Fréttablaðið - 04.04.2011, Page 6
4. apríl 2011 MÁNUDAGUR6
15% afsláttur
Fæst án lyfseðils
N J Ó T U M Þ E S S A Ð H R E Y F A O K K U R
Nýtt lok!
Auðvelt að opn
a
ADVICE hópurinn telur hagsmunum Íslands best borgið með því að fella
Icesave-lögin þann 9. apríl. Auglýsingar og annað starf hópsins er greitt með
frjálsum framlögum og vinnuframlagi sjálfboðaliða. Tölvupóstur: advice@advice.is
www.advice.is
Lánshæfi smatsfyrirtækin lögðu öll rangt mat á stöðu
bankanna rétt fyrir hrun.
Í febrúar 2011 sendu Moody’s frá sér álit þar sem fram kom
að lánshæfi Íslands gæti farið í ruslfl okk ef Icesave yrði
hafnað. Ósmekkleg tímasetning, með hliðsjón af komandi
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Í Reuters frétt um sama efni er haft eftir Moody’s að versta
mögulega útkoma samningsins sé 50 milljarðar. Réttari
tala væri 233 milljarðar samkvæmt mati sem unnið var fyrir
fjárlaganefnd Alþingis.
Margt bendir til þess að álit Moody’s byggi á misskilningi
og röngum upplýsingum. Hver veitti þær? Hvenær ætlar
ríkisstjórn Íslands að leiðrétta þennan misskilning hjá
Moody’s?
Getum
við
treyst
Moody’s
núna?
Aaa
Moody’s um
íslensku bankana 2008:
JAPAN Lík tveggja starfsmanna
Fukushima Daiichi kjarnorkuvers-
ins, sem létust þegar flóðbylgja
skall á verið í hamförunum í Japan
fyrir rúmum þremur vikum, fund-
ust á miðvikudag. Tilkynnt var
um fundinn í gær, en eyða þurfti
skaðlegum efnum úr líkunum áður
en hægt var að skila þeim til fjöl-
skyldna fórnarlambanna.
Mennirnir voru 24 og 21 árs.
Samkvæmt japönsku fréttastof-
unni Kyodo létust mennirnir af
miklum höfuðáverkum. Yfir sex-
tíu lík hafa fundist á hamfara-
svæðunum síðustu daga, en um
16 þúsund manns er enn saknað.
Enn berst starfsfólk í kjarn-
orkuverinu við að koma í veg fyrir
að geislavirkt vatn leki í Kyrra-
hafið.
Upphaflega var ætlunin að
stöðva lekann með því að hella
steypu ofan í tankinn. Þær
tilraunir mistókust.
Yfirvöld í Japan telja ólíklegt
að geislavirku efnin muni ógna
heilsu fólks á svæðinu og víðar,
þar sem þau muni fljótlega leysast
upp í hafinu. - kg
Enn unnið að því að koma í veg fyrir geislavirkan vatnsleka í Japan:
Fundu geislavirk lík starfsmanna
FUKUSHIMA DAIICHI Starfsfólk reynir
að hindra útbreiðslu geislavirkra efna úr
kjarnorkuverinu sem skemmdist mikið
í hamförunum fyrir rúmum þremur
vikum. NORDICPHOTOS/AFP
PAKISTAN Maður sprengdi sjálfan
sig í loft upp í Punjab í Pakistan í
gær með þeim afleiðingum að 41
lést. Árásin var gerð nærri hofi
þar sem súfí-múslímar héldu upp
á þriggja daga helgiathöfn.
Samkvæmt Reuters-fréttastof-
unni hafa talíbanar í Pakistan
lýst yfir ábyrgð á hermdarverk-
inu. Íslamistar álíta súfí-
múslima villutrúarmenn.
Árásin nú er sú þriðja á þenn-
an fámenna hóp múslima. Þessi
árás er sú mannskæðasta.
- rat
Hryðjuverk í Pakistan:
41 lést í sjálfs-
morðsárás
FÓLK „Þetta sýnir sennilega að fólk
er hvergi óhult hér í Afganistan,“
segir Erlingur Erlingsson, starfs-
maður Sameinuðu þjóðanna í
Afganistan. Samstarfsmenn hans
og vinir voru myrtir af æstum múgi
á skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í
borginni Mazar-i-Sharif á föstudag.
„Það varð einhvers konar múg-
æsing eftir föstudagsbænir þar
sem einhverjir æsingamenn komu
við sögu. Eitthvað verður svo til
þess að múgurinn fer að skrifstofu
Sameinuðu þjóðanna þar sem menn
réðu einfaldlega ekki við hundrað
manna æstan múg. Afganska lög-
reglan greip svo ekki inn í atburða-
rásina heldur hélt sig til baka og
fylgdist bara með,“ segir Erlingur
um atburði föstudagsins.
Sjö starfsmenn Sameinuðu þjóð-
anna voru myrtir í árásinni, þar af
33 ára sænskur karlmaður og 53 ára
gömul norsk kona. Fjórir nepalskir
hermenn sem gættu skrifstofunnar
féllu einnig.
