Fréttablaðið - 05.04.2011, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 05.04.2011, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 5. apríl 2011 15 Icesave-atriðin 10 1. Við borgum allt: Samkvæmt nýjustu samningsdrögum taka Íslendingar að sér að bæta Bretum og Hollendingum allt tjón þeirra vegna Icesave með vöxtum. Þeir fá 20.000 evrur á reikning, ætla að nota helming af þrotabúinu til að fjármagna það sem þeir ákváðu sjálfir að greiða til viðbótar og fá fjár- mögnunarkostnaðinn ofan á það sem þeir ætla Íslendingum að borga. Þetta hefði e.t.v. verið eðlilegt fyrsta tilboð á fyrsta fundi. 2. „Dómstólaleiðin“: Ólíklegt er að B&H vilji fara í mál vegna þess að það hentar þeim hvorki að vinna né tapa. Það væri afleitt fyrir Evrópulönd sem þegar eru í ríkisskuldakreppu að fá dæmda á sig ábyrgð á allt of stórum og löskuðum banka- kerfum sínum. Ef farið yrði í mál getur aðeins íslenskur dóm- stóll dæmt íslenska ríkið til greiðslu skaðabóta. Það hefur EFTA-dómstóllinn staðfest. Hvergi er að finna ríkisábyrgð á innistæðutryggingum en jafn- vel þótt hinn íslenski dómstóll liti framhjá því er óhugsandi að B&H yrði dæmt meira en algjört skaðleysi í málinu (þ.e. sama og núverandi drög gera ráð fyrir) 3. Neyðarlögin og mismunun: Samningarnir breyta engu um dómsmál vegna mismununar. Þegar liggur fyrir krafa um slíkt, m.a. frá hollenskum inni- stæðueigendum sem ekki fengu allt sitt greitt (Hollendingar mismunuðu sínu fólki saman- borið við Breta). Eftirlitsstofnun EFTA hefur sagt að hún skoði líklega málið óháð samningum. Samþykkt samningsins breytir því engu um þann hræðsluáróð- ur að neyðarlögunum kunni að verða blandað í málið. 4. Hverjum var mismunað?: Ef borinn er saman afrakstur innistæðueigenda á Íslandi annars vegar og í B&H hins vegar kemur í ljós að mismun- un bitnaði frekar á þeim sem áttu innistæður hér á landi en öfugt. Bretar fengu öll sín verð- mæti tryggð en þeir sem áttu innistæður á Íslandi fengu þær aðeins tryggðar í krónum sem fallið höfðu í verði um tugi pró- senta. Breska og hollenska ríkið hagnast gífurlega á neyðarlög- unum enda færðu þau kröfur þeirra í forgang. 5. Upphæðin: Ljóst er að 26 milljarðar í uppsafnaða vexti koma til greiðslu strax og samningarnir verða samþykkt- ir (sama upphæð og heildar- kostnaður við Búðarhálsvirkjun nema hvað sá kostnaður fellur til innanlands og eflir hagkerf- ið). Ath.: Ekki er hægt að nota þá tæpu 20 milljarða sem eru í innistæðutryggingasjóðnum í vaxtagreiðslur. Það veltur svo á því hvernig verðmæti þrotabús- ins sveiflast, og hvenær farið verður að greiða út, hver endan- leg upphæð verður. Þar getur munað tugum og hundruðum milljarða. 6. Gengisáhættan: Gengi krónunnar má ekki breytast mikið til þess að upphæðin sem lendir á ríkinu hækki verulega. Þar var hins vegar miðað við opinbert gengi Seðlabankans. Raunverulegt gengi er miklu veikara og því eru tölurnar um áætlað tjón ríkisins blekking. Reynt hefur verið að gera lítið úr gengisáhættunni með því að halda því fram að krónan sé lágt skráð og muni líklega styrkjast. Teldu menn slíkar upplýsingar öruggar gætu þeir orðið óendanlega ríkir á að veðja rétt á þróun gjaldmiðils. Aðalatriðið er þó það að verið er að reikna matið út frá opinberu gengi Seðlabankans sem hefur ekkert með raunverulegt gengi að gera. 7. Gjaldeyrishöft: Allir sem gáfu fjárlaganefnd mat á áhrif- um samninganna á gjaldeyris- höftin, nema Seðlabankinn, töldu að með þeim væri verið að festa gjaldeyrishöft í sessi og að áframhaldandi höft væru í raun forsenda samninganna. Nú hefur Seðlabankinn viðurkennt að til standi að viðhalda höftun- um út árið 2015. Varla þarf að taka fram að gjaldeyrishöft eru mun skaðlegri erlendri fjárfest- ingu en deila embættismanna um Evrópureglur. 