Fréttablaðið - 04.04.2011, Side 15
MÁNUDAGUR 4. apríl 2011 15
Smið juvegi 76 Kópavogi S ími 414 1000 w w w.tengi . is
Baldur snes i 6 Akureyr i S ími 414 1050 t engi@t engi . is
MORA Í 25 ÁR Á ÍSLANDI
GÆÐI ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ - ÞAÐ ER TENGI
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15
Mora MMIX
sturtusett og tæki
HELSTU KOSTIR MORA MMIX:
AF NETINU
Já
Mér er illa við að greiða skuldir aðrar en þær sem ég stofna til sjálfur. Meira að segja er mér er ekkert
sérstaklega vel við að greiða mínar eigin, þótt ég geri það, en það er önnur saga. Þrátt fyrir þetta, ætla
ég að segja já í atkvæðagreiðslunni um Icesave og rökin fyrir því eru einföld; ég vil ekki mismuna fólki
eftir þjóðerni og ég vil losna við þetta mál út af borðinu því ég tel að lausn þess muni verða til þess að
flýta efnahagsbatanum verulega mikið. Þeir sem ætla að segja nei við Icesave, gera það margir með
þeim rökum að þeim beri ekki að greiða skuldir annarra og allra síst óreiðumanna en þau rök halda
engan veginn. Við erum nefnilega á hverjum einasta degi að greiða skuldir annarra, miklu stærri skuldir en Icesave
nokkurn tímann verður. Til dæmis allar inneignir íslenskra sparifjáreigenda sem ríkið pungaði út fyrir í Hruninu. Til
dæmis gjaldþrot Seðlabankans sem féll á ríkið. Og endurreisn fjármálakerfisins og þjóðfélagsins alls.
blog.eyjan.is/sludrid Björgvin Valur Guðmundsson
Fjallið mitt
Fjallið í lífi mínu er meðalfjall að stærð en það hefur allt sem gott fjall hefur upp á að bjóða, fegurð og hégóma. Það
býr svo vel að hafa vatn við rætur sínar þar sem það speglar sig á sólríkum morgni þegar ekki bærist strá.
pressan.is/pressupennar/Lesa_Bubba Bubbi Morthens
Hvernig sem
allt fer
Save getur á ensku verið nafnorð og þýtt hirslu til að
geyma verðmæti. Icesave er
,frystihólf sem geymir verð-
mæti‘ og sá sem það notar á að
geta treyst því að þar haldist
þau óskemmd uns komið er að
því að nota þau næst.
Björgunarsveitin …
Icesave stendur fyrir nokkurs
konar björgunarsveit verð-
mæta. Save þýðir ,öryggi‘. Það
þýðir að vera ,óhultur‘. Save
þýðir líka ,björgun‘ – bæði sem
sögn og nafnorð. Það er oft
notað í fótbolta þegar mark-
vörður ver glæsilega. Sá eða sú
sem lagði peninga inn á Iceave-
reikninginn var þar með að
bjarga verðmætum – og sér.
Með því að tengja saman fyrsta
persónufornafni ,I‘ og ,save‘ er
spilað á þetta: ,Ég bjarga‘ / ,Mér
er borgið‘.
Save getur þýtt ,að spara‘. I
save þýðir: ,ég spara‘. Icesave
þýðir: ,reikningurinn þar sem
ég spara‘.
Ice. Bara sjálft orðið vekur
upp mynd af landinu fagra í
norðri þar sem ísinn er og þar
sem náttúran hefur haldist
óspjölluð – þar sem verðmætin
hafa varðveist, þar sem allt er
slungið aðlaðandi dulúð. Ultima
Thule.
Iceland. Sjálft nafn landsins
var notað til að gefa til kynna
að sá sem legði inn fé á þessa
reikninga tengdist þar með
landinu, væri á einhvern hátt á
vegum þessa lands, eins og for-
vígismenn Landsbankans sögðu
raunar margsinnis.
Ice. Save. Það er kalt, það er
norrænt – það er traust. Orðið
,I‘ er samtvinnað við orðið ,Ice‘
á órjúfanlegan hátt. ,Ég á ís‘.
,Ísinn og ég‘. ,Ég og Ísland‘.
