Fréttablaðið - 05.04.2011, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 5. apríl 2011 15
Icesave-atriðin 10
1. Við borgum allt: Samkvæmt nýjustu samningsdrögum
taka Íslendingar að sér að bæta
Bretum og Hollendingum allt
tjón þeirra vegna Icesave með
vöxtum. Þeir fá 20.000 evrur á
reikning, ætla að nota helming
af þrotabúinu til að fjármagna
það sem þeir ákváðu sjálfir að
greiða til viðbótar og fá fjár-
mögnunarkostnaðinn ofan á það
sem þeir ætla Íslendingum að
borga. Þetta hefði e.t.v. verið
eðlilegt fyrsta tilboð á fyrsta
fundi.
2. „Dómstólaleiðin“: Ólíklegt
er að B&H vilji fara í mál vegna
þess að það hentar þeim hvorki
að vinna né tapa. Það væri
afleitt fyrir Evrópulönd sem
þegar eru í ríkisskuldakreppu
að fá dæmda á sig ábyrgð á allt
of stórum og löskuðum banka-
kerfum sínum. Ef farið yrði í
mál getur aðeins íslenskur dóm-
stóll dæmt íslenska ríkið til
greiðslu skaðabóta. Það hefur
EFTA-dómstóllinn staðfest.
Hvergi er að finna ríkisábyrgð
á innistæðutryggingum en jafn-
vel þótt hinn íslenski dómstóll
liti framhjá því er óhugsandi
að B&H yrði dæmt meira en
algjört skaðleysi í málinu (þ.e.
sama og núverandi drög gera
ráð fyrir)
3. Neyðarlögin og mismunun:
Samningarnir breyta engu um
dómsmál vegna mismununar.
Þegar liggur fyrir krafa um
slíkt, m.a. frá hollenskum inni-
stæðueigendum sem ekki fengu
allt sitt greitt (Hollendingar
mismunuðu sínu fólki saman-
borið við Breta). Eftirlitsstofnun
EFTA hefur sagt að hún skoði
líklega málið óháð samningum.
Samþykkt samningsins breytir
því engu um þann hræðsluáróð-
ur að neyðarlögunum kunni að
verða blandað í málið.
4. Hverjum var mismunað?:
Ef borinn er saman afrakstur
innistæðueigenda á Íslandi
annars vegar og í B&H hins
vegar kemur í ljós að mismun-
un bitnaði frekar á þeim sem
áttu innistæður hér á landi en
öfugt. Bretar fengu öll sín verð-
mæti tryggð en þeir sem áttu
innistæður á Íslandi fengu þær
aðeins tryggðar í krónum sem
fallið höfðu í verði um tugi pró-
senta. Breska og hollenska ríkið
hagnast gífurlega á neyðarlög-
unum enda færðu þau kröfur
þeirra í forgang.
5. Upphæðin: Ljóst er að 26
milljarðar í uppsafnaða vexti
koma til greiðslu strax og
samningarnir verða samþykkt-
ir (sama upphæð og heildar-
kostnaður við Búðarhálsvirkjun
nema hvað sá kostnaður fellur
til innanlands og eflir hagkerf-
ið). Ath.: Ekki er hægt að nota
þá tæpu 20 milljarða sem eru í
innistæðutryggingasjóðnum í
vaxtagreiðslur. Það veltur svo á
því hvernig verðmæti þrotabús-
ins sveiflast, og hvenær farið
verður að greiða út, hver endan-
leg upphæð verður. Þar getur
munað tugum og hundruðum
milljarða.
6. Gengisáhættan: Gengi
krónunnar má ekki breytast
mikið til þess að upphæðin sem
lendir á ríkinu hækki verulega.
Þar var hins vegar miðað við
opinbert gengi Seðlabankans.
Raunverulegt gengi er miklu
veikara og því eru tölurnar um
áætlað tjón ríkisins blekking.
Reynt hefur verið að gera lítið
úr gengisáhættunni með því
að halda því fram að krónan
sé lágt skráð og muni líklega
styrkjast. Teldu menn slíkar
upplýsingar öruggar gætu þeir
orðið óendanlega ríkir á að
veðja rétt á þróun gjaldmiðils.
Aðalatriðið er þó það að verið er
að reikna matið út frá opinberu
gengi Seðlabankans sem hefur
ekkert með raunverulegt gengi
að gera.
7. Gjaldeyrishöft: Allir sem
gáfu fjárlaganefnd mat á áhrif-
um samninganna á gjaldeyris-
höftin, nema Seðlabankinn,
töldu að með þeim væri verið að
festa gjaldeyrishöft í sessi og
að áframhaldandi höft væru í
raun forsenda samninganna. Nú
hefur Seðlabankinn viðurkennt
að til standi að viðhalda höftun-
um út árið 2015. Varla þarf að
taka fram að gjaldeyrishöft eru
mun skaðlegri erlendri fjárfest-
ingu en deila embættismanna
um Evrópureglur.
