Fréttablaðið - 04.04.2011, Qupperneq 39
MÁNUDAGUR 4. apríl 2011 23
Vasti Jackson verður á
meðal gesta á Blúshátíð í
Reykjavík sem verður hald-
in í áttunda sinn 16. til 21.
apríl. Hann segir blúsinn
vera í blóðinu, enda ólst
hann upp í Mississippi.
Bandaríski blúsarinn Vasti Jack-
son stígur á svið á Hilton-hótelinu
21. apríl á Blúshátíð í Reykjavík.
Hann er flinkur gítarleikari og
afburða blússöngvari og er þekkt-
ur fyrir að ná góðum tengslum við
áhorfendur á tónleikum.
Þetta verður í fyrsta sinn sem
hann kemur til Íslands. „Ég hef
komið til Finnlands, Noregs og Sví-
þjóðar en aldrei til Íslands. Ég verð
þarna í fjóra daga og ætla aðeins
og slappa af og skoða mig um,“
segir Jackson.
Hann kemur frá blúsríkinu Miss-
issippi og hefur verið í tónlistar-
bransanum í rúm 35 ár. Hann ólst
upp í mikilli tónlistar fjölskyldu.
„Afi minn Sammy Jackson og
amma mín Mary Jackson spiluðu
bæði á gítar og ég spilaði með þeim
heima hjá mér. Afi spilaði blús en
amma spilaði aðallega gospel.
Móðir mín söng líka og frændi
minn spilaði á alls konar hljóðfæri
þannig að fjölskyldan mín var á
kafi í tónlist.“
Jackson vann á sínum yngri
árum hjá útgáfufyrirtækinu
Malaco Records í bænum Jack-
son í Mississippi og var hljóðvers-
gítarleikari fyrir blúsara á borð við
Johnny Taylor, Little Milton og BB
King. Hann hefur einnig starfað
sem upptökustjóri og vann meðal
annars með djasssöngkonunni
Cassöndru Wilson og Harry Con-
nick Jr. Á ferli sínum hefur hann
gefið út fjórar plötur og kom sú síð-
asta, Stimulus Man, út í fyrra.
Fæði nga rbær Jacksons ,
McComb í suðurhluta Missis-
sippi, er um sjötíu kílómetrum
frá Hazlehurst, fæðingarbæ hins
þekkta blúsara Roberts Johnson.
Jackson hefur í gegnum tíðina
unnið ýmis verkefni í tengslum
við hinn sáluga Johnson. Hann kom
fram í heimildarþáttaröðinni The
Blues sem Martin Scorsese fram-
leiddi árið 2003 og fjallaði um upp-
runa blússins, þar á meðal Johnson.
Einnig leikur hann Johnson í leik-
riti um gítarsnillinginn sem verður
frumsýnt í Mississippi 17. júní.
Spurður út í rætur blússins
segir Jackson hann vera sambland
af evrópskri og afrískri tónlist
sem náði fótfestum í Bandaríkj-
unum. „Þetta er tónlist fólksins
og þegar þú heyrir þennan frum-
stæða takt langar þig bara að dansa
og skemmta þér. Blúsinn bindur
okkur við jörðina. Við getum talað
um blúsinn og skrifað bækur um
hann en þegar maður hlustar á
hann gerist eitthvað sérstakt innra
með manni,“ segir hann. Spurður
hvort hann ætli ekki að reyna að
smita Íslendinga af þessari blústil-
finningu á tónleikunum í Reykjavík
segist Jackson ekki þurfa að reyna
það: „Hún kemur með mig þangað.
Það er blúsinn sem flytur mig til
Íslands. Þessi tilfinning er í blóð-
inu. Hún er hjartað, sálin, lungun
og lifrin í því sem ég stend fyrir
sem tónlistarmaður.“
freyr@frettabladid.is
Með blústónlist í blóðinu
BLÚSARI TIL ÍSLANDS Mississippi-
blúsarinn Vasti Jackson stígur á svið á
Blúshátíð í Reykjavík 21. apríl.
Roger Waters, fyrrum liðsmaður
Pink Floyd, ætlar að spila lag
með hljómsveit sinni ásamt
fyrrum félaga sínum úr bandinu,
David Gilmore á tónleikum síðar
á þessu ári. Waters fer í tónleika-
ferð um Evrópu í vor þar sem
hann flytur plötuna The Wall í
heild sinni. Sex tónleikar verða
í Bretlandi í maí og allt útlit er
fyrir að Gilmore verði gestur
á einum þeirra. „Hann ætlar
að spila Comfortably Numb á
einum tónleikum. Það er algjört
leyndarmál hvaða tónleikar það
verða,“ sagði Waters. Pink Floyd
kom síðast saman árið 2005 en
þremur árum síðar lést hljóm-
borðsleikarinn Richard Wright.
Floyd-liðar
spila saman
ROGER WATERS Waters og David
Gilmore ætla að stíga á svið saman í
Bretlandi í vor.