Múgurinn safnaðist saman fyrir
utan skrifstofuna til að mótmæla
því að söfnuður í lítilli kirkju í Flór-
ída í Bandaríkjunum brenndi Kór-
aninn í messu fyrr í mánuðinum.
Múgurinn kirjaði slagorð gegn
Bandaríkjunum og greip til ofbeld-
is þegar vopnaðir öryggisverðir
reyndu að loka inngangi skrifstof-
unnar.
Erl ingur er starfsmaður
UNAMA, stofnunar Sameinuðu
þjóðanna sem styður við uppbygg-
inguna í Afganistan í kjölfar inn-
rásarinnar í landið árið 2001. Hann
hefur unnið í Afganistan frá því í
febrúar 2009 og starfar í Kabúl.
Hann segir ástandið í Afganistan
flókið og erfitt að lýsa því í stuttu
máli. „Almenningur er orðinn lang-
þreyttur á átökunum. Sumir kvarta
mikið yfir framferði alþjóðaherliðs-
ins og reyndar skæruliðanna líka.
Í svona átökum verður almenning-
ur auðvitað alltaf á milli og þetta
bitnar því mest á almennum borg-
urum,“ segir Erlingur og bætir við:
„Helsta breytingin sem hefur orðið
hér undanfarið er að það er komin
tímalína fyrir brottför herliðsins
þannig að Afganar eru smátt og
smátt að taka sjálfir ábyrgð á öllum
öryggismálum.“
Starfsfólk Sameinuðu þjóðanna
og annarra alþjóðastofnanna hefur
lengst af verið tiltölulega öruggt
í Afganistan en síðustu misseri
hafa árásir á Sameinuðu þjóðirn-
ar færst í aukana. Erlingur segir
Kabúl nokkuð örugga en að árásin
á föstudag sýni að menn séu hvergi
algjörlega óhultir. „Í Mazar hafa
menn gengið um rólegir og nánast
farið einir á markaðinn. Svo gerist
eitthvað þessu líkt. Maður óttast því
auðvitað um öryggi sitt.“
magnusl@frettabladid.is
Missti góðvini sína
í árás í Afganistan
Erlingur Erlingsson er starfsmaður Sameinuðu þjóðanna í Afganistan. Sam-
starfsmenn hans létust í blóðugri árás múgs á skrifstofu SÞ á föstudag. Hann
segir ástandið í landinu flókið og að landsmenn séu langþreyttir á átökunum.
ERLINGUR ERLINGSSON Erlingur hefur starfað í Afganistan í rúm tvö ár. Hann hóf
störf hjá íslensku friðargæslunni en færði sig síðar yfir til Sameinuðu þjóðanna.
MYND/ÚR EINKASAFNI
MENNTAMÁL „Mér vitandi hefur
ekkert verið rætt við stjórnendur
framhaldsskóla um þessi mál. Við
vitum bara að við eigum að skera
niður kostnað um 5,5 prósent á
þessu ári og búumst við öðru eins
á því næsta. Ég sé ekki hvernig
þetta á að vera mögulegt miðað við
fjárveitingar til framhaldsskól-
anna,“ segir Hjalti Jón Sveinsson,
skólameistari Verkmenntaskólans
á Akureyri.
Fram kom í Fréttablaðinu á
laugardag að öllum umsækjendum
í framhaldsskóla, sem eru 25 ára og
yngri og uppfylla inngönguskilyrði,
verði tryggð skólavist næsta haust
samkvæmt drögum að aðgerða-
pakka sem ríkisstjórnin hefur kynnt
fyrir aðilum vinnumarkaðarins.
Hjalti Jón segir sjálfsagt að
reyna að finna úrræði fyrir þá úr
þessum aldurshópi sem hingað til
hafa ekki komist inn í framhalds-
skóla. „Það verður fróðlegt að sjá
með hvaða hætti yfirvöld hyggjast
hafa samráð við skólana um þessi
mál. Eftir rúma viku funda skóla-
meistarar með menntamálaráð-
herra á samstarfsnefndarfundi.
Ég reikna með að við fáum frekari
upplýsingar þá.“
Þrír aðrir skólameistarar sem
Fréttablaðið ræddi við, þau Ingi-
björg Guðmundsdóttir í Kvenna-
skólanum í Reykjavík, Jón B. Stef-
ánsson í Tækniskólanum og Már
Vilhjálmsson í Menntaskólanum
við Sund, eru sammála um að
fagna beri þessum fyrirætlunum
yfirvalda. Þau bíði eftir frekari
upplýsingum um ráðahaginn frá
yfirvöldum. - kg
Stjórnendum framhaldsskóla hafa ekki verið kynnt drög að aðgerðapakka:
Skólameistarar bíða eftir fundi
TILLÖGUR Skólameistarar, þar á meðal
Hjalti Jón Sveinsson í Verkmenntaskóla
Akureyrar, bíða eftir frekari útlistunum á
hugmyndum yfirvalda. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS
Ætlar þú að mæta og greiða at-
kvæði um Icesave-samninginn?
Já 91,0%
Nei 9,0%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hljópstu apríl?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN