Sameiningin - 01.04.1914, Page 14
Ó2
var lians eigin reynslá, sem gaf honum þrek og þrótt í
þrengingum hans. Því bað hann svo:
„Oft lít eg upp til þín .
augum grátandi,
líttu því Ijúft til mín,
að leysist vandi.“
Fyrir trú sína. á Jesúm Krist vann hann hinn dýrðlega
sigr; á honum grundvallaði hann alla von sína; ekkert
vissi hann sér til sáluhjálpar annað en Jesúm Krist og
hann krossfestan. í trausti til Jesú Krists hafði hann
hina sterku von í allri þrenging sinni, að þá er stríðið
væri á enda, myndi hann öðlast hina eilífu sigrkórónu,
og svo myndi guðs englar segja:
„Sjáið nú þennan mann,
sem allskyns eymd réð beygja
áðr í lieimsins rann;
oft var þá hrelldr hann.
Fyrir blóð lambsins blíða
búinn er nú að stríða
og' sælan sigr vann.‘1
Já, eingöngu fyrir blóð lambsins og orð vitnisburðar
síns vann hann sigr; og þótt hann væri fátœkr og fyrir-
litinn af stórbokkum aldar sinnar, — þótt liann yrði að
bera hinn þunga kross holdsveikinnar, og verða svo ár-
um skifti að miklu leiyti sviftr Ijósi augna sinna, og loks-
ins að deyja í lélegu lireysi, í aumurn moldarkofa, þá lifir
minning hans og hefir enn sigrkraft til að leiða menn til
réttlætis, þá, sem vilja sinna sannleikanum og hafna lyg-
inni. Því er minning hans blessuð; því virðir heil þjóð
hann fyrir sér í anda með þakklæti og vegsamar guð fyr-
ir hann með lirœrðum hjörtum.
------o-------
TRÚARLJÓÐ HALLGRÍMS PÉTRSSONAR OG LÍFIÐ.
Brot úr rœðu eftir séra Kristinn K. Ólafsson.
,,MeS ciauðann í hjarta, þá dimm var tI8,
þú dýrS gu'Ss tjáSir i 6Si.“
Þessi orð Steingríms Thorsteinssonar benda oss á,
hvernig Hallgrímr Pétrsson hóf sig upp-úr þeirri líkam-
legu eymd, er hann varð að þola, upp-yfir samtíð sína og