Fréttablaðið - 05.04.2011, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 05.04.2011, Blaðsíða 2
5. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR2 STJÓRNSÝSLA Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra skipaði í gær Sigríði J. Friðjónsdóttur, saksókn- ara Alþingis, í embætti ríkissak- sóknara. Sigríður hefur undanfar- ið verið í leyfi frá starfi sínu sem vararíkissaksóknari. Sigríður segir að nú séu þrír kost- ir í stöðunni. Sá fyrsti sé að hún segi sig frá máli Alþingis á hendur Geir H. Haarde. „En það er nú kannski ekkert einfalt því ég er kosin í þetta starf. Það er talað um það í lögunum að það skuli kosinn varasaksóknari og hann á að taka við ef maður for- fallast, en það er ekki hægt að segja að maður forfallist ef maður fær nýtt starf,“ útskýrir Sigríður. Auk þess sé hún komin á kaf í málið og því sé kannski ekki gott að yfirgefa það núna. Annar kosturinn sé að setja annan ríkissaksóknara tímabundið þangað til málarekstrinum fyrir landsdómi sé lokið. „En auðvitað vil ég sjálf koma að þessu sem allra fyrst. Það er margt sem þarf að gera.“ Þriðji kosturinn sé að hún sinni störfunum einfaldlega samhliða. Málið gegn Geir sé bara eitt mál sem hún hafi tekið að sér og það sé algengt að fólk sinni aukaverkum með aðalstarfi. „Það er spurning hvort það horfir eitthvað öðru- vísi við með þetta mál. Ég þarf að fara yfir það með fleirum en sjálfri mér,“ segir hún. Sigríður ræddi í gær við Atla Gíslason, formann þingmanna- nefndarinnar, sem er henni til halds og trausts, og hann bjóst við að kalla nefndina saman og fá Sigríði á fundinn til að ræða stöðuna. Sigríður segir að málareksturinn fyrir landsdómi þurfi ekki að taka nema nokkrar vikur eftir að ákær- an verði gefin út, sem verði vonandi fyrir páska. - sh Auðvitað vil ég sjálf koma að þessu sem allra fyrst. Það er margt sem þarf að gera. SIGRÍÐUR FRIÐJÓNSDÓTTIR RÍKISSAKSÓKNARI SKIPULAGSMÁL Framkvæmdir eru hafnar við að breyta Austur- stræti milli Lækjargötu og Póst- hússtrætis í göngugötu. Grænu stálpollarnir sem liggja eftir endilöngu strætinu við núverandi bílastæði verða fjarlægðir en trén í götunni verða áfram. Við Lækjargötu verður lokað fyrir umferð inn í Austurstræti og járnhliðið sem trónt hefur þar yfir verður fjarlægt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavík- urborg. Hellulögn verður endur- nýjuð og snjóbræðslu verður komið fyrir. Áætluð verklok eru 16. maí. - sv Framkvæmdir hafnar: Austurstræti fyrir gangandi FRAMKVÆMDIR Á LÆKJARGÖTU Undir- búningur fyrir göngugötu í Austurstræti er hafinn og ætlað er að þeim ljúki um miðjan maí næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Óvissa ríkir um framhald máls Geirs Haarde eftir að saksóknari Alþingis var skipaður ríkissaksóknari í gær: Segir þrjá kosti í stöðunni eftir skipunina BANDARÍKIN, AP Barack Obama og Joe Biden tilkynntu í gær að þeir ætluðu að gefa kost á sér til ann- ars kjörtíma- bils sem forseti og varaforseti Bandaríkj- anna. „Við höfum alltaf vitað að varanleg- ar breytingar koma hvorki hratt né auð- veldlega,“ sagði Obama í gær. Í kosninga- baráttu sinni fyrir þremur árum hafði hann lofað að gera gagn- gerar breytingar á bandarískum stjórnmálum. Næstu kosningar verða haldnar í nóvember árið 2012. Þeir Obama og Biden eru snemma á ferðinni að þessu sinni vegna þess að þeir þurfa að safna einum milljarði dala, eða nærri 115 milljörðum króna, í kosningasjóð. - gb Obama gefur kost á sér: Ætlar að safna milljarði dala BARACK OBAMA Hjörtur, hvor ykkar feðganna er aðalspaðinn á heimilinu? „Guð minn góður, það er auðvitað sonurinn. Það er miklu meira efni í honum.