Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1914, Side 6

Sameiningin - 01.04.1914, Side 6
54 dóm; en nú er það deginum ljósara, að það var ekki guð, sem kvað upp þann dóm, lieldr vondir menn, sem reistu krossinn og negldu Jesúm Krist á hann. Ilvernig getr nú versti glœprinn, sem mannkynssagan hefir af að segja, verið auglýsing guðlegs réttíætis, sem kveðr með því upp dóm yfir hinu illa? Þessu til svars vil eg leggja álierzlu á það, að vér mennirnir lifum undir siða-lögmáli, sem skapar gjör- valla tilveru vora og ræðr henni. Nú er það eitt sann- reynt einkenni þess mikla allsherjar-lögmáls, að syndin hefir í för með sér sárar afleiðingar, er fylgja því, sem rangt er gjört, með hátignarlegum óraskanleik náttúru- laganna. Hver maðr kannast við þetta; en er betr er að gætt, þá verðum vér þess varir, að hegningin þarf ekki allt-af að koma niðr á þeim, sem rangt breytti; það getr vel komið fyrir, að þjáningin út-af synd Iians leggist þvngst á aðra. Vér erum ekki einangraðir einstakling- ar; heldr erum vér limir félags-heildar, sem er ofin sam- an úr óteljandi lifandi þráðum; og þótt illgjörðamaðrinn kunni sjálfr að komast lijá því að þola ytri hegning, þá verða þeir, sem með honum lifa, að bera sára byrði, — þótt þeir ef til vill sé alveg saklausir að því er þá sér- stöku synd snertir. Þjáningin, sem af syndinni leiðir, kemr niðr á hinum réttláta, sem finnr áreiðanlega rnest til þess, hve hið illa er hryllilegt. Þessa hugsun höfðu spámenn ísraels skilið endr fyrir löngu og sett hana fram í búningi þeim, sem aldrei fyrnist. Fimmtugasti og þriðji kapítuli í spádómsbók Esajasar setr fram ógleymanlega þann sannleik, að rétt- látr líðr í stað hins rangláta. Sérstaklega vil eg leggja áherzlu á það, að þó-að harmkvæla-maðrinn mikli, sem mynd er dregin upp af í þeim kapítula, þoli þjáningar af liendi. grimmdar og ranglætis, þá er liann þó engu að síðr að þola afleiðingarnar af synd annarra; og þær af- leiðingar má einnig rekja til guðs. Líf hans var ná- tengt við líf náunga lians, einsog þættir bands, sem svo fast liafa verið undnir saman, að með engu móti verða raktir sundr; og alveg einsog synd einhvers barns getr komið sárast niðr á móður þess, af því hún sökum hins

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.