Sameiningin - 01.12.1923, Síða 12
3G2
'jól, vegna lians eru þau glödd á jólunum, vegna hans
mildast skap allra, svo að þeir vilja gera öðrum gott á
jólunum. -—- Látum ekki kímnismynd “Kláusar” koma í
stað hinnar hátíðlegu, göfgandi myndar frelsarans, jóla-
barnsins, sem greiddi kærleikanum veg að hjörtum
mannanna. Þó að “Kláais” sé glaðvær og gjafmildur
karl, þá hefir hann ekkert heilagt og háleitt við sig, sem
göfgar lífsskoðun .barnanna. “Kláus” er líka kynja-
mynd, sem börnin sjá síðar að átti sér engan vernleik.
En Jesús er veruleiki, sem verður þeim æ skýrari og
skiljanlegri með aldrinum, og sem hinn fullþroskaði
maður byggir á sína eilífu von.
Annað er það við jólin nú, sem naumast er heil-
brigt; það eru hinar hóflausu jólagjafir. Þær eru orðn-
ar mörgum liin mesta plága. — Það er í sjálfu sér fag-
urt, að gefa gjafir á jólunum; það er fagurt, að minn-
ast vinar síns með gjöfum til hans. En jólagjafirnar
eru nú orðnar að mestu vani, og gleðin, sem þær eiga
að veita, er að miklu leyti horfin. — Allir eru að reyna
að gefa eitthvað öllum vinum sínum, og jafnvel fleirum,
öllum á heimilinu og öllum, sem áður hafa gefið þeim.
“Æ sér gjöf til gjalda.” Fátækt fólk tekur oft mjög
nærri sér til þess að geta fylgt vananum; margir taka
lá»i, til þess að geta gefið jólagjafir. Og það eru naum-
ast álitnar sæmilegar jólagjafir, nema það sé eitthvað,
sem vel er hægt að komast af fyrir utan; jólagjöfin
þarf helzt að vera til aukinna þæginda eða skrauts. —
Þessi afvegaleidda jólahugsun og jólavani er orðin að
einni álitlegustu tekjulind okraranna, sem verzla með
glingur og skraut.
Hin mikla veraldarhugsun um jólin bætir ekki við
jólagleðina, ekki við þá gleði, sem varir og hefir áhrif
á líf okkar.
Það er Jesús Kristur, sem veitir bæði börnum og
fullorðnum hina varanlegu jólagleði. Endurminning-
arnar lijá okkur eru svo helgar og ljúfar vegna hugsjón-
anna, sem bundnar voru við jólabarnið, vegna lielginn-
ar og liinnar háleitu alvöru, sem hvíldi yfir öllu á jól-