Sameiningin - 01.04.1914, Síða 28
76
blaöið var fullsett, en sumt kom ekki fyrr en bla'ðiö var fullbúiö til
prentunar, og tími þá oröinn of naumr til aö birta þaö í þetta sinn.
í æfisögu Hallgríms Pétrssonar, í Marzblaöinu, hefir skekkzt í
prentun 8. erindiö úr nýárssálminum, sem þar var birt. Rétt er
erindið þannig:
„Kasti verstu kostum lasta
Kristr beztr, hæstr, mestr, fólki frá:
víst svo traustiö festum fasta
fyrst og síöst þeim glæsta gesti ætíö á,
ást þýðasta brjóst ei bresti,
byrstr þjóstr horfinn sé,
geystum lasta-gusti fresti
losta iestir,
flestir næsta falli’ í hlé.“
Ennfremr var brottfarar-ár séra Hallgríms, frá Saurbœ að Kala-
stöðum, talið 1667, en þangað fluttist hann tveimr árum síðar, 1669.
FYRIR UNGA FÓLKIÐ- Deild þessa annast séra Priðrik Hallgrímsson.
BANDAtiAGSpING.
Ársþing Bandalags kirkjufélagsins verðr haldið í kirkju Gimli-
safnaðar á Gimli, Man., laugardag 27. Júní næstkom., og hefst kl.
4 e.m. Skýrslur verða lagðar fram, embættismenn kosnir, atkvæði
greidd um lagafrumvarp það, er lagt var fram á síðasta ársþingi, og
önnur félagsmál afgreidd. Á kvöldfundinum, er hefst kl. 8, talar
séra Friðrik Friðriksson.
Öll bandalögin ætti að senda eins marga erindsreka á þetta þing
og lögin leyfa, einn fyrir hverja 50 meðlimi, þó ekkert fleira en þrjá.
Erindsrekar hafi með sér kjörbréf og afhendi þau undirrituðum
fyrir hádegi þingdaginn, ef unnt er.
Allir gjöri svo vel að hafa með sér Bandalags-söngbókina.
Baldri, Man., 1. Apríl 1914.
F. HALLGRÍMSSON,
form. Bandalagins.
-------o-------
Gleðilegt sumar!
Það var einu sinni maðr, sem gekk daglega hraustr og ánœgðr
til vinnu sinnar. Einn dag kom kunningjum hans saman um að leika á
hann, og þeir komu til hans hver á fœtr öðrum og spurðu hann,
hvort honum liði ekki vel, hvað gengi að honum, hvers vegna hann