Fréttablaðið - 04.04.2011, Blaðsíða 2
4. apríl 2011 MÁNUDAGUR2
Kolbrún Björt, kom ekkert
ABBA-babb í bátinn á
frumsýningunni?
„Nei, við þurftum ekki að senda út
SOS.“
Kolbrún Björt Sigfúsdóttir leikstýrir Leik-
félagi Menntaskólans í Kópavogi sem
frumsýndi sína útgáfu af ABBA-söng-
leiknum Mamma Mia á föstudag.
OLÍULEKI Fyrirtækið Transocean hefur veitt helstu
yfirmönnum sínum veglegar bónusgreiðslur í til-
efni góðs árangur í öryggismálum á síðasta ári.
Transocean bar ábyrgð á rekstri olíuborpalls
British Petroleum (BP) á Mexíkóflóa þar sem leki
olli miklu umhverfisslysi í apríl á síðasta ári og
hefur, ásamt BP og olíufélaginu Halliburton-olíu-
félaginu, verið kennt um slysið og mengunina
undan ströndum Mexíkó og Bandaríkjanna. Frá
þessu er sagt á vefsíðu BBC.
Ellefu starsmenn, þar af níu sem unnu fyrir
Transocean, létust þegar lekinn varð á Deep-
water Horizon-olíuborpallinum fyrir tæpu ári.
Milljónir lítra af olíu láku í hafið. Þrátt fyrir það
fá helstu stjórnendur bónusgreiðslur þar sem fyr-
irtækið heldur því fram að slysum hafi fækkað og
alvarleiki þeirra minnkað. Fyrirtækið segir síð-
asta ár hafa verið það besta frá upphafi í öryggis-
málum.
Frá því lekinn varð hefur Transocean haldið
því fram að BP beri ábyrgð á slysinu. BP heldur
því fram að Transocean sé skylt að deila sökinni.
- kg
Fyrirtækið sem rak olíuborpallinn á Mexíkóflóa verðlaunar stjórnendur sína:
Bónusgreiðslur fyrir öryggismál
MENGUN Milljónir lítra af olíu láku í sjóinn og ellefu starfs-
menn létust við lekann í apríl í fyrra. AFP/NORDICPHOTOS
STJÓRNMÁL Formaður og varafor-
maður Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs hvetja flokks-
menn til að
greiða atkvæði
með Icesave-
samningunum í
þjóðaratkvæða-
greiðslunni á
laugardaginn.
„Það er sann-
færing okkar
að með því að
kjósa JÁ þann
9. apríl séum
við að lágmarka
skaðann í þessu
sorglega máli
eins og kost-
ur er. Með því
að kjósa NEI
verður óvissan
framlengd og
mikil áhætta
tekin.
Í því ástandi
sem við búum enn við og í ljósi þess
hversu endurreisnin er brýn, ekki
síst til að við getum einbeitt okkar
að því að ná niður atvinnuleysinu,
er JÁ mun skynsamlegri kostur,“
segir í pistli sem Steingrímur J.
Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir
birta á vef flokksins. - sh
Steingrímur og Katrín skrifa:
Hvetja VG-liða
til að segja já
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
ICESAVE Töluvert fleiri hafa greitt
atkvæði utan kjörfundar um Ice-
save-samninginn nú en jafnlöngu
fyrir kjördag í fyrra.
Í gær, sex dögum fyrir kjör-
dag, höfðu 6.317 greitt atkvæði
hjá sýslumanni og síðar í Laugar-
dalshöll en fimm dögum fyrir
kjördag í fyrra hafði 2.341 greitt
atkvæði.
Atkvæðagreiðslan var færð frá
sýslumanni yfir í Laugardalshöll
28. mars. - sh
Á sjöunda þúsund atkvæði:
Kjörsókn tvöfalt
meiri en í fyrra
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
SKÁK Guðmundur G. Þórarinsson,
fyrrverandi forseti Skáksambands
Íslands, fékk tæpar átta milljónir
króna fyrir skákborð sem boðið
var upp hjá Philip Weiss í gær.
Það var notað í þriðju einvígisskák
Bobby Fischer og Boris Spasskí og
er áritað af Fischer.
Guðmundur ákvað að bjóða borð-
ið upp vegna fjárhagsvandræða
og sagðist hann í viðtali á Stöð 2
hafa vonast til að fá tvær til þrjár
milljónir fyrir borðið. - rat
Skákborð boðið upp:
Fékk tæpar 8
milljónir fyrir
FÓLK Feðgarnir séra Hjörtur Magni
Jóhannsson 52 ára og Magnús
Jóhann Hjartarson 12 ára, státa
báðir af Íslandsmeistaratitli í
einliðaleik í borðtennis. Magnús
Jóhann, nemandi í Fossvogsskóla,
varð íslandsmeistari í flokki 12 til
13 ára um síðustu helgi, auk þess
sem hann varð í þriðja sæti í tví-
liðaleik. Faðir hans, Fríkirkjuprest-
urinn Hjörtur Magni, vann síðan
titilinn Íslandsmeistari í flokki
karla 50 til 59 ára á laugardaginn,
og landaði einnig þriðja sætinu í
tvíliðaleik.
„Ég æfði borðtennis á mínum
yngri árum og átti að heita í lands-
liði unglinga og karla. Ég hafði
reyndar varla snert spaðann síðustu
tíu ár en þetta er eins og að læra að
hjóla, maður gleymir þessu ekki,“
segir séra Hjörtur Magni en hann
vann einnig Íslandsmeistaratitil í
einliðaleik karla 40 til 50 ára fyrir
tíu árum.
