Fréttablaðið - 04.04.2011, Blaðsíða 40
4. apríl 2011 MÁNUDAGUR24
sport@frettabladid.is
BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAVSSON og félagar í svissneska liðinu Kadetten Schaffhausen féllu um helgina
úr leik í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir tap fyrir Montpellier frá Frakklandi í síðari leik liðanna í gær,
35-27. Frakkarnir unnu þar með upp fimm marka forystu Björgvins Páls og félaga eftir fyrri leikinn.
Enska úrvalsdeildin
Birmingham - Bolton 2-1
1-0 Kevin Phillips (3.), 2-0 Craig Gardner (58.),
2-1 Johan Elmander (70.).
Everton - Aston Villa 2-2
1-0 Leon Osman (37.), 1-1 Darren Bent (46.), 1-2
Darren Bent (67.), 2-2 Leighton Baines (82.).
Newcastle - Wolves 4-1
1-0 Kevin Nolan (21.), 2-0 Shola Ameobi (44.),
3-0 Peter Lövenkrands (49.), 3-1 Sylvan Ebanks-
Blake (57.), 4-1 Jonas Gutierrez (92.).
Stoke City - Chelsea 1-1
1-0 Jonathan Walters (7.), 1-1 Didier Drogba (32.).
West Brom - Liverpool 2-1
0-1 Martin Skrtel (49.), 1-1 Chris Brunt (61.), 2-1
Chris Brunt (88.).
West Ham - Manchester United 2-4
1-0 Mark Noble (10.), 2-0 Mark Noble (24.), 2-1
Wayne Rooney (64.), 2-2 Rooney (72.), 1-3
Rooney (78.), 2-4 Javier Hernandez (83.).
Fulham - Blackpool 3-0
1-0 Bobby Zamora (22.), 2-0 Bobby Zamora
(27.), 3-0 Dickson Etuhu (71.).
Manchester City - Sunderland 5-0
1-0 Adam Johnson (8.), 2-0 Carlos Tevez (14.),
3-0 David Silva (62.), 4-0 Patrick Vieira (66.), 5-0
Yaya Toure (72.)
STAÐAN
Man. United 31 19 9 3 68-32 66
Arsenal 30 17 8 5 59-29 59
Man. City 31 16 8 7 50-27 56
Chelsea 30 16 7 7 54-25 55
Tottenham 30 13 11 6 41-34 50
Liverpool 31 13 6 12 42-38 45
Everton 31 9 14 8 42-41 41
Bolton 31 10 10 11 43-43 40
Newcastle 31 10 9 12 48-46 39
Fulham 31 8 14 9 36-33 38
Stoke City 31 11 5 15 37-39 38
Sunderland 31 9 11 11 33-42 38
West Brom 31 9 9 13 43-57 36
Blackburn 31 9 7 15 39-51 34
Birmingham 30 7 13 10 30-42 34
Aston Villa 31 8 10 13 39-53 34
Blackpool 31 9 6 16 45-63 33
West Ham 31 7 11 13 38-53 32
Wolves 31 9 5 17 36-53 32
Wigan 31 6 13 12 29-51 31
Enska B-deildin
Reading - Portsmouth 2-0
Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson
léku báðir allan leikinn með Reading. Hermann
Hreiðarsson var í byrjunarliði Portsmouth.
Coventry City - Watford 2-0
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með C.
Bristol City - Doncaster Rovers 1-0
Burnley - Ipswich Town 1-2
Cardiff City - Derby County 4-1
Crystal Palace - Barnsley 2-1
Hull City - Millwall 0-1
Leeds United - Nottingham Forest 4-1
Middlesbrough - Leicester City 3-3
Norwich City - Scunthorpe United 6-0
Preston North End - Swansea City 2-1
Þýska úrvalsdeildin
Hoffenheim - Hamburg 0-0
Gylfi Þór Sigurðsson lék síðustu 20 mínúturnar
með Hoffenheim.
Skoska úrvalsdeildin
Hibernian - Hearts 2-2
Guðlaugur Pálsson var í byrjunarliði Hibernian en
Eggert Gunnþór Jónsson hjá Hearts var í banni.
