Fréttablaðið - 04.04.2011, Blaðsíða 16
4. apríl 2011 MÁNUDAGUR16
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
„Fyrsta auglýsingin sem birtist frá
fyrir tækinu er frá því í apríl 1916,“
segir Erla Ósk Lilliendahl, starfs-
stúlka í Fatabúðinni við Skólavörðu-
stíg sem lagt hefur sig eftir því að
kynna sér sögu fyrirtækisins. „Þar er
verið að auglýsa ýmislegt eins og til
dæmis trollarabuxur og enskar húfur,
sem segir okkur í dag nú kannski ekki
mikið. Upphafið hefur mér gengið illa
að finna upplýsingar um en það er vitað
að kona með eftirnafnið Brand stofn-
aði Fatabúðina í Hafnarstræti 18 árið
1916. Það hefur eflaust verið dálítið
sérstakt á þeim tíma að kona færi út í
slíkan rekstur en fyrirtækið blómstraði
undir hennar stjórn og árið 1927 lætur
hún byggja húsið við Skólavörðustíg 27,
þar sem verslunin er til húsa enn í dag.
Fyrst um sinn var þetta hugsað sem
útibú frá búðinni í Hafnarstræti, enda
þótti óðs manns æði að opna búð hér
nánast uppi í sveit. En reksturinn gekk
vel og þessi kona rak búðina hér alveg
til 1959 þegar faðir núverandi eiganda,
Karólínu Sveinbjörnsdóttur, keypti
hana. Hann hét Sveinbjörn Árnason
og var vel þekktur verslunarmaður í
Reykjavík þess tíma, hafði lengi starfað
í verslun sem hét Haraldarbúð og margt
eldra fólk man vel eftir.“
Sveinbjörn hafði aðrar áherslur í
rekstrinum og smám saman þróaðist
verslunin út í það að hætta að selja
fatnað og einbeita sér að rúmfötum og
vefnaðarvöru eins og gert er enn þann
dag í dag. „Það kemur nú stundum inn
til okkar fólk af eldri kynslóðinni og
spyr um fatnað,“ segir Erla Ósk. „Enda
þykir mörgum undarlegt að Fatabúðin
selji ekki föt. Við flytjum okkar vefn-
aðarvöru mest inn frá Þýskalandi og
leggjum mikla áherslu á gæði varanna
sem við seljum sem er ástæðan fyrir
því að verslunin hefur gengið eins
vel og raun ber vitni. Fólk veit að það
getur gengið að gæðunum vísum og að
vörurnar okkar endast vel.“
Fatabúðin hefur á sínum snærum
saumakonur sem sauma sængurföt-
in og býður jafnframt upp á þjónustu
sem erfitt er að fá annars staðar. „Já,
við bjóðum upp á ýmsa þjónustu sem
aðrir eru ekki með,“ segir Erla Ósk.
„Til dæmis uppsetningu á harðangri
og klaustri eða milliverki í rúmföt. Það
hefur orðið mikil endurnýjun á áhuga
á handverki almennt og það er töluvert
um að fólk komi með milliverk sem það
sjálft hefur heklað eða harðangur og
klaustur sem það biður okkur að setja
í sængurfötin.“
Er meiningin að fagna tímamótunum
á einhvern hátt? „Við erum svona að
skoða það. Það er tiltölulega stutt síðan
það rann upp fyrir okkur að búðin
ætti þetta merkisafmæli og ekki alveg
komið á hreint hvað við gerum. En við
höldum upp á þetta á einhvern hátt,
það er ekki spurning,“ segir Erla Ósk.
fridrikab@frettabladid.is
FATABÚÐIN VIÐ SKÓLAVÖRÐUSTÍG 95 ÁRA: BLÓMSTRAR SEM ALDREI FYRR
Frá trollarabuxum og enskum
húfum í sérsaumuð rúmföt
GOTT ÚRVAL Erla Ósk Lilliendahl afgreiðslustúlka og Karólína Sveinbjörnsdóttir, eigandi
verslunarinnar, sinna afgreiðslunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
46
Merkisatburðir 4. apríl
1581 Francis Drake lýkur hringferð sinni um heiminn og er
aðlaður af Elísabetu I. Englandsdrottningu.
1897 Hið íslenska prentarafélag stofnað. Það er elsta starf-
andi verkalýðsfélag á Íslandi og er nú hluti af Félagi
bókagerðarmanna.
1949 Tólf þjóðir skrifa undir Norður-Atlantshafssáttmálann og
mynda þannig Atlantshafsbandalagið (NATO).
1956 Alþýðubandalagið stofnað.
1964 Bítlarnir eiga smáskífur í öllum fimm efstu sætum banda-
ríska Billboard-listans.
1968 Martin Luther King myrtur.
1975 Fyrirtækið Microsoft stofnað af Bill Gates og Paul Allen í
Albuquerque í Nýju-Mexíkó.
