Fréttablaðið - 04.04.2011, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 04.04.2011, Blaðsíða 42
4. apríl 2011 MÁNUDAGUR Hlynur Bæringsson körfuboltamaður Fyrir mikilvæga körfuboltaleiki er oft talað um baráttu, ákveðni og vilja sem lykil að sigri. Það er hárrétt þó sumt af þessu ætti ekki að þurfa að innprenta í alvöru leikmenn á ögurstundu. Það sem mér finnst vanta hjá íslenskum liðum er gott „gameplan“ og undirbúningur fyrir leiki, hernaðaráætlun, það er mikil- vægt til að fara á næsta stig. Þessu sinna þjálfarar misvel, sumir vegna leti en aðrir vegna tímaskorts sem er skiljanleg ástæða, þetta er jú ekki fullt starf hjá öllum þjálfurum. Svo eru þeir sem leggja tíma í þetta og hjálpa sínum liðum með ýmsum smáatriðum sem saman verða að mikilvægum þætti í undirbúningi liðsins. Þeirra lið hafa forskot. Ég hef kynnst báðum hliðum, að vera sá sem ekkert hefur í höndunum nema baráttuna og viljann en einnig sá sem hefur öfluga hernaðaráætlun á bak við sig sem maður getur treyst. Þjálfararnir mínir hérna í Svíþjóð eyða miklum tíma í þennan undir- búning. Þegar ég hugsa til baka er ég betur undirbúinn fyrir leiki sem skipta litlu máli hérna heldur en ég var fyrir marga af mikilvægustu leikjum á ferlinum, bæði landsleiki og félagsliðum. Við förum yfir öll helstu kerfi andstæðinganna, svo vel að við kunnum þau utanbókar. Við í Sundsvall erum þegar þessi orð eru skrifuð í einvígi í átta liða úrslitum og er staðan 2-2. Við urðum í fyrsta sæti en þeir (Jamt- land) í því áttunda. Fyrirfram og ef tekið er mið af leikmannahóp liðanna þá ættum við að vinna. Þeir hafa komið mjög vel undirbúnir og hafa valdið okkur erfiðleikum með sinni taktík, bæði í vörn og sókn. Ég fullyrði að ef þeir hefðu engu breytt og einfaldlega mætt til að berjast og gera sitt besta hefðum við unnið þetta einvígi 3-0. Þeirra hernaðar- áætlun er hins vegar búin að gefa þeim möguleika í þessu einvígi, vona samt að það dugi ekki til. Öllu má ofgera, þitt eigið lið er alltaf það sem skiptir mestu máli. En góður undirbúningur og gott leikskipulag getur verið sá þáttur sem skilur á milli liða. Einn góður vinur minn sem hefur náð langt orðaði þetta vel. Þetta er stríð og ég vil ekki hlaupa nakinn og allslaus út á vígvöllinn með baráttuna eina að vopni og sjá þar menn vopnaða hríðskotabyssum. Ég vil ekki hlaupa nakinn og allslaus út á vígvöllinn Metið í NBA-deildinni Flestar þriggja stiga tilraunir í NBA: Portland - Golden State (2005) 69 Houston - Dallas (1995) 64 Cleveland - Portland (1995) 64 Houston - LA Lakers (1996) 64 Til samanburðar: KR - Keflavík (2011) 85 SKÍÐI Helgin var góð fyrir þau Björgvin Björgvinsson frá Dal- vík og Íris Guðmundsdóttur frá Akureyri en keppt var á Skíða- móti Íslands í Bláfjöllum um helgina. Bæði unnu gull í svigi og stór- svigi og þar með alpatvíkeppn- inni. Björgvin bar einnig sigur úr býtum í samhliðasvigi. Íris fékk harða samkeppni í stórsviginu og munaði aðeins einum hundraðs- hluta úr sekúndu á milli henn- ar og Katrínar Kristjánsdóttur, einnig frá Akureyri sem varð í öðru sæti. - esá Skíðamót Íslands um helgina: Björgvin fékk fjögur gull BJÖRGVIN Hefur verið sigursæll hér á landi undanfarin ár. KÖRFUBOLTI