ÚRSLIT
Síðustu tvö tímabil Eiðs Smára Guðjohnsen
2009 - 2010
AS Monaco (ágúst - janúar)
11 leikir (8 í byrjunarliði) 599 mín/0 mörk
Tottenham (janúar - maí)
14 leikir (4) 546 mín/2 mörk
Íslenska landsliðið
3 leikir (3) 256 mín/1 mark
Samtals
28 leikir (15) 1401 mín/3 mörk
2010 - 2011
Stoke (ágúst - janúar)
5 leikir (0 í byrjunarliði) 128 mín/0 mörk
Fulham (janúar -)
4 leikir (0) 24 mín/0 mörk
Íslenska landsliðið
2 leikir (2) 155 mín/0 mörk
Samtals
11 leikir (2) 307 mínútur/0 mörk
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
sat enn á ný á varamannabekkn-
um er lið hans, Fulham, vann 3-0
sannfærandi sigur á Blackpool
í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Bekkjarseta Eiðs Smára sætir
varla tíðindum lengur sem eitt og
sér hljóta að teljast skelfileg tíð-
indi fyrir íslenska knattspyrnu.
Eiður Smári er markahæsti leik-
maður íslenska landsliðsins frá
upphafi og hefur náð ótrúlegum
árangri á sínum ferli. Tveir Eng-
landsmeistaratitlar, Spánarmeist-
aratitill, spænskur bikarmeistari
og Evrópumeistaratitill eftir sigur
með Barcelona í Meistaradeild
Evrópu svo það helsta sé upptalið.
Árangurinn talar sínu máli.
En síðustu tvö ár hafa verið
Eiði Smára mjög erfið – frá því að
hann var seldur frá Barcelona til
AS Monaco í Frakklandi haustið
2009. Síðan þá hefur hann komið
við sögu í 39 leikjum með fjórum
félagsliðum auk íslenska lands-
liðsins.
Eftir erfiða tíð í franska boltan-
um var hann lánaður til Tottenham
þar sem hann átti ágætu gengi að
fagna. Hann fékk þónokkuð að
spila, skoraði tvö mörk og Totten-
ham tryggði sér sæti í Meistara-
deildinni.
Eftir langt sumar varð þó ekk-
ert af því að hann gengi í raðir
Tottenham. Hann fór til Stoke,
þar sem hann fékk aldrei tækifæri
í byrjunarliðinu, og fór þaðan til
Fulham í janúar síðastliðnum. Þar
hefur lítið betra tekið við og hing-
að til hefur Mark Hughes, stjóri
liðsins, notað hann minna en Tony
Pulis gerði hjá Stoke. Til að bæta
gráu á svart er hann líka dottinn
úr íslenska landsliðinu. Hann var
ekki valinn í hópinn fyrir leikinn
gegn Kýpur í síðasta mánuði.
Ólafur Jóhannesson landsliðs-
þjálfari sagði þá að hann hefði ekki
rætt sérstaklega við Eið Smára
um þá ákvörðun. „Staða hans í
Englandi hjá þessum tveimur
liðum hefur ekki verið eins og
við höfum viljað. Hann er ekki
að spila og ég sá ekki ástæðu til
þess að velja hann,“ sagði Ólafur
við það tilefni.
Svo virðist sem Eiður
Smári sé ekki í mynd-
inni hjá sínum þjálfur-
um, hvort sem er hjá
hans félagsliði eða
landsliði. Samanlagð-
ur leiktími hans á
þessu tímabili nær
ekki fjórum heilum
knattspyrnuleikjum.
Samningur hans við
Fulham rennur út í
lok leiktíðarinnar en
þrátt fyrir allt þykir ekki útilok-
að að hann fái aftur samning hjá
félaginu í sumar, miðað við fregnir
frá Englandi. Fulham hefur vegn-
að vel síðustu vikurnar og er Eiður
sjálfsagt fórnarlamb þeirrar vel-
gengni. Hans kappsmál hlýtur að
vera að fá að spila aftur reglu-
lega og er því von á því að
hann skoði sín mál rækilega
í sumar. eirikur@frettabladid.is
Martraðatímbil Eiðs Smára
Eiður Smári Guðjohnsen hefur aðeins spilað í 24 mínútur með Fulham síðan
hann kom til félagsins í janúar og aldrei fengið tækifæri í byrjunarliði á tíma-
bilinu, hvort sem er með Fulham eða Stoke. Rúmt ár er frá hans síðasta marki.
