Sameiningin - 01.07.1919, Qupperneq 12
134
mál, sem þeir verða að leggja sig fram að leysa úr, er mest
reyna að greiða úr vandamálum þjóðanna og heimsins.
pað er vandi mikill og margvíslegur á sviði stjórnmála
og mannfélagsmála, og það er líka mikill og margvíslegur
vandi fyrir dyrum kirkjunnar. Já, í kirkjunni eru mörg
íhugunarverð vandamál á dagskrá; því í raun og veru eru
öll þessi vandamál í þjóðlífinu og mannlífinu, ef ekki bein-
línis þá óbeinlínis, vandamál kirkjunnar. pví öll mál mann-
anna þarf kirkjan að láta sig varða og reyna að koma þeim
inn á brautir réttlætis og sannleika.
Um sum þessi vandamál, sem nú eru á dagskrá, langar
mig til að tala í erindi þessu. Langt er frá því, að eg búist
við að hreyfa við öllum vandamálum, sem á dagskrá eru,
og langt er frá að eg ímyndi mér, að eg geti gefið fullnægj-
andi úrlausnir í þeim málum, sem eg minnist á. Eg vil
vekja máls á þeim til þess ef vera mætti, að meira yrði eftir-
leiðis um þau hugsað og talað af kirkjunnar mönnum; um
leið vildi eg þá í allri auðmýkt benda á einhverjar möguleg-
ar úrlausnir. En ef mér gæti aðeins tekist að vekja lifandi
:umhugsun og umtal meðal kirkjufólks yfirleitt á þessum
vandamálum, finst mér, að ekki verði með öllu til ónýtis
þessi ófullkomna og veikburða tilraun mín til að tala um
þau mál.
iVIenn líta svo á, — og eflaust er það rétt athugað — að
í héimínum eigi nú að rísa upp, og sé þegar upp að renna
nýr frelsisdagur, — frelsisdagur fyrir smáar, fátækar og
ístöðulitlar þjóðir, og fyrir undirokaða, fátæka og umkomu-
litla menn, ekki síður en aðra. Hjartanlega fögnum vér
víst þeim nýja frelsisdegi, svo mjög oft sem þannig hefir
farið á þessari jörð, að hið smáa og lítilmótlega hefir verið
meir eða minna undirokað. En nú verður ef til vill spurt:
“Hvaða vandamál stendur þá í sambandi við þessa fögru
sólarupprás mannfrelsis í heiminum ?” pað vandamál staf-
ar af því, að menn kalla stundum frelsi það, sem ekki er
frelsi í raun og sannleika. Og menn sækjast stundum eftir
því frjálsræði, sem fyrirlítur rétt lög, og treður á rétti með-
bræðranna, í stað þess, að leita þess frelsis, sem í sannleika
gjörir mann frjálsan. par liggur, skilst mér, vandinn í
þessu sambandi. — Ef þjóðirnar nota sér frelsisdaginn nýja
til þess að innleiða stjórnleysi, óhlýðni við lög Guðs, og
taumlausan lifnað í hvívetna, þá verður frjálsræðið þeim
það slys, sem ekki verður auðveldlega aftur bætt, og ef ein-
staklingar nota sér frelsisdaginn á svipaðan hátt, þá hlýt-