Fréttablaðið - 04.04.2011, Side 46

Fréttablaðið - 04.04.2011, Side 46
4. apríl 2011 MÁNUDAGUR30SJÓNVARPSÞÁTTURINN „Ég held að í algjöru uppáhaldi sé þátturinn Six Feet Under. Mér finnst líka sjónvarpsþátturinn An Idiot Abroad mjög góður.“ Dögg Mósesdóttir, klippari og kvikmynda- gerðarkona. „Þeir eru rosalega góðir leikarar og skemmti- legir strákar,“ segir Agnar Jón Egilsson, leikari og leikstjóri. Agnar hefur fengið það hlutverk að þjálfa strákana í grínhópnum Mið-Ísland í leiklist. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu vinn- ur Mið-Ísland að sjónvarpsþáttum, en sýningar hefjast á Stöð 2 seinna á árinu. Agnar neitar að þurfa að taka Ara Eldjárn og félaga í grínhópn- um í gegn, enda séu þeir afar efnilegir leikar- ar. „En ég segi þeim stundum að vera kyrrir,“ segir Agnar. „Þeir láta gamminn geisa og eru rosalega fyndir. Ég þarf stundum að passa mig á að hlæja ekki of mikið.“ Agnar liðsinnir hópnum í spuna ásamt því að kenna þeim tæknilegar æfingar sem lærðir leikarar nota. „Það eru trix sem er gott fyrir þá að hafa bak við eyrun,“ segir hann. „Svo er þetta gott fyrir stemninguna.“ Agnar segir gott fyrir alla að æfa sig í því sem þeir gera, hvort sem það er leiklist eða annað. „Að vera með reglulegan tíma þar sem maður æfir sig í því sem maður gerir er eitt- hvað sem allir ættu að gera. Það gerir manni aldrei neitt nema gott,“ segir Agnar. „Ég er stoltur af því að þeir hafi beðið mig um að koma og vera fluga á vegg og koma með góðar hugmyndir um hvernig þeir geta þjálfað sig í leiðinni.“ Grínhópurinn Mið-Ísland verður með uppi- standskvöld á miðvikudaginn í Þjóðleikhús- kjallaranum. Sérstakir gestir verða Pétur Jóhann Sigfússon og Margrét Björnsdóttir, fyndnasti Verzlingurinn. - afb Leiðbeinir Mið-Íslands drengjum í leiklist ÞJÁLFARINN Mið-Íslandsdrengirnir Ari Eldjárn, Dóri DNA, Jóhann Alfreð og Bergur Ebbi eru undir hand- leiðslu Agnars Jóns. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Hætt hefur verið við gerð kvikmyndarinnar Mulan, sem Jan de Bont átti að leikstýra. Óttar Guðnason kvikmyndatökumaður hafði verið ráð- inn til að stjórna upptökum myndarinnar en nú er ljóst að af verkefninu verður ekki. Óttar vildi ekki tjá sig við Fréttablaðið um málið, sagði þetta vera hrakfallasögu frá upphafi til enda. Samkvæmt fréttum frá Hollywood hafa framleiðendur mynd- arinnar ekki lagt árar í bát en ólíklegt verður að teljast að nokkuð verði af gerð myndarinnar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Óttar verður að hætta við jafn stórt verkefni á vegum de Bonts. Hann hafði undirbúið tökur fyrir hasarmyndina Stopping Power í Berlín þar sem John Cusack átti að leika aðalhlutverkið ásamt fleiri stórum stjörn- um. Óttar var þá búinn að æfa bílaeltingarleiki og annað sem prýðir flottar hasarmyndir en það getur dregið ansi snögglega fyrir sólu í Hollywood. Einn framleiðandinn sagði sig frá verkefninu og fljót- lega voru allar tökuvélar stöðvaðar. Hið sama gilti um Mulan; Óttar var í Kína í rúman mánuð við leit að hentugum tökustöðum. Allt virtist ganga eins og í sögu, búið var að ráða Ziyi Zhang, stjörnu Crouching Tiger, en svo féll sprengjan og nánast fyrirvaralaust var hætt við gerð myndarinnar. De Bont er hvað þekktastur fyrir kvikmyndir sínar Speed, Twister og Lara Croft Tomb Raider: The Cradle of Life en hann hefur átt í erfiðleikum með að fjármagna kvik- myndir undanfarin ár. - fgg Óttar fær ekki að skjóta Mulan SLÆMUR FÉLAGSSKAPUR? Mulan er önnur kvikmynd Óttars með Jan de Bont sem hætt er við. Kvikmyndatökumaðurinn hugsar sig eflaust tvisvar