Fréttablaðið - 04.04.2011, Qupperneq 18
Woopy kallast þessi stóll sem hönnuðurinn Karim Rashid
hefur hannað fyrir ítalska húsgagnamerkið B-Line. Stóllinn er úr
plasti og mótaður í heilu lagi. www.dezeen.com
„Það er miklu algengara að fólk
láti blessa hús sitt heldur en vitn-
eskja er um og unga fólkið vill það
mjög gjarnan. Þetta er yndisleg
athöfn, einföld og góð,“ segir Anna
Sigríður Pálsdóttir, prestur í Dóm-
kirkjunni. Húsblessun er hluti af
þjónustu presta og í helgisiðabók
þeirra er ákveðið húsblessunar-
form sem farið er eftir. Prestar hér-
lendis sinna bæði húsblessun þegar
fólk er nýflutt inn, oft í tengslum við
heimaskírnir og einnig koma reglu-
lega fram beiðnir um blessun presta
frá fólki sem finnst það upplifa ein-
hvers konar óværu á heimilinu eða
hreinlega reimleika.
„Ég var orðin fimmtug þegar
ég varð prestur og það kom mér
mjög á óvart, hversu algeng fyrir-
spurn um húsblessun er. Sjálf er ég
af 68-kynslóðinni og athafnir sem
þessar voru fjarri okkur unga fólk-
inu þá. Þess vegna finnst mér svo-
lítið sérstakt og gaman að því að
fólk skuli vilja þetta í dag,“ segir
Anna Sigríður. Hún bætir við að
stundum komi beiðnir frá fólki sem
finnst það upplifa eitthvað vont í
húsnæðinu, einhvern anda.
Þjónusta presta snýst þó ekki um
að „reka burt illa anda“ heldur lesa
þeir úr ritningu, fara með bæn og
blessa. Sagan um tollinnheimtu-
manninn Sakkeus sem fór upp í
tré til að sjá Jesú er til að mynda
lesin, þar sem Jesús segir að hann
muni koma og vera í húsi Sakkeusar.
Anna Sigríður segist oft hafa heyrt
af því að fólki finnist það finna mun
eftir slíka athöfn enda geti óttinn
líka verið ótrúlegur fangavörður.
Það sé líka jákvætt að fólk upplifi að
það geti komið og tjáð vandræði sín
opinskátt. „Börn eru mjög næm og
þau hafa stundum orðið hrædd. Ég
hef farið á heimili þar sem börnum
leið óþægilega í einhverjum ákveðn-
um herbergjum og þá hafa þau tekið
þátt í athöfninni. Slík þátttaka verð-
ur ekki til þess að hræða þau, held-
ur einmitt til þess að hjálpa þeim að
sigrast á óttanum.“
Kröftug bæn megnar mikið
Séra Karl Valgarður Matthíasson,
vímuvarnarprestur og þjónar
einnig að hluta við Guðríðarkirkju,
hefur blessað hús allan sinn prest-
skap, 25 ár. „Í gegnum tíðina ber
þetta við hjá mér kannski tvisvar
til þrisvar á ári. Ég hef komið inn
í aðstæður þar sem virkilegur og
djúpur ótti hefur verið í fólkinu,
eins og því hafi fundist eitthvað illt
vera í kringum sig. Maður kemur á
staðinn og fer með bænir með fólk-
inu og biður guð að láta helga engla
sína vera á þessum stað. Máttur
bænarinnar er ótrúlegur og óend-
anlega mikill,” segir Karl og brosir.
Ef fólk upplifir eitthvað óþægi-
legt á heimilinu, hvernig ber það
sig að?
„Yfirleitt kemur fólkið og talar
við prestinn. Stundum getur þessi
vanlíðan verið andlegir erfiðleikar
en svo getur það líka verið eitthvað
óútskýrt og ekki tengt innri líðan
fólks. Þá kemur prestur gjarn-
an á heimilið. Ég hef gert þetta
þannig að ég signi við dyr hvers
herbergis,“ segir Karl. Hann seg-
ist hafa komið inn í erfiðar aðstæð-
ur, meðal annars þar sem fólk hafði
flúið heimilið. Óróinn á heimilinu
hvarf eftir blessunina og fólk gat
flutt aftur heim.
