Sameiningin - 01.09.1922, Blaðsíða 22
278
iS litla þökk fyrir, hvorki frá fslendingum né öSrum. John
Taylor var trúmaSur, og setti traust sitt til guSs. ÞaS mátti
svo heita, aS hann stigi hvert spor í trausti til guSs, og hann
baS nótt og dag fyrir íslendingum og velferS þeirra.1 Hann
trúSi því statt og stöSugt, aS ‘'nema Drottinn byggi húsiS, þá
erfiSa smiSirnir til einkis”. Vér sem nú lifum, sjáum, aS
smiöirnir hafa ekki erfiSaS til einkis. Drottinn hefir veriS
meS í verkinu, og hönd forsjónarinnar breiðir vernd sína yfir
bústaSi lifenda og grafir dáinna.
MeS aSstoö Drottins hafa brautrySjendur þessir reist sér
varanlegan minnisvarSa.
Árleg minningargjöf.
Nú aftur hefir ÞórSur Sigmundsson í GarSarbygS í NorS-
ur Dakota minst konu sinnar látinnar, Ástu Sigmundsson á
afmælisdegi hennar i. ágúst, 1922, meS gjöf til einnar stofnun-
ar kirkjufélagsins, Betel. Á hverju ári síðan kona hans lé'.t
hefir hann á afmælisdegi hennar gefiS til stofnana kirkjufé-
lagsins álitlegar upphæöir til aS heiSra minningu hennar. Er
þetta fagur siSur og til eftirbreytni fyrir aöra. Gjöfinni
fylgja meSal annars þessi ummæli frá gefandanum í bréfi til
séra Kristins Ólafsonar:
“Þegar náS GuSs hefir þerraS öll tárin og skírt og fágaS
hina hjálparþurfandi mannssál í táradögg hans endurskapandi
kærleika, og látiS hana bergja á svalalindum eilífs unaðar, jafn-
vel hér í hinum þröngu dalverpum hins , skilningssljófa mann-
lífs, þá fer hana aS langa til þess hvaS helzt, aS inna af hendi
eitthvaS í þjónustu Drottins, sem samsvarar aö einhverju leyti
kröfu hinnar guðlegu náSar. Þess vegna datt mér í hug,
kæri vin, aS nema staSar ofurlitla stund og minnast kærleika
skapara ntíns mér auSsýndan, meS því aS gefa mér þann ást-
vin um stund hér í tímanum, sem kunni svo vel aS láta hiS góSa
í mínum innra manni vaxa, en ekki minka.
Já, kæri vin, eg ætlá aö minnast Ástu sál. Sigmundsson
á afmælisdegi hennar 1. ágúst 1922, og finn eg í því sælurika
nautn og háleitan unaS — meS því að senda þér 25 dollara, sem
eg ætlast til aS sé gjöf til gamalmennahælisins Betel aö Gimli.
Þessari minningargjöf fylgja frá mér einlægar heillaóskir til
lilutaSeigandi stofnunar og fögnuSur, sem ekki verður frá mér
tekinn, þvi hann á rót sina aS rekja til frækorna GuSs ríkis 1