Hvernig sem á það er litið.
Markaðsherferðin Icesave
spilaði á það góða orðspor sem
Íslendingar höfðu í Englandi
og annars staðar í Evrópu um
hríð, einkum vegna framgöngu
íslenskra listamanna í þessum
löndum – ekki síst Bjarkar Guð-
mundsdóttur; spilaði á þetta
orðspor og sóaði því jafnharð-
an. Fólk úti í Evrópu hélt að
Ísland væri allt það sem það
hélt sig og átti að vera: Lítið
norrænt velferðarsamfélag þar
sem nýsköpun og frjó hugsun
væri í hávegum höfð – en líka
varðveisla verðmæta á borð
við náttúrugæði og menningu.
Fólk hélt að Íslendingar væru
vel menntaðir og fljótir að átta
sig í nýjum aðstæðum á tímum
netsamskipta og því gætu þeir
boðið hærri vexti en aðrir bank-
ar, en ekki vegna þess að þeir
væru ábyrgðalausir lukkuridd-
arar og sérleiðstyttarar. Sem
þeir voru.
„Aldrei séð aðra eins frystikistu“
En ó, þetta vitum við allt svo vel.
Og við megum alveg vera reið.
Látum fíflin heyra það, þá sem
stóðu fyrir þessum ósköpum;
misnotuðu nafn lands og þjóðar,
ráku starfsemi í hennar nafni
sem reyndist ekki traustsins
verð þegar á reyndi. Og hina
sem hrópuðu húrra og hvöttu
þá áfram. Og þau sem hálf gáfu
bankann ábyrgðarlausum mönn-
um. Og sjálfum okkur fyrir að
kjósa þau sem reyndust ekki
traustsins verð.
Verum endilega reið en við
verðum að hætta að beina þess-
ari reiði gegn hvert öðru, hætta
að láta etja okkur saman í fylk-
ingar kringum já eða nei í þessu
Icesave-máli. Við skulum heldur
reyna að straumbreyta þessari
reiði í orku sem getur farið í að
byggja eitthvað upp hérna. Við
skulum vera tortryggin og jarð-
bundin og skynsöm og hætta að
leggja eyrun við fagurgala og
bulli – en við verðum samt að
geta talað saman.
Hvernig sem þessar kosning-
ar fara – já eða nei – þá verðum
við að geta talað saman. Við
verðum að leggja af þennan
talsmáta sem fengið hefur að
þróast hér. Við verðum að hætta
þessum brigslum og gífuryrð-
um. Við verðum að hætta að
leggja okkur svona fram um að
misskilja hvert annað. Við verð-
um að hætta að gelta hvert á
annað. Við fáum ekkert út úr því
annað en hausverk. Við verðum
að hætta að ætla þeim sem við
erum ósammála hinar verstu
hvatir. Við verðum að hætta að
úthúða öðru fólki út af málefni
á borð við þetta Icesave-mál þar
sem ekkert okkar er gerandi og
ekkert okkar tengist í rauninni
neitt. Reynum heldur að rök-
ræða um framtíð samfélagsins,
hvernig við viljum hafa það,
hvernig við viljum raða hlutun-
um: hvernig við hugsum okkur
hið góða líf sem eigi að keppa að.
Og hvernig þessari þjóð muni
best vegna – í Evrópu, í sam-
krulli við Ameríku, eða bara ein
úti í hafi. Við þurfum að finna út
úr þessu. En það gerum við ekki
með öskrum og óhljóðum heldur
með því að tala saman.
Icesave þýðir ,frystikista‘.
Það kann að vera hentugur
íverustaður fyrir dauð matvæli
en fyrir lifandi fólk er þetta
afleitur staður að verja dögum
sínum. Hvernig sem fer þá er
óskandi að við getum brölt upp
úr henni og leyft sólinni að
skína á okkur.
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Í DAG
Reynum heldur
að rökræða um
framtíð samfélagsins,
hvernig við viljum hafa
það, hvernig við viljum
raða, hvernig við viljum
að gott líf sé.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
FÁÐU BEITTUSTU
BRANDARANA Í SÍMANN
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
Skopmyndir Halldórs Baldurssonar eru á Vísi