Sameiningin - 01.09.1922, Side 14
270
og þar er höfuðból guðspekinga í öllum heimi—International
Headquarters. H;efir ekki verið neitt til sparaS aS gera þaö
höfuSból sem veglegast. Fyrir 22 árum síöan var þar gróöur-
laus eyöimörk, en nú er þar hinn fegursti listigarður og aldin-
garður. Það eru fullþroskaðir ávextir á trjánum í þeim aldin-
garði í hverjum mánuði ársins. Öllu er niður raðað af frábærri
smekkvísi og list. Svo er einkennilega fögrum byggingum kom-
ið fyrir innan um þessa náttúrudýrð. Þarna er skóli guðspek-
inga og ýmislegt annað, er tilheyrir starfi þeirra. Sú rækt,
sem þarna er lögð við sanna fegurð, er aðdáanleg. Ekki sízt
mun lifa í minni mínu 'hið gríska leiksvið fGreek Tiheatreý
undir berum himni, sem komið er fyrir í gjá einni er liggur
ofan að Kyrrahafinu. Er þetta leiksvið guðspekinga það fyrsta
af þeirri tegund í Ameríku. Það er töfrandi fegurð að horfa
úr áhorfenda bekkjunum yfir leiksviðið og ofan gljúfrið, ekki
sízt þegar sólin er komin að þvi ganga undir. Þá má líka nefna
hina svo kölluðu “friðar höll” (Peace Palace). Kona, sem
ekkert hafði numið i byggingarlist, sagði fyrir um hvernig sú
bygging skyldi vera. Og ekki verður annað sagt, en að henni
hafi vel tekist. Fegurra samræmi í litum hefi eg ekki annars-
staðar séð, Það var miklu áhrifameiri prédikun fyrir mig
það sem eg sá þarna, en þegar eg fór seinna að lesa rit, sem
eg keypti og mér voru gefin af leiðsögumanninum, sem sýndi
mér alt þetta. Sannast að segja dauðleiddust mér ritin.
Balbóa Park er stór listigarður í San Diego, þar sem sýn-
ingin mikla var haldin. Standa enn þá byggingarnar, og er þar
mikið af söfnum, sem eru leifar frá sýningunni. Er þar margt
að sjá, en þarf meiri tíma til að njóta þess, en eg hafði ráð á.
Þar er í einni byggingunni kapella, sem nákvæmlega sýnir,
hvernig trúboðskirkjunum fMissions), sem enn þá standa í
California, er háttað hið innra. Sá eg eina af þeim trúboðs-
stöðvum, þá er kend er við San Juan el Capistrano.
Það fór svo vel um mig hjá Schevings fólkinu, og það
lagði sig svo fram að gera alt mér til ánægju og skemtunar, að
eg hefði gjarnan viljað vera þar lengur en þá þrjá daga, sem
tíminn leyfði, til þess að eg gæti komist heim fyrir páska. En
fyrir páska varð eg að komast heim. Og Stígur beið mín í
Tx>s Angeles. Þaðan fórum við svo af stað heim með Union
Pacific brautinni til Salt L-ake City, með Denver og Rio Grande
brautinni þaðan til Denver, og svo með Union Pacific brautinni
áfram til Omaha. Ferðin gekk ágætlega. Við stönzuðum
fjóra tíma í Salt Lake City 0g notuðum þá vel. Kirkjuþing