vopni, hr. Halldór S. Bar- dal, og hr. John J. Swanson. í skólaráð voru endurkosnir þeir séra N. S. Thor- láksson og hr. Jón J. Bíldfell, en í stað dr. B. J. Brand- son, sem baðst undan endurkosningu, var kosinn séra Kristinn Iv. Ólafsson. Allir til þriggja ára. í Betel-stjórnina var dr. Jón Stefánsson endurkosinn til þriggja ára. Ritstjórar “Sameiningarinnar” voru kosnir: séra Björn B. Jónsson og séra Guttormur Guttormsson.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.