Sameiningin - 01.10.1922, Side 19
307
kirkjitfélagiði Nefndarmennirmr höfðu fund með sér á Gimli,
Manitoba, 30. Ágúst síðastliðinn. Var það, sem hér fer á cftir,
samþykt á fundinum:
“Tillögum þeim til þings-yfirlýsingar, er komu fram á síð-
asta kirkjuþingi, frá erindsrekum utanfélags-safnaða '(sja
Gjörðabók bls. 45 og 46), vill nefndin veita samþykki sitt, og
mœla fram með þeim á nccsta kirkjuþingi, að viðbættum orðum
þessum við liðinn I (bls. 46) : ‘og játar trú á guðdóm Jesú
Krists, samkvæmt k'enningu nýja testamentisins og postullegu
trúarjátningunni.
“Nefndin vill einnig mœla með frumvarpinu til grundvall-
laga-breytinga, með því móti, að í stað orðanna ‘viðurkennir’
(tillaga utanfélags-nefndar mn breyting á 4. gr.; bls. 45 í
Gjörðabókinni) og ‘játast undir’ (tilaga kirkjufélags-nefndar
um breyting á sömu grein, bls. 46), komi orðið ‘aðhyllist’.”
Undirsk'rif uðum var falið að tilkynna samþykt þessa söfn-
uðum þeim, er um kirkjuþings leiti í sumar tóku þátt í tilraun-
um til samkomulags. Nefndin álítur, að með þessu sé gengið
svo langt í samúðaráttina, að ekkert þurfi lengur að standa í
vegi fyrir inngöngu safnaðanna í kirkjufélagið. Vonar liún því
fastlega, að tillögur þessar nái fullnaðar-samþykt beggja máls-
aðilia.
Nefndin óskar cftir því, að bréf þetta verði lagt fyrir söfn-
uð yðar, og að hún fái, þegar ástœður leyfa, að heyra um undir-
tektirnar
Með vinsemd,
Björn B. Jónsson,
formaður.
Guttormur Guttormsson,
skrifari,
Sundar Singh.
Eftir scra Sigurð Ólafsson.
.4 ýmsiliv) tímum, og víösvegar um heim, hafa veriS uppi menn,
er sökum andlegs atgerfis og sérkennilegra hæfileika hafa heillaS
hugi samtíöarmanna sinna að sér og veriS valdandi víðtækra á-
hrifa á því svæði, sem störf þeirra voru háð.
Slíkur maður er uppi einmitt á vorum dögum og innan vébanda
kristinnnar kirkju, þótt ekki geti nein deild kirkjunnar sér i lagt
tileinkað sér hann.