8. Lánstraust og fjármögnun:
Aukin skuldsetning bætir ekki
skuldatryggingaálag heldur
gerir það lakara. Þetta mátti
öllum vera ljóst fyrir síðustu
þjóðaratkvæðagreiðslu en samt
leyfðu Icesave-menn sér að
halda hinu gagnstæða fram.
Þegar Íslendingar höfnuðu Ice-
save II fór lánstraust landsins
að batna jafnt og þétt en hafði
verið afleitt fram að því. Það
hefur hins vegar fjarað undan
öðrum ríkjum á sama tíma. Það
er fráleitt að halda því fram
að „alþjóðasamfélagið“ myndi
samsæri um að setja lönd í fjár-
mögnunarbann bara af því
þau vilja standa á rétti sínum
gagnvart ólögvörðum kröfum í
afmörkuðu máli. Fólk og fyrir-
tæki fjárfesta þar sem er hagn-
aðarvon eins og hefur komið á
daginn.
9. Ímynd þjóðarinnar: Haldi
einhver að Íslendingar geti bætt
ímynd sína með því að taka á
sig skuldir einkabanka hefur sá
hinn sami ekki verið að fylgjast
með erlendum fjölmiðlum. Þar
fagna menn framgöngu Íslend-
inga í að bjóða fjármálageir-
anum birginn og líta á baráttu
Íslendinga sem fyrirmynd í
þeirri baráttu sem nú er hafin í
Evrópu vegna skuldakrísunnar.
Meira að segja virtustu fjár-
málablöð heims, Financial
Times og Wall Street Journal,
verja málstað Íslendinga.
10. Þeir sem höfðu rangt
fyrir sér um allt: Málflutningur
þeirra sem vilja að almenning-
ur taki á sig Icesave-kröfurn-
ar er ekki aðeins ótrúverðugur
heldur líka óskammfeilinn því
að sama fólk hélt fram nákvæm-
lega sama hræðsluáróðri fyrir
þjóðaratkvæðagreiðsluna síðast
og hafði rangt fyrir sér um allt.
Nú er sami áróður endurfluttur
enda þótt fáránleiki hans blasi
við hverjum sem fylgst hefur
með fréttum.
Tækifæri Íslands eru óþrjót-
andi svo framarlega sem tekst
að vinna á ríkisskuldunum.
Ríkis- og bankaskuldakrísan í
Evrópu er nú farin aftur á full-
an skrið. Vilja Íslendingar lög-
festa á sig áhættusamar kröfur
í erlendri mynt rétt áður en þau
mál koma öll upp á yfirborðið
og í ljós kemur að aðrar þjóðir
munu ekki taka á sig kröfur sem
Íslendingum er ætlað að sam-
þykkja án dóms og laga?
Icesave
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
þingmaður
og formaður
Framsóknarflokksins
Vilja Íslendingar lögfesta á sig áhættu-
samar kröfur í erlendri mynt rétt áður
en þau mál koma öll upp á yfirborðið og
í ljós kemur aðrar þjóðir munu ekki taka á sig kröfur
sem Íslendingum er ætlað að samþykkja án dóms og
laga?
Vexti til Breta
eða virkjun til okkar?
Segjum NEI við Icesave!
Áfallnir vextir Icesave III jafngilda kostnaði við
Búðarhálsvirkjun
Verði Icesave III samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu
á laugardaginn þarf ríkissjóður Íslands strax að
greiða Bretum og Hollendingum 26,1 milljarð
króna í áfallna vexti vegna áranna 2009 – 2011.
Greiðslan skal fara fram í erlendum gjaldeyri.
Þetta er aðeins fyrsta vaxtagreiðslan.
Fleiri fylgja á næstu árum.
Landsvirkjun metur að heildarkostnaður við
Búðarhálsvirkjun sé um 26,5 milljarðar króna,
án fjármagnskostnaðar og virðisaukaskatts.
Í stað fyrstu vaxtagreiðslunnar vegna Icesave III
mætti reisa Búðarhálsvirkjun.
www.andriki.is
Allur kostnaður við starfsemi Andríkis, þar á meðal gerð og birtingu þessarar auglýsingar, er greiddur með frjálsum
framlögum lesenda vefsíðu félagsins, en hvorki frá stofnunum, stjórnmálaflokkum eða öðrum hagsmunahópum.
Í stað fyrstu vaxtagreiðslunnar vegna Icesave III
mætti reisa Búðarhálsvirkjun.