Sameiningin - 01.04.1914, Síða 13
6i
feðr þeirra höfðu grýtt og líflátið: Þeir liéldu minning-
arhátíðir urn hinar miklu guðs het.jur, en létu sér ekki
segjast við orð þeirra, og höfnuðu svo Kristi, sem spá-
mennirnir vísuðu til og hentu á. Ó, að slíkt komi ekki
fyrir oss, að vér lieiðrum 300 ára afmæli Hallgríms Pétrs-
sonar, en höfnum Jesú Kristi, sem hann svo sterklega
og með svo ákveðnum orðum \rísar oss á. — Því her oss
öllum, sem erum glaðir vfir þessarri skinandi stjörnu,
sem guð hefir tendrað á sögu-himni kristni vorrar, að
gefa gaum að því, sem stjarnan bendir oss til.
Vér viljum lieiðra minning Hallgríms Pétrssonar;
en vér heiðrum hana mest með því að láta hana leiða oss
inn-í hið algjöra og ákveðna trúarsamfélag við guðs son
og taka á móti réttlæti Jesú Krists. Þess er eg fullvís,
að enginn meðal Islendinga, sem komnir eru heim til
guðs, hefir kórónu fleiri gimstéinum prýdda en hann;
því sérhver sál, sem hann hefir leitt til réttlætis með
sálmum sínum, liefir hœtt við fögrum steini í kórónu
hans. Ó, að margir nýir gimsteinar mætti nú bœtast við
á þessum hátíðisdögum. Ó að margar sálir mætti nú
vakna og taka til að lifa því lífi, sem eitt verðskuldar að
kallað sé líf. Líf þessa drottins vinar og hinn kvalafulli
sjúkdómr hans lirópa til vor og slá á hjartastrengi vora
til iðrunar og trúar. Sálmar lians knýja á kjarta-dyr
hvers einasta Islendings, að vakna til meðvitundar um
œðstu skyldu sína. Á þessum degi er sem hrópað sé til
hinnar íslenzku þjóðar: Vakna þrx, sem sefr, og rís upp
frá dauðum; þá mun Kristr lýsa fyrir þér! — Vaknaðu
því og sjáðu að þér, þú, sem lifir í hálfgjörðum svefni,
og gríptu með lifandi trú dauðahaldi um krossinn á GIol-
gata, og fáðu sálu þína þvegna í blóði Jesú Krists, guðs
sonar. Þá verðr þetta sannr minningardagr hins út-
valda þjóns guðs; þá heldr þri þessa hátíð einsog vera
ber. -— Látum oss þá í þessu ljósi horfa á hina skærustu
stjörnu þjóðar vorrar, og þakka guði fyrir hana; en lát-
um ljósið, sem stafar af henni, hverfa inn-í geislaljómann
í augliti frelsara vors. Það var löngun skáldsins, að sýna
oss mynd Jesú, því hann vissi, að ekkert heftir eins
hneyksli og svnd sem lierrans Jesú blóðug mynd. Það