Hann segir sigur þeirra feðga
hafa komið skemmtilega á óvart.
Hæfileikarnir liggi greinilega í
blóðinu. „Strákurinn stóð sig frá-
bærlega vel en hann hefur ekki æft
nema í eitt og hálft ár. Enda var það
var stoltur og tilfinningaþrunginn
faðir sem fylgdist með af áhorf-
endapöllunum,“ segir hann og hlær.
„Við erum reyndar með borðtenn-
isborð hér í kjallaranum og æfum
okkur í laumi,“ bætir hann við.
Magnús Jóhann tekur undir með
pabba sínum um það að hæfileik-
arnir hljóti að liggja í genunum.
Þegar hann er spurður hvor þeirra
feðga sé betri borðtennisspilari
svarar hann hógvær: „Ég veit það
nú ekki. Ég vinn reyndar aðeins
oftar. Pabbi er ekkert of tapsár en
það er auðvitað leiðinlegt að tapa,“
Magnús segist staðráðinn í að
halda áfram að æfa borðtennis,
þetta sé skemmtileg íþrótt og faðir
hans bætir við að íþróttin leyni á
sér. „Ólíkt því sem margir halda
þá reynir borðtennis á snerpu, ein-
beitingu og þol. Þetta getur tekið
virkilega á.“ heida@frettabladid.is
Borðtennisprestur á
pall með syni sínum
Feðgarnir séra Hjörtur Magni Jóhannsson og Magnús Jóhann Hjartarson eru
Íslandsmeistarar í einliðaleik hvor í sínum flokki. Þeir segja hæfileikana liggja í
genunum og æfa í laumi á kvöldin. Pabbi er ekkert of tapsár, segir sonurinn.
ÆFA Í LAUMI Feðgarnir Séra Hjörtur Magni Jóhannsson og Magnús Jóhann Hjartarson grípa gjarnan í borðtennisspaðann á
kvöldin en þeir urðu báðir Íslandsmeistarar í borðtennis á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓLK Fjöldi presta á Íslandi fær
reglulega fyrirspurnir um hús-
blessanir ýmist vegna innflutn-
inga og við skírnir en einnig þegar
fólk upplifir óþægindi, jafnvel
reimleika á heimilinu.
Séra Karl Valgarður Matthías-
son hefur blessað hús allan sinn
prestskap, 25 ár. „Í gegnum tíðina
ber þetta við hjá mér kannski tvö
til þrjú skipti á ári. Ég hef komið
inn í aðstæður þar sem virkilegur
og djúpur ótti hefur verið í fólkinu,
eins og því hafi fundist eitthvað illt
vera í kringum sig.”
Séra Gísli Jónasson í Breiðholts-
kirkju hefur upplifað ýmislegt við
húsblessun. „Ég hef einu sinni
lent í verulegum átökum þar sem
ég snarsvitnaði við blessunina.
Ég hefði ekki trúað þessu sjálfur,
haldið að þetta væri della fyrr en
ég reyndi.“ - jma / Allt í miðju blaðsins
Prestar fá óvenjulegar beiðnir:
Blessun veitt
við reimleikum
GUÐMUNDUR G. Fékk tæpar 8 milljónir
fyrir borðið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÍLABEINSSTRÖNDIN, AP Íbúar borgarinnar Abidj-
an á Fílabeinsströndinni læstu sig inni á heim-
ilum sínum í gær, byrgðu fyrir glugga og færðu
húsgögn fyrir hurðir.
Fólkið var að búa sig undir lokabardagann á
milli hersveita mannanna tveggja sem nú kljást
um forsetatignina í landinu. Einungis um 30
kílómetrar skildu í gær að um þúsund manna
herlið stuðningsmanna Alassane Outtara, sem
nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar sem rétt-
kjörinn forseti, og um 700 manna stuðningsliðs
fráfarandi forseta, Laurent Gbagbo, sem hefur
neitað að yfirgefa forsetahöllina í kjölfar ósig-
ursins í kosningunum í nóvember.
Lokað hefur verið fyrir vatnsstreymi til
Abidjans og eina fólkið sem sást á götum borg-
arinnar í gær voru hermenn, konur sem roguð-
ust með bala að nálægu stöðuvatni og karlar
sem hugðust sækja vatn í plastpoka og héldu
þeim yfir höfði sér
Sveitunum hefur þegar lostið saman með
hörmulegum afleiðingum. Hundruð létust í
átökum þeirra á milli í síðustu viku, sem mönn-
um ber ekki saman um hver átti upptökin að.
Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna, hefur lýst miklum áhyggjum af ástandinu
og lét hafa eftir sér á laugardag að þeir sem sök
ættu skyldu dregnir til ábyrgðar. Outtara seg-
ist þegar hafa fyrirskipað opinbera rannsókn á
málinu. - sh
Íbúar Abidjans á Fílabeinsströndinni byrgja sig inni af ótta við þá sem kljást um forsetastól landsins:
Búa sig undir lokabardagann í Abidjan
LOKABARDAGINN Í NÁND Hersveitir Ouattara og
Gbagbo hafa barist á götum úti síðustu daga.
NORDICPHOTOS/AFP
SPURNING DAGSINS
fyrir 12 mánaða og eldrihipp.is
Við lífrænt