Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.12.1923, Page 4

Sameiningin - 01.12.1923, Page 4
354 + ■-----■■-■«.-•■—■■->■->■-X-■■-■■-<■-■■-■■-■■-><-■■-■■-"■-■■-■■---■•{• í Jólagjöfm bezta. j t ! +------------------------------------------------------------------* “Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn”.—Jólagjöfin frá Guði er Jesús. Guð hefir gefið okiíur Jesúm í jólagjöf. Það var ekki einungis einu sinni, endur fyrir löngu, að Guð gaf mönnunum Jesúm. Guð gefur okkur Jesúm á hverju ári, hverjum degi, liverri stundu. Börnin skoða jólagjafirnar sínar vandlega, þreyt- ast aldrei á því að dást að þeim o^ þakka fyrir þær. “Nema þér verðið eins og börn,”—mælti meist- arinn. Listamaður nokkur tók ungan lærisvein sinn með sér einn dag, og gengu þeir xít í fagran skóg og með speg- ilfögrum vötnum. Það kom sólarlag. Meistarinn mælti til lærisveinsins: “Málaðu sólsetrið.” Lærisveinninn horfði þögull um stund, en svaraði loks: “Eg get ekki málað dýrð.” Við getum ekki málað dýrð Jesú. Sjálfur postul- inn, sem hafði litið Jesúm líkamlegum augum, treysti sér ekki til þess. Hann gat ekki sagt annað en það: “Vér sáum dýrð hans, dýrð sem eingetins sonar frá föður. ” Samt þreyttust augu postulans aldrei á því, að horfa á Jesúm, og hjarta hans aldrei á því, að elska Jesúm. Börnin eru ekki fyrst og fremst að hugsa um það, úr livaða efni jólagjöfin sé gjörð og hvernig hún hafi til orðið, — en þau njóta gjafarinnar eins fyrir því og láta sér þykja vænt um hana. Við kunnum ekki að aðgreina alla litina í dýrðar- ljóma Jesú. Við getum ekki málað Guð. En fegurð- arinnar njótum við eigi að síður, og elskum heitara en lífið gjöfina, sem við fengum frá Guði á jólunum.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.