Samþykkt var á bandaríska þinginu 4. apríl
1818 að bandaríski fáninn skyldi settur þrettán
rauðum og hvítum röndum, sem táknuðu
ríkin þrettán sem gerðu uppreisn gegn bresku
krúnunni og mynduðu Bandaríkin 1776, og
tuttugu stjörnum sem táknuðu þau ríki sem
mynduðu ríkjasambandið á þeim tíma sem
samþykktin gekk í gegn. Nýrri stjörnu skyldi
svo bætt við í hvert sinn sem nýtt ríki bættist
í hópinn. Í ályktun þingsins var tekið fram að
nýr fáni skyldi vera tilbúinn ekki síðar en á
þjóðhátíðardegi Bandaríkjamanna 4. júlí árið
eftir að nýtt ríki bættist við Bandaríkin.
Sumir fánanna staldra skemur við en aðrir
og níu þeirra hafa einungis verið í notkun í
eitt ár. Núverandi fáni Bandaríkjanna er sá
27. í röðinni og 4. júlí árið 2011 hefur hann
verið óbreyttur í 41 ár, lengst allra fána í sögu
Bandaríkjanna.
Heimild: thepeoplehistory.com.
ÞETTA GERÐIST: 4. APRÍL 1818
Stjörnur og strik verður til
ROBERT DOWNEY JR. leikari er 46 ára
„Ég veit afskaplega lítið um leiklist. Ég er
bara svo ótrúlega fær í að látast.“
Kór Fjölmenntar á Selfossi, sem skip-
aður er fötluðu fólki, afhenti nýlega
Styrktarfélagi krabbameinssjúkra
barna 184.500 krónur. Var það ágóði
af tónleikum sem kórinn hélt með tón-
listarmanninum Bubba Morthens.
Kór Fjölmenntar hefur gegnum árin
tekið sér ýmislegt skemmtilegt fyrir
hendur. Til dæmis haldið tónleika með
Ingó Veðurguði, gefið út geisladiska og
farið í söngferð til Englands með Val-
geiri Guðjónssyni auk þess sem gerð
hefur verið heimildarmynd um kórinn.
Síðastliðið haust var ákveðið að æfa
lög eftir Bubba. Kórstjórinn, Gylfi
Kristinsson, bað Bubba að syngja með
kórnum og tók hann afskaplega vel í þá
hugmynd. Þegar Bubbi neitaði að taka
greiðslu fyrir sönginn kom upp sú hug-
mynd að láta hagnað af aðgangseyri
tónleikanna renna til góðs málefnis, og
varð Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna fyrir valinu. Tónleikarnir fóru
fram í Hvíta húsinu á Selfossi 16. mars
og fékk kórinn aðstöðu og aðgang að
hljóðkerfi endurgjaldslaust. Fullt var
út úr dyrum, Bubbi lék á als oddi og
hafði á orði eftir tónleikana að kórinn
hefði komið sér verulega á óvart.
Í vikunni mætti síðan Óskar Örn
Guðbrandsson, formaður styrktar-
félagsins, á æfingu kórsins í Karla-
kórsheimilinu og tók við ávísun frá
glaðværum kórnum.
Gáfu ágóða af tónleikum
GÓÐ GJÖF Glaðlegir kórfélagar með Óskari Erni,
formanni Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna.
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir
og amma,
Þóra Hermannsdóttir
andaðist 30. mars. Útför hennar fer fram frá
Akureyrarkirkju kl. 13.30 fimmtudaginn 7. apríl.
Karl Stefánsson
Stefán Lárus Karlsson
Hermann Þór Karlsson
Snorri Karlsson
Rósa Karlsdóttir
tengdadætur og ömmubörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hreinn Óskarsson
múrari, Mýrarvegi 113, Akureyri,
lést fimmtudaginn 24. mars. Útför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 4. apríl kl. 13.30. Blóm
og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hans er bent á Heimahlynningu á Akureyri.
Sigurjóna Kristinsdóttir
Margrét Kristín Hreinsdóttir Sigurður Valur Ingólfsson
Agnea Björg H. Sandvold Jon Christian Sandvold
Guðrún Hreindís Hreinsdóttir
Kristinn Hreinsson Kolbrún Jónsdóttir
og afabörn
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
hlýhug og samúð við andlát og útför
ástkærs föður okkar, tengdaföður,
afa, langafa og langalangafa,
Páls Þorleifssonar
fyrrum húsvarðar í
Flensborgarskólanum.
Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki og vinum hans
á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir hlýtt og gott viðmót og
umönnun. Karlakórnum Þröstum eru færðar þakkir
fyrir fallegan söng við útförina.
Kristín Ína Pálsdóttir Magnús R. Aadnegard
Þóra Gréta Pálsdóttir Magnús J. Sigbjörnsson
og fjölskyldan.