8. Lánstraust og fjármögnun: Aukin skuldsetning bætir ekki skuldatryggingaálag heldur gerir það lakara. Þetta mátti öllum vera ljóst fyrir síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu en samt leyfðu Icesave-menn sér að halda hinu gagnstæða fram. Þegar Íslendingar höfnuðu Ice- save II fór lánstraust landsins að batna jafnt og þétt en hafði verið afleitt fram að því. Það hefur hins vegar fjarað undan öðrum ríkjum á sama tíma. Það er fráleitt að halda því fram að „alþjóðasamfélagið“ myndi samsæri um að setja lönd í fjár- mögnunarbann bara af því þau vilja standa á rétti sínum gagnvart ólögvörðum kröfum í afmörkuðu máli. Fólk og fyrir- tæki fjárfesta þar sem er hagn- aðarvon eins og hefur komið á daginn. 9. Ímynd þjóðarinnar: Haldi einhver að Íslendingar geti bætt ímynd sína með því að taka á sig skuldir einkabanka hefur sá hinn sami ekki verið að fylgjast með erlendum fjölmiðlum. Þar fagna menn framgöngu Íslend- inga í að bjóða fjármálageir- anum birginn og líta á baráttu Íslendinga sem fyrirmynd í þeirri baráttu sem nú er hafin í Evrópu vegna skuldakrísunnar. Meira að segja virtustu fjár- málablöð heims, Financial Times og Wall Street Journal, verja málstað Íslendinga. 10. Þeir sem höfðu rangt fyrir sér um allt: Málflutningur þeirra sem vilja að almenning- ur taki á sig Icesave-kröfurn- ar er ekki aðeins ótrúverðugur heldur líka óskammfeilinn því að sama fólk hélt fram nákvæm- lega sama hræðsluáróðri fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna síðast og hafði rangt fyrir sér um allt. Nú er sami áróður endurfluttur enda þótt fáránleiki hans blasi við hverjum sem fylgst hefur með fréttum. Tækifæri Íslands eru óþrjót- andi svo framarlega sem tekst að vinna á ríkisskuldunum. Ríkis- og bankaskuldakrísan í Evrópu er nú farin aftur á full- an skrið. Vilja Íslendingar lög- festa á sig áhættusamar kröfur í erlendri mynt rétt áður en þau mál koma öll upp á yfirborðið og í ljós kemur að aðrar þjóðir munu ekki taka á sig kröfur sem Íslendingum er ætlað að sam- þykkja án dóms og laga? Icesave Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður og formaður Framsóknarflokksins Vilja Íslendingar lögfesta á sig áhættu- samar kröfur í erlendri mynt rétt áður en þau mál koma öll upp á yfirborðið og í ljós kemur aðrar þjóðir munu ekki taka á sig kröfur sem Íslendingum er ætlað að samþykkja án dóms og laga? Vexti til Breta eða virkjun til okkar? Segjum NEI við Icesave! Áfallnir vextir Icesave III jafngilda kostnaði við Búðarhálsvirkjun Verði Icesave III samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu á laugardaginn þarf ríkissjóður Íslands strax að greiða Bretum og Hollendingum 26,1 milljarð króna í áfallna vexti vegna áranna 2009 – 2011. Greiðslan skal fara fram í erlendum gjaldeyri. Þetta er aðeins fyrsta vaxtagreiðslan. Fleiri fylgja á næstu árum. Landsvirkjun metur að heildarkostnaður við Búðarhálsvirkjun sé um 26,5 milljarðar króna, án fjármagnskostnaðar og virðisaukaskatts. Í stað fyrstu vaxtagreiðslunnar vegna Icesave III mætti reisa Búðarhálsvirkjun. www.andriki.is Allur kostnaður við starfsemi Andríkis, þar á meðal gerð og birtingu þessarar auglýsingar, er greiddur með frjálsum framlögum lesenda vefsíðu félagsins, en hvorki frá stofnunum, stjórnmálaflokkum eða öðrum hagsmunahópum. Í stað fyrstu vaxtagreiðslunnar vegna Icesave III mætti reisa Búðarhálsvirkjun.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.