Sameiningin - 01.04.1914, Page 12
6o
in dvínaði og Jesús var gjörðr að kennara og siðameist-
ara eingöngu, þá náði hún ekki regluleguni tökum á ís-
lenzkri alþýðu, mest, að ætlan minni, fvrir þá sök, að
Passíusálmarnir stóðu einsog þéttr varnargarðr á móti.
Og þegar forvígismenn þeirrar andlausu og máttvana
stefnu reyndu til að rýma sem mest burt úr kirkjunni
trúnni á guðdóm frelsarans með því að yrkja upp trúar-
ijóð fyrri skálda, þá tókst þeim það vel í Danmörk, svo
að kirkjusöngsbókin danska, sem þá var gefin út, varð
eitt hið mesta andleysis-örverpi, er hugsazt gat; en þetta
tókst þeim ekki eins á Islandi, af því hljómarnir frá
Passíusálmunum voru sterkari en svo, að skynsemis-
trúar-sálmabókin á íslandi varð þó aldrei eins ömurleg
einsog liin danska. Já, liví skyldi eg vera að orðlengja
þetta? í einu orði vil eg segja: Þess er enginn kostr
að telja upp alla þá blessun, sem íslenzka þjóðin hefir
haft af sálmum Hallgríms Pétrssonar. Yér getum að-
eins lofað og vegsamað guð, sem gaf oss slíka gjöf.
Og nú er íslenzka þjóðin heldr 300 ára æfiminning hins
dýrðlegasta skálds síns, þá verðum vér að muna, að því
fylgir mikil alvara, og það ætti að verða þjóðinni til and-
legrar vakningar. Oss ætti að verða ljóst, fyrir hverja
sök vér höldum slíka liátíð. — Tímarnir eru nú mjög al-
varlegir í kristilegu tilliti. Nýja guðfrœðin, eða vantrú
sú, er svo er nefnd, veðr uppi meðal þjóðar vorrar; hún
afneitar sérstaklega þeirri kenning um pínu og- dauða
frelsarans, sem svo dýrðlega er fram sett í sálmum
Hallgríms, og berst á móti þeim kristindóms-álirifum,
sem sálmar þessir hafa haft um langan aldr. Ef íslenzk
þjóð vill aðliyllast þessa nýju stefnu, þá er það hlœgilegt
að vera að halda minningarhátíð um þann mann, sem
meir en nokkur annar stendr á móti henni og afneitar
henni. 0g ef íslenzk þjóð ekki vill þekkja vitjunartíma
sinn og vakna til kristilegs lífs og réttlætis fyrir friðþæg-
ingardauða Jesú Krists, ef einstaklingar þjóðar vorrar,
karlar og konur, kjósa að lifa í andlegu andvaraleysi og
dauðamóki sofanda trúarlífs, þá fæ eg ekki betr séð, en
að vér breytum einsog frelsari vor sagði um sína eigin
þjóð, að þeir byggði upp legstaði spámannanna, sem for-