um næst þegar de Bont hringir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Hún er ennþá að síast inn, þessi sigurtilfinning,“ segir Laufey Har- aldsdóttir, einn þriggja liðsmanna í Gettu betur-liði Kvennaskólans í Reykjavík. Liðið bar sigurorð af liði MR í spurningakeppni fram- haldsskólanna á laugardagskvöld í beinni útsendingu Sjónvarps- ins í æsispennandi keppni. Úrslit- in réðust á síðustu spurningu en Laufey segir sjálf að hún og liðs- félagar hennar, þeir Bjarki Freyr og Bjarni Lúðvíksson, hafi eflaust verið þau rólegustu í salnum. Lauf- ey á afmæli í dag, verður nítján ára og það var því varla hægt að hugsa sér betri afmælisgjöf, að hrifsa hljóðnemann sögufræga úr höndum erkifjendanna í MR. Árangur Laufeyjar er hins vegar enn merkilegri í ljósi þess að henni tókst loksins að rjúfa þykkan karlamúr spurningakeppninnar. Því í langri sögu Gettu betur hefur engin stelpa verið í sigurliði. Lauf- ey viðurkennir að sú staðreynd sé eilítið yfirþyrmandi. „Hún er eig- inlega fjarstæðukennd en mjög góð.“ Laufey fór hina hefðbundnu leið í Gettu betur-liðið, fór í inn- tökuprófið og var meðal þriggja efstu. Hún upplýsir jafnframt að fjölskyldan elski spurningaleiki, þau séu hálfgerð nörda-fjölskylda sem spili Trivial Pursuit af mikl- um móð og horfi á Gettu betur saman í sófanum og keppa inn- byrðis sín á milli. „Og þá tapaði ég alltaf,“ segir Laufey sem getur hins vegar gengið stolt um stofu- gólfið heima eftir frækna frammi- stöðu á laugardagskvöldinu. Gettu betur og þátttakan í þeirri keppni þykir ákaflega tímafrek og raunar tímaþjófur frá námi en Laufey lætur það hins vegar ekkert á sig fá. Hún hafði varla tíma til að spjalla, hún situr nefnilega í stjórn leikfélags Kvennaskólans sem er á fullu við að undirbúa frumsýningu. Og eins og það sé ekki nóg þá var Laufey einnig í Morfís-liði skólans sem tapaði fyrir Versló í sextán-liða úrslitum keppninnar. freyrgigja@frettabladid.is LAUFEY HARALDSDÓTTIR: YFIRÞYRMANDI EN GÓÐ TILFINNING Gaf sjálfri sér sigurinn í afmælisgjöf FYRSTA STELPAN Laufey Haraldsdóttir er fyrsta stelpan til að vera í sigurliði Gettu betur en Kvennaskóli Reykjavíkur sigraði MR í úrslitum spurningakeppni framhaldsskólanna á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ Eins og kemur fram hér til hliðar sigraði Kvennaskólinn í Reykjavík lið MR í æsispennandi keppni í Gettu betur. En það voru fleiri gáfnaljós sem uppskáru sigur í spurningakeppni um helgina því lið Norðurþings hafði nágranna sína frá Akureyri undir í spurningakeppni sveitarfélaganna, Útsvari, sem þau Sigmar Guð- mundsson og Þóra Arnórsdóttir stjórna. Sú keppni var ekkert síður spennandi en framhaldsskóla- keppnin og réðust úrslitin ekki fyrr en á lokametr- unum. Þessi heimilis- lega spurninga- keppni hefur notið mikilla vinsælda hjá íslenskum sjónvarpsáhorf- endum og gullkálfi Ríkissjón- varpsins verður því eflaust ekki slátrað í bráð. Það voru fleiri sem krýndir voru sigurvegarar um helgina því tríóið Samaris bar sigur úr býtum í Músíktilraunum þetta árið. Hljómsveitin er skipuð tveimur stúlkum og einum strák og leikur, samkvæmt vefsíðu Dr. Gunna, rólega raftónlist með tölvu, klarinett og söngrödd að vopni. Sigur í Músíktilraunum hefur oft verið ávísun á skjótfengna frægð í tónlistarbransanum en það hefur ekki verið öllum gefið að fylgja sigrinum eftir. Það verður því for- vitnilegt að sjá hver næstu skref tríósins verða en Agent Fresco, sigurvegararnir frá 2008, hefur til að mynda fengið frábæra dóma fyrir sína fyrstu plötu. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.