Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.04.2011, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 04.04.2011, Qupperneq 17
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 H vert í heiminum ferðu til að finna nýja kyn- slóð hæfileikaríkra hönnuða? New York, Parísar, Berlínar eða Kaupmanna- hafnar? Nei, til Íslands!“ Eitthvað á þessa leið skrifaði danska hönnunarfyrirtækið Nor- mann Copenhagen á bloggsíðu sinni, spottedbynormanncopen- hagen.com, þriðjudaginn 23. mars. Útsendarar fyrirtækisins voru svo mættir hingað á HönnunarMars á höttunum eftir því ferskasta. Þeir hittu hóp íslenskra hönnuða á kaupstefnunni DesignMatch, sem Hönnunarmiðstöð stóð fyrir nú í annað sinn en DesignMatch er að festa sig í sessi sem stökkpall- ur íslenskra hönnuða á erlendan markað. „Á þriðja tug verkefna fengu viðtal við þau fyrirtæki sem komu hingað, gagngert til að leita uppi nýjar vörur. Síðsumars kemur í ljós hvort og hvaða verkefni fá samning,“ segir Greipur Gíslason hjá Hönnunarmiðstöð Íslands og verkefnastjóri HönnunarMars. Hann segir jafnframt erlendu gestina hafa verið hrifna af skipu- lagi kaupstefnunnar og jákvæð ummæli, eins og þau á bloggsíðu Normann Copenhagen, hafi ýtt undir áhuga fleiri erlendra fram- leiðenda á íslenskri hönnun. „Þeim fannst frábært að allir mættu senda inn kynningu á vöru sem Hönnunarmiðstöð sendi svo á fyrirtækin, áður en þau komu til landsins. Fyrirtækin völdu hvaða hönnuði þau vildu hitta og við skipulögðum fundi. Það að hönn- uðurinn gæti hitt framleiðendur í sínum heimabæ og nýtt fund- inn eins og hann vildi þótti þeim frjálslegt og afslappað,“ segir Greipur „Fyrirtæki sem sáu sér ekki fært að mæta í ár hafa mik- inn áhuga á að vera með næst. Við reiknum með að verkefnið eigi eftir að stækka.“ Yfir 38.000 vörur eru seldar undir nafni Normann Copen- hagen í yfir 77 löndum. Þrjár íslenskar vörur eru nú í sölu hjá fyrirtækinu eftir DesignMatch í fyrra: Snagar og hitaplatti eftir Bryndísi Bolladóttur og snagar eftir Helgu I. Sigurbjarnadóttur. Heimasíða fyrirtækisins er www. normanncopenhagen.com. heida@frettabladid.is Kaupstefnan DesignMatch á HönnunarMars er stökkpallur fyrir íslenska hönnuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Íslandsstofa, Hönnunarmiðstöð Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Samtök iðnaðarsins auglýsa eftir umsóknum um þátttöku í þróunarverkefninu Hönnun í útflutning. Mark- mið verkefnisins er að leiða saman hönnuði og fyrirtæki í sam- vinnu um hönnun og framleiðslu á útflutningsvörum. www. honnunarmidstod.is Íslensk hönnun er ferskust NÝTT12 mánaða vaxtalausar greiðslur Listh Fermingartilboð GÆÐA- og verðsamanburð Verð nú 109.900 kr. Verð 164.900 kr. Mynda-upphengibrautir sem hafa þann kost að ekki þarf að negla í veggi og er mjög auðvelt að breyta uppröðun eða bæta við myndum. Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík S: 58 58 900. www.jarngler.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.