Húsblessun í innflutningsgjöf
Fréttablaðið hafði samband við
fleiri presta, Hjálmar Jónsson dóm-
kirkjuprest, séra Vigfús Þór Árna-
son í Grafarvogskirkju, séra Jónu
Hrönn Bolladóttur og Gísla Jónas-
son, prófast í Breiðholti, sem tóku
í sama streng og sögðust af og til
fá beiðnir þar sem fólk bæði prest
um að koma á heimilið þar sem
einhvers konar óróa gætti og fólk
væri hrætt. Jóna Hrönn segist einn-
ig muna eftir því að maður hafi
komið til sín og fengið hana til að
veita húsblessun sem innflutnings-
gjöf fyrir kærustu sína.
Gísli sagðist hafa farið inn í mjög
erfiðar aðstæður þar sem fólk hafði
upplifað mikla reimleika. „Það er
auðvitað ekki eins algengt að fólk
biðji um húsblessun vegna þess að
því líður illa á heimilinu, en það
kemur af og til fyrir að fólk biður
um að eitthvað sé hreinsað út. Og
ekki bara af einkaheimilum, ég
hef til að mynda farið á leikskóla
fyrir mörgum árum þar sem mikið
ósamlyndi ríkti og það varð til þess
að samskiptin urðu betri. Mér eru
nokkur atvik mjög eftirminnileg
og ég hef einu sinni lent í veruleg-
um átökum þar sem ég snarsvitn-
aði við blessunina. Ég hefði ekki
trúað þessu sjálfur, haldið að þetta
væri della fyrr en ég reyndi. En
heimilisfólk var þar greinilega að
upplifa eitthvað meiriháttar illt,“
segir Gísli og bætir við að ástandið
hafi snarbatnað að blessun lokinni.
Húsblessun ekki óalgeng
Svokölluð húsblessun er hluti af þjónustu presta og hérlendis hafa prestar þjónustað í slíkum athöfnum,
bæði þegar fólk flytur inn en einnig þegar fólk upplifir óþægindi, jafnvel reimleika, á heimilinu.
Stundum koma beiðnir til presta um húsblessun vegna þess að fólk upplifir eitthvað vont í húsnæðinu. NORDICPHOTOS/GETTY
Karl V.
Matthíasson
Gísli
Jónasson
Anna Sigríður
Pálsdóttir
Jóna Hrönn
Bolladóttir
Leit stendur yfir að
byggingu ársins. Leitin
fer fram í tilefni af
Hátíð byggingalistar
heimsins (The World
Architecture Festival),
sem haldin verður
í Barcelona í byrjun
nóvember. Sú bygg-
ing sem var útnefnd
í fyrra var Þjóðarsafn
listar 21. aldar eftir
Zaha Hadid Architects
MAXXI.
www.ai.is
Ég var orðin fimmtug þegar ég varð prestur og það
kom mér mjög á óvart, hversu algeng fyrirspurn um
húsblessun er.
Ný þáttaröð sjónvarpsstöðvarinnar Discovery Channel um særingar sem
er í vinnslu hefur valdið úlfaþyt innan kaþólsku kirkjunnar. Forsvars-
menn sjónvarpsstöðvarinnar lýstu því nefnilega yfir að þeir ynnu
þættina í samvinnu við Vatíkanið og hefðu fengið aðgang að leyni-
skjölum særingamanna þess við vinnsluna. Þessu neita forsvarsmenn
Vatíkansins harðlega og segja slíkt aldrei hafa komið til greina, enda hafi
það enga sérþjálfaða særingamenn á sínum snærum.
Heimild: .datelinezero.com
10%
25%
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið