Fréttablaðið - 05.04.2011, Blaðsíða 22
5. APRÍL 2011 ÞRIÐJUDAGUR4 ● jóga
●ÆFINGAR Á MEÐ
GÖNGU Hreyfing er holl á
meðgöngu og margar konur
nýta sér jóga til að halda lík-
amanum í góðu formi meðan
gengið er með barn. Regluleg
ástundun jóga er meðal annars
talin geta hjálpað til við að losa
vökva úr líkamanum og lina
krampa. Æfingarnar geta hjálp-
að til við að halda meltingunni
gangandi og minnka morgun-
ógleði. Þá má finna æfingar til
að losa um spennu kringum
fæðingarveginn og undirbúa
komandi fæðingu.
Eftir fæðinguna geta jógaæf-
ingar einnig hjálpað líkamanum
að ganga saman og öðlast fyrri
styrk. Sjá www.healthandyoga.
com
● UNGBARNAJÓGA nýtur
vaxandi vinsælda í Bandaríkjun-
um þar sem margir heilsugúrúar
fullyrða að það styrki böndin
milli foreldris og barns, auk þess
að róa börnin og hjálpa þeim að
sofa betur. Algengt er að ung-
barnanudd fylgi jóganu auk
þess sem foreldrarnir eru látnir
tala við barnið á meðan með
lágri sefandi rödd.
Jógakennarar sem lagt hafa
fyrir sig kennslu í ungbarna-
jóga halda því fram að hreyfing-
arnar í jóganu örvi bæði hreyfi-
getu og heilastarfsemi barns-
ins meira en aðrar æfingar sem
börn eru látin gera. Snerting for-
eldrisins auki þess utan fram-
leiðslu vellíðunarhormónsins
oxytokins bæði hjá foreldri og
barni og veiti þeim báðum
djúpa ró og vellíðan.
● MEIRA EN KYNLÍF Íslend-
ingar tengja tantra gjarnan við kyn-
líf vegna sjónvarpsþátta sem nutu
hér fádæma vinsælda fyrir nokkr-
um árum, þar sem nokkur pör tjáðu
sig á opinskáan hátt um samlífi sitt
og reynslu af tantra-æfingum. Reynd-
in er hins vegar sú að tantra nær yfir
allsherjar æfingakerfi sem samstend-
ur af gagnlegum jógaæfingum, hug-
leiðslu og sérstöku mataræði ásamt
fleiru eins og frá er greint á vefsíðu
Ananda Marga á Íslandi, ananda-
marga.is. Tilgangurinn er að öðlast
hamingjuríkt vitundarástand.
Sýndu lit í sumar
7.990 kr.
Kaupauki7.990 kr.
CINTAMANI AUSTURHRAUNI 3
210 GARÐABÆ, S. 533 3805
7.990 kr. 9.990 kr.
*T
ilb
o
ð
ið
g
ild
ir b
a
ra
í A
u
stu
rh
ra
u
n
i
● LEIK OG SÖNGKONAN
MADONNA hefur sjaldan eða
aldrei verið í betra formi. Það þakk-
ar hún ötulli líkamsrækt og jógaiðk-
un en Madonna stundar Asthanga-
jóga daglega. Æfingin varir í minnst
einn og hálfan tíma og er líkamlega
mjög erfið.