Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1922, Page 20

Sameiningin - 01.09.1922, Page 20
276 í Canada og leitaðist hr. Sigtryggur Jónasson við að greiða veg þeirra og finna þeim hentugt nýlendu-svæöi. í því starfi komst hann í kynni viö trúboöa nokkurn, er John Taylor hét og viða hafði fariö og var mörgu kunnur. Mr. Taylor hreyföi því viö Sigtr. Jónason, aö leita Islendingum aö landnámi í Norövestur hluta Canada, og félst hann á það. En þá voru ástæður svo erfiðar, að án styrks úr einhverri átt varð ekki hugsað til framkvæmda. í þann tíð var Dufferin lávarður landstjóri í Canada.' Var hann kunnur Islendingum og þeim velviljaöur. Þeir John Taylor ög Sigtr. Jónasson afréðu því, að leita til landstjórnarinnar um styrk til landnáms íslendinga i Manitoba. Gekk það greiðlega og völdu þeir og þeirra félag- ar síöan nýlendusvæði á vesturströnd Winnipeg-vatns. í því gamla landnámi stendur nú Gimli-bær. Canada-stjórn fól Mr. Taylor umsjón um landnámið, en Mr. Jónasson fór út til íslands í umboði stjórnarinnar, haustið 1875. Kom hann aftur næsta sumar með þann stærsta hóp vesturfara, sem nokkurn tíma hefir fluzt af íslandi, og fór flest' það fólk til Nýja-íslands. Sama haustið, sem Sigtr. Jónasson fór til Islands, fór Mr. Taylor meö hóp íslendinga frá Ontario og settist aö á Gimli (1 októbermánuði 18751). Var þar Þa eyðiskógur og óbygt land. Undir leiðsögn John Taylors hófst landnámið í Nýja Islandi og með umsjón hans tók fólkið að búa um sig þar. Hinn fyrsta vetur mætti það miklum erfið- leikum og bjó við harörétti, enda dóu þá margir. En er vor- aði fengu þeir, sem eftir lifðu, nýjan kjark og ruddu sér fljótt braut til lífvænlegrar framtíðar. Næsta vetur, urðu frum- byggjar þessir, og innflytjendurnir mörgu, sem til nýlendunnar komu sumarið 1876, fyrir nýjum hörmungum, því þá geisaði bóluveikin , og sóttvörður var settur kringum bygðina. All- margir dóu þennan vetur. Eftir fyrstu árin fór smám saman að ibatna hagur manna o° fjöldi innflytjenda dreifðust út til nærliggjandi héraða, því nóg var þá af óbygðu landi nær og fjær, og vinnu að fá með aii- góðum launum. Þegar á öðru og þriðja ári fór hagur islenzku landnemanna að færast í viðunanlegt horf. Þess er vert að minnast, að svipaða raun sem íslenzku landnemarnir urðu inn- flytjendur frá öðrum þjóðum að þola, og er þrautasaga íslend- inga engin undantékning, iheldur hliðstæð saga við landnáms- sögu annara þjóðflokka. En þess skal minst, hversu iand- nemarnir fyrstu ruddu veginn til framtíðar vellíðunar, og þoldu sjálfir ótal hörmungar. “Því skulu þeir virðir vel”.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.