Fréttablaðið - 05.04.2011, Blaðsíða 7

Fréttablaðið - 05.04.2011, Blaðsíða 7
NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN - VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI - HLÍÐASMÁRA 9 : KÓPAVOGI : SÍMI 544 4500 : WWW.NTV.IS MIKIL AÐSÓKN - SKRÁÐU ÞIG STRAX! Forritunar- og Tækninám NTV NTV opnar nýjar leiðir út á vinnumarkaðinn Upplýsingar og skráning: 544 4500 / www.ntv.is Kerfisstjóri - 365 stundir - Verð: 539.000.- Nám fyrir þá sem vilja hasla sér völl sem kerfisstjórar hjá fyrirtækjum og stofnunum. Nemendur öðlast víðtækan skilning á uppsetningu netkerfa, viðgerðum og bilanagreiningu á vélbúnaði og uppsetningu stýrikerfa. Námið samanstendur af 3 námskeiðum: Tölvuviðgerðir, MCTS & Netvork+ ásamt MCITP Netstjórnun og er gefinn 10% afsláttur af öllum pakkanum. 3 alþjóðleg próf innifalin: „Micrsoft Certified Server Administrator“ Haustönn | Morgunnámskeið byrjar 30. ágúst. | Kvöld- og helgarnámskeið 29. ágúst. | Kerfisumsjón - 180 stundir - Verð: 272.000.- Nám fyrir þá sem vilja hasla sér völl sem kerfisumsjónarmenn hjá minni fyrirtækjum og stofnunum. Allar kennslugreinar eru kenndar frá grunni og er rétt að gera ráð fyrir nokkurri heimavinnu. Haustönn | Morgunnámskeið byrjar 30. ágúst | Kvöld- og helgarnámskeið byrjar 29. ágúst | Tölvuviðgerðir - 72 stundir - Verð: 119.000.- Nám fyrir þá sem vilja hasla sér völl á viðgerðarsviðinu. Verklegur undirbúningur fyrir A+ gráðurnar frá Comptia. Eftir námið eiga nemendur að vera í stakk búnir til að uppfæra, bilanagreina og gera við tölvubúnað, ásamt því að setja upp viðeigandi stýrikerfi og koma tölvum í netsamband. Kennt í sérútbúinni tölvuviðgerðarstofu. Haustönn | Morgunnámskeið byrjar 30. ágúst. | Kvöld- og helgarnámskeið 29. ágúst. | MCITP kerfisstjórnun (áður MCSA) - 185 stundir - Verð: 329.000.- MCITP námið er fyrir þá sem vilja starfa sem sérfræðingar við umsjón Microsoft netkerfa. Markmiðið með náminu er að nemendur læri undirstöðuatriði við rekstur og hönnun netkerfa byggðum á Windows stýrikerfinu og geti að náminu loknu tekið þau þrjú alþjóðlegu próf sem þarf til að verða: Microsoft Sertified Server Administrator. Vorönn | Morgunnámskeið byrjar 29. apríl | Haustönn | Morgunnámskeið byrjar 5. sept. | Kvöld- og helgarnámskeið byrjar 5. sept. | MCTS og Network+ - 108 stundir - Verð: 153.000.- Markmiðið með þessu námskeiði er að nemendur öðlist færni og kunnáttu til að setja upp og hafa umsjón með tölvum sem keyra á Windows stýrikerfinu. Nemendur öðlast einnig viðtækan skilning á netkerfum og geta leyst vandamál sem að þeim snúa. Auk þess er kynntur fyrir nemendum Windows 2008 Server. Að námskeiði loknu á nemandi að geta séð um rekstur minni eða meðalstórra tölvuneta. Vorönn | Morgunnámskeið byrjar 3. maí | Kvöld- og helgarnámskeið byrjar 11. maí. | Haustönn | Morgunnámskeið byrjar 29. sept. | Kvöld- og helgarnámskeið byrjar 26. sept. | Fornám í forritun - 108 stundir - Verð: 149.000.- Forritun er fjölbreytt, skapandi, alþjóðleg og skemmtileg starfsgrein sem stöðugt virðist vanta nýja starfskrafta. Markmiðið með þessu námskeiði er að undirbúa nemendur fyrir Diplomanám í forritun og einnig að gera nemendum betur kleift að meta hvort þeir hafi áhuga og getu til að halda áfram á þessari braut. Til þess að komast áfram í diplomanámið þurfa nemendur að ná lágmarkseinkunn í þeim prófum sem lögð eru fyrir. Þeir sem hafa stúdentspróf eða hliðstæða menntun geta valið að fara beint í Diplomanámið. Vorönn | Kvöld- og helgarnámskeið byrjar 26. apríl | Diplomanám í Forritun - 282 stundir - Verð: 399.000.- Öflugt starfsnám þar sem leitast er við að leggja traustan þekkingargrunn og byggja ofan á hann með skriflegum og verklegum æfingum. Að námi loknu eiga nemendur að hafa góða undirstöðuþekkingu og yfirsýn yfir þær aðferðir sem helst eru notaðar í nútíma hugbúnaðargerð og vera í stakk búnir að sækja um starf á þessu sviði. Námið byggir á stöðluðum námskeiðum frá Microsoft og að námi loknu eiga nemendur að vera færir að taka 3 alþjóðleg próf. Haustönn | Kvöld- og helgarnámskeið byrjar 6. september | Leikjaforritun - 204 stundir - Verð: 289.000.- Þeir sem ætla að fara í þetta nám þurfa að hafa lokið „Diplomanámi í forritun“ hjá NTV eða hafa tilsvarandi menntun. Námskeiðið miðar að því að gefa innsýn í almenna leikjaþróun og forritun og er unnið í Microsoft XNA þróunar umhverfinu. Farið er yfir helstu atriði leikjaforritunar með það að markmiði að gefa góða grunnþekkingu á hinum ýmsu sviðum leikjaþróunar. Áhersla verður lögð á verklegar æfingar og mun nemendum m.a. gefast kostur á að vinna að eigin leikjaverkefnum.. Haustönn | Kvöld- og helgarnámskeið byrjar 13. september | Cisco CCNA - 84 stundir - Verð: 289.000.- CCNA gráðan er talin ein öflugasta gráðan í upplýsingatækni sem völ er á. Ef þú hefur áhuga á að verða sérfræðingur í uppbyggingu á tölvunetum og þeim tækjum sem notuð eru í samskiptum í netheiminum í dag, þá er þetta námskeið fyrir þig. Námið er undirbúningur fyrir prófið 640-802 sem er CCNA prófið frá Cisco og er það innifalið í verði. Þetta er nám sem gerir talsverðar kröfur til nemenda, en styrkir án efa stöðu þeirra á vinnumarkaðinum. Haustönn | Kvöldnámskeið byrjar 11. október |

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.