Það var ótrúleg dramatík á lokamínútunum í fyrsta leik Keflavíkur og Njarðvíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í Ice- land Express-deild kvenna sem fram fór á laugardag- inn. Keflavík vann eins stigs sigur, 74-73, með körfu frá Lisa Karcic í þann mund er leiktím- inn rann út. Keflavík er þar með komið í 1-0 í ein- vígi liðanna en vinna þarf þrjá leiki til að hampa titlinum. Jón Halldór Eðvarðs- son, þjálfari Keflavíkur, var kátur með sigurinn. „Þetta var magnaður leikur, fullt hús af fólki og það er kærkomið að komast yfir í einvíginu. Bæði lið áttu það svo sannar- lega skilið að leika fyrir um 600 manns,“ sagði Jón Hall- dór en liðin mætast aftur annað kvöld í Njarðvík. „Við þurfum að spila vel til að hafa betur því Njarðvík er með frábært lið. Þær munu án efa mæta ákveðnar til leiks og það þurfum við líka að gera. Það vinnur ekkert lið Njarðvík í dag nema eiga topp- leik.“ - jjk Keflavík komið yfir eftir dramatískan leik: Flautukarfa tryggði Keflavík sigurinn HETJAN Lisa Karcic í leik með Keflavík. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KÖRFUBOLTI Æsilegum leik KR og Keflavíkur á föstudagskvöldið lauk með sigri síðarnefnda liðs- ins, 139-135, eftir framlengingu. Samanlagt reyndu leikmenn lið- anna að skjóta 85 sinnum fyrir utan þriggja stiga línuna, þar af KR ingar 61 sinni. Ótrúlegar tölur, sérstaklega þar sem metið í einum leik í NBA-deildinni er 69 skot. KR setti niður 20 þrista í 61 til- raun en Keflavík þrettán í 24 til- raunum. Skotglöðustu KR-ingarnir voru Brynjar Þór Björnsson (19), Marcus Walker (17), Hreggviður Magnússon (10) og Pavel Ermolins- kij (9). Þess má geta að KR-ingar tóku færri skot inn í teignum eða 50 talsins – þar af fóru 29 niður. „Þeir spiluðu svæðisvörn sem miðaði við að hægja á okkur,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálf- ari KR. „Þeir lögðu kannski ekki upp með að skilja okkur eftir gal- opna í hverju einasta þriggja stiga skoti en sú varð nú bara raunin. Það er erfitt fyrir góða skotmenn að taka ekki skot þegar það er eng- inn í tveggja metra radíus við þá. Ég vil að þessi strákar stígi inn í þessi skot með sjálfstrausti sem þeir gerðu,“ bætti Hrafn við. „En það leggur ekki nokkur þjálfari upp með þetta – nema kannski Don Nelson eða Doug Mo. Enda tók ég ekki eftir þessum fjölda skota þar sem hvert einasta þeirra var opið.“ Liðin mætast aftur í kvöld og þá fær KR annað tækifæri til að tryggja sér sæti í úrslitunum. Staðan í rimmunni er 2-1. „Við ætlum að spila eins og að við séum að spila um titilinn. Það fannst mér vanta í þessum leik en þannig þurfum við alltaf að spila í úrslita- keppninni.“ eirikur@frettabladid.is Fleiri þriggja stiga tilraunir en í nokkrum NBA-leik Leikmenn KR og Keflavíkur áttu alls 85 þriggja stiga skot í leik liðanna á föstu- dagskvöldið – miklu fleiri en í nokkrum NBA-leik í sögunni. Þar af áttu KR-ing- ar einir og sér 61 skot fyrir utan þriggja stiga línuna. Liðin mætast aftur í kvöld. SAUTJÁN SKOT Marcus Walker skaut sautján sinnum fyrir utan þriggja stiga línuna, þó tveimur færri skotum en liðsfélagi hans, Brynjar Þór Björnsson. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.