Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1922, Síða 4

Sameiningin - 01.09.1922, Síða 4
260 fyrir rikisþingiS mikla í Ágsborg, samkvæmt skipun keisaran:, heildaryfirlit yfir kenningu siðbótarmanna, var Melankton til þess kjörinn að færa játninguna í letur, og naut hann' við það vandasama starf góðrar aðstoðar annara lærdómsmanna, svo sem Jústusar Jónasar og Brueck kanzlara. Sjálfur varð Lúter þá að sitja í Kóborg, en með uppkast af játninguni hafði ver- ið sent til hans áður en hún var horin fram. Það var 25. dag júnímánaðar 1530 að játningin var lögð fyrir ríkisþingið Ágsborg. Er það hin óbreytta Agsborgarjátning. II. TILGANGUR JATNINGANNA. Játningar fornkirkjunnar bera það á engan hátt með sér, hvernig þær ætlist sjálfar til að á þær sé litið. Þar er ekkert orð um tilgang þeirra, eða það sæti, er þeim beri að skipa. En saga þeirra sýnir, að þær voru breytingum háðar og við þær var aukið eftir kröfum hvers tíma. Siðbótarmenn sextándu aldar og eftirmenn þeirra haía eftir sig látið all-ljósan vitnisburð um aðstöðu þeirra við játn- ingar fornaldarinnar og tilgang sinna eigin játninga. 1 formálanum fyrir Ágsborgarjátningunni taka siðbótar- mennirnir það skýrt fram, a4ð þeir aðhy’llist trúargrundvöll þann, sem lagður er í viðurkendri trúfræði fornkirkjunnar. Var þeim það áhugamál, að alþjóð vissi, að þeir ekki vildu stofna nýjA kirkju né flytja nýja trú, heldur leiða kirkjuna út úr villi- myrkri kaþólskunnar, þangað, sem hún í upphafi var. Þó eru það ekki játningarnar sem játningar, sem þeir verja, heklur kenningar þær sjálfar, er játningarnar geyma, og þeir hrekja sömu villur, sem játningarnar fornu mótmæltu. Sýna þeir fornritum þessum mestu lotningu, en auðséð er, að þeir hafa ekki álitið það tilgang játninganna, að binda um aldur og æfi skilning mannanna á öllum atriðum heilagrar ritningar, svo ekk'. rnætti þar aukin rannsókn eða sjálfstæð hugsun komast að frain- ar. Einkum er að þessu leyti auðsæ aðstaða I.úters sjálfs, bar sem hann beinlínis leiðrétti eitt atriði i sjálfri hinni postullegu trúarjátning. Lúter benti á, að rangt væri að segja “upprisa holdsins” í þriðju greininni. Það ætti að vera “upprisa likatn- ans.” Eins og áður hefir sagt verið, voru orðin “upprisa holds- ins” sett inn í post. játninguna á annari öld út úr deilu við rationalista þeirrar tíðar um það, hvað um hold mannsins yrði. í vörninni gegn afneitun upprisunnar leiddust menn út í þæt öfgar, er orðin bera meö sér, að hiö náttúrlega hold mannsiris

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.