FÓTBOLTI Helgin í enska boltan-
um var afar góð fyrir liðin frá
Manchester-borg. Manchester
United er komið í lykilstöðu á toppi
deildarinnar eftir frábæra endur-
komu í 2-4 sigri gegn West Ham.
Heimamenn í West Ham komust í
2-0 með tveimur vítaspyrnum frá
Mark Noble en United, með Wayne
Rooney fremstan í flokki, skiptu
um gír og á 19 mínútna kafla í síð-
ari hálfleik afgreiddi United leik-
inn. Rooney skoraði þrennu og
Javier Hernández bætti við fjórða
markinu undir lok leiks.
Rooney segir að það sé meistara-
bragur á spilamennsku United.
„Þegar Chelsea varð meistari fyrir
nokkrum árum þá átti liðið marg-
ar endurkomur eins og við um
helgina. Það má segja að tímabilið
sé núna að byrja fyrir alvöru. Við
eigum sjö leiki eftir, fjóra á heima-
velli þar sem við höfum verið frá-
bærir. Þetta er mikil áskorun fyrir
okkur en við erum tilbúnir.“
Með sigrinum er United komið
með sjö stiga forystu á Arsenal
í baráttunni um Englandsmeist-
aratitilinn en Arsenal missteig
sig enn einu sinni um helgina
og gerði markalaust jafntefli á
heimavelli gegn Blackburn. Segja
má að United sé komið með aðra
höndina á titilinn en Arsenal má
ekki misstíga sig það sem eftir er
tímabilsins til að eiga möguleika
á titlinum.
Manchester City fór langt með
að tryggja sér sæti í Meistara-
deildinni með 5-0 sigri gegn Sun-
derland í gær. City lék sér einfald-
lega að lánlausum leikmönnum
Sunderland og er nú komið upp í
þriðja sæti deildarinnar með 56
stig. Tottenham virðist vera að
missa af lestinni því liðið er í 5.
sæti, sex stigum á eftir City. - jjk
Wayne Rooney skoraði þrennu í magnaðri endurkomu Man. Utd. en Arsenal hélt áfram að misstíga sig:
United með enska meistaratitilinn í sigtinu
ROONEY Blótaði í myndavél er hann
fagnaði þriðja marki sínu og var gagn-
rýndur fyrir það. NORDIC PHOTOS/GETTY
JÚDÓ Íslandsmótið í júdó fór fram
í Laugardalshöllinni um helgina.
Þormóður Jónsson, JR, og Anna
Soffía Vík-
ingsdóttir,
Ármanni, unnu
bæði tvöfalt á
mótinu. Bæði í
sínum þyngd-
arflokki og svo
í opna flokkn-
um.
Athygli vakti
að Gunnar Nel-
son bardaga-
íþróttakappi tók þátt í keppninni
og náði hann góðum árangri.
Hann vann til bronsverðlauna
í -81 kg flokki og komst einnig
í bronsglímu í opna flokknum.
Hann tapaði þó þeirri glímu.
Úrslit mótsins má sjá á Vísi
auk viðtala við keppendur. - esá
Íslandsmótið í júdó:
Þormóður og
Anna sigursæl
ÞORMÓÐUR
JÓNSSON
EIÐUR SMÁRI
Í baráttu við Leon Osman,
leikmann Everton.
HANDBOLTI Valur og Fram munu
kljást um Íslandsmeistaratitilinn
í handbolta, rétt eins og í fyrra.
Bæði lið unnu rimmur sínar í
undanúrslitum úrslitakeppni N1-
deildar kvenna, 2-0, en síðari
leikirnir fóru fram um helgina.
Valur vann Fylki örugglega í
báðum leikjum liðanna og Fram
hafði nauman eins marks sigur
gegn Stjörnunni, 22-21, á laugar-
daginn eftir að hafa unnið fyrri
leikinn á heimavelli með átta
marka mun. Úrslitarimman hefst
á föstudagskvöldið. - esá
N1-deild kvenna:
Valur og Fram
mætast aftur