Sameiningin - 01.12.1923, Page 9
359
sem lært hefir að meta áhrif Jesú Krists á mannlegt líf,
ér það,.að hann kom og kemur til mannanna, hið mesta
fagnaðarefni, sem hugsast getur, því á því hvílir sú
von, að hið sanna, góða og fagra, fái að sigra — það er
bjartasta Ijósið á vegum mannanna. Syndin og spillingin
í heiminum gerir manni svart fyrir augum, en alstaðar
þar sem áhrif frelsarans ná til, birtir mitt í dimmunni.
Erindi hans er fagnaðarerindi, því það flytur öllum
mönnum von, um viðreisn og sigur í lífinu, ef þeir vilja
þiggja hjálp Jesú Krists.
Konungurinn kemur til þín. Það er lítið um fögn-
uð jólanna lijá oss, nema hjá oss sé gleði, sem einstak-
lingum, yfir því, sem vér höfum notið af hlessun hans,
yfir því, sem vér höfum þegið af honum af fyrirgefn-
ing, friði, styrk til lífernisbetrunar, huggun í sorg, og
upplivatningu til að fylgja honum eftir. Þegar hjört-
un eru gagntekin af mikilleik þess, er ])au þannig hafa
]>egið af Jesú, þekkja menn sanna jólagleði.
En minnumst þess einnig, að konungurinn kom og
kemur til vor mannanna, ekki einungis til þess að vér
njótum, heldur líka til þess, að vér megum verða
samverkamenn hans til að leiða áhrif hans og
blessun inn í mannlífið. Það er þá líka snautt jóla-
hald, sem ekki vekur hjá oss hvatir til að gera bjart-
ara um jólin fyrir þá mörgu, er í dimmunni sitja, vegna
sorgar, syndar, fátæktar, einstæðingsskapar eða sjúk-
dóms. Það eina jólahald, sem er samboðið honum, sem
jólin heiðra, er jóiahald, sem glæðir hjá oss endurnýj-
aðar hvatir til að efla umhverfis oss anda Jesú Krists,
hans, sem gekk í kring og gerði gott. Þá fyrst þekkja
menn hina ríkustu gleði yfir komu hans, er menn heiðra
hann ekki einungis í orði, heldur í verki og þjónustu.
K. K. Ó.