Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1919, Page 17

Sameiningin - 01.07.1919, Page 17
139 um sagt, að >að sé þörf á breytingum og umbótum í kirkj- unni sjálfri, til þess að hún geti framvegis fullnægt þrá og þörfum þeirra í mannfélaginu, sem útaf hörmungum, alvöru og þá líka lærdómi hins mikla og skelfilega heimsstríðs hafi fengið nýja útsýn, og komist að þeirri niðurstöðu, að kirkj- an fari ekki rétt með umboð sitt. pað er sagt, að margt og mikið sé að hjá kirkjunni, að þar sé þörf á miklu um’oygg- ingarstarfi, miklum breytingum, miklum umbötum. Hér eins og víðar hafa i komist að hættulegar öfgar, þannig vaxnar, að mér virðist, að ef þær væru teknar til greina yrði það stórt slys fyrir kirkjuna og mannfélagið. Sprotnar eru sumar aðfinslurnar sjálfsagt af óhug til kirkjunnar og ef til vill sjálfsagt af óhug tij þess boðskapar, sem kirkjan flytur. Og verður því að líta á þær svo sem margan annan andblástur og jafnvel ofsókn, sem kirkjan sí og æ verður að þola á þessari jörð. En það er þó langt frá því, að allar þessar aðfinslur og tillögur um breytingar og umbætur séu af þeim toga spunnar. Sumar þeirra eru frá einlægum og velviljuðum mönnum komnar, sem þrá framfarir og breyt- ingar og finst þær bráðnauðsynlegar til blessunar fyrir kirkjuna, og til eflingar þeim boðskap, sem hún ílytur. En af næsta eðlilegum orsökum kennir þar stundum líka alí- mikilla öfga. Stríðstíma-hugsunin var óhjákvæmilega öfga- kend. Sá mikli hraði, og sú margvíslega skelfing, sem þá var, hafði þau áhrif, sem tæpast var mót von. Hugurinn fastbatt á svipstundu margt það, sem róleg og staðföst hugsun síðar finnur að hafi verið öfgakent og rangt. En þegar í einlægni er talað, þarf kirkjan ávalt að hlusta með nærgætni. Hún þarf að láta sér að haldi koma þær bend- ingar, sem eru góðar og réttmætar, hvaðan sem þær kunna að koma. Hér er vissulega alvarlegt vandamál á ferðum. pað er vandi að fást við þessar tillögur um breytingar og endurbætur á kirkjunni. pað er vandi að rata rétta leið, ef inn á að leiða umbætur, hollar og blessandi. Og það er víst ekki sízt vandi að koma þeim umbótum að, því þær þyrftu, skilst mér, ílestar að eiga rætur sínar í hjörtum einstaklinganna, sem mynda kirkjuna, fremur en í hinum ytri umbúðum. En um þessi vandamál þarf þó kirkjan að hugsa, og við þau þarf hún í allri einlægni að fást, og leggja sig fram með öllu afli í anda og krafti Krists, og lagfæra og bæta það, sem að er hjá henni, bæði í starfi hennar, og í framsetningu þess boðskapar, sem hún flytur. Sú skoðun var nokkuð almenn, þegar stríðið var að byrja og jafnvel fram undir endalok þess, að hin mikla al-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.