“ Fríkirkjupresturinn Hjörtur Magni Jóhannsson vann um helgina Íslands- meistaratitil í sínum flokki í borðtennis, eins og Magnús Jóhann sonur hans. Þeir æfa sig reglulega í kjallaranum. LÖGREGLUMÁL Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæð- isins, mætti sjálfur á ritstjórnar- skrifstofur DV í gær vegna hót- unarbréfs sem þangað barst. Í bréfinu eru nafngreindir tuttugu fyrrverandi ráðherrar úr ýmsum stjórnmálaflokkum sem eiga það sameiginlegt að mæla með því að fólk segi já í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave. Bréfritarinn segir að þetta fólk ætti „nú þegar að fá sér lífverði eða sem allra fyrst“. Lögreglan telur bréfið ekki trúverðugt. - gar Lögreglan skoðar hótunarbréf: Já-boðberar fái sér strax lífverði VIÐSKIPTI Að óbreyttu mun aðeins eitt til þrjú prósent fást upp í kröfur í þrotabú Milestone, að sögn Gríms Sigurðssonar skipta- stjóra. Þá tapast um níutíu millj- arðar króna. Skilanefnd Glitnis á stærstu kröfuna, 46 milljarða króna. Grímur segir stöðuna geta breyst ef þrotabúið vinnur tíu rift- unarmál gegn fyrri eigendum og stjórnendum. Flest málin snúa að bræðrunum Karli og Steingrími Wernerssonum og Guðmundi Óla- syni, fyrrverandi forstjóra, meðal annars vegna ítrekaðra lánveit- inga til bræðranna. Grímur telur að frá miðju ári 2007 hafi Mile- stone nánast eingöngu verið rekið með lánum frá Glitni. - þþ Risavaxið gjaldþrot Milestone: Níutíu milljarða gat í bókunum FÓLK Ögmundur Jónasson innan- ríkisráðherra boðar breytingar á stefnu og regluverki Útlend- ingastofnunar í kjölfar þess að Priyönku Thapa, 23 ára stúlku frá Nepal, var synjað um dvalarleyfi af mannúðarsjónarmiðum hér á landi. Ögmundur átti fund með stjórnendum Útlendingastofn- unar í gærmorgun og í kjölfarið fékk Priyanka tilkynningu um að umsókn hennar yrði endurskoðuð. Mál Priyönku Thapa hefur verið mikið í umræðunni síð- ustu daga. Hún s a g ð i s ö g u sína upphaf- lega í Frétta- blaðinu síðasta aðfangadag þar sem kom fram að ef hún fengi ekki dvalarleyfi á Íslandi biði hennar þræl- dómur í heima- landinu. Móðir hennar, sem er einstæð, á orðið erfitt með að framfleyta sér og fötluðum syni sínum. Hún tók því til þess ráðs að gefa Priyönku fertugum manni sem hefur lofað að sjá fyrir fjöl- skyldunni. Priyanka hefur aldrei hitt manninn. Hún vill heldur búa hér á landi og afla sér frekari menntunar. Útlendingastofnun synjaði umsókn Priyönku, taldi ekki nægar sannanir fyrir því að hún yrði neydd í hjónaband eða að hennar biði ómannúðleg eða van- virðandi meðferð í heimalandi sínu. Innanríkisráðherra átti fund með stjórnendum Útlendinga- stofnunar í gærmorgun þar sem farið var yfir stefnu og verklag stofnunarinnar. Síðar um daginn fékk Priyanka þær upplýsingar að umsókn hennar yrði tekin upp að nýju. Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra fagnar ákvörðun Útlend- ingastofnunar. „Ég átti fund með Útlendingastofnun í gær þar sem við fórum yfir stefnu og regluverk stofnunarinnar þegar kemur að því að veita fólki dvalarleyfi eða hafna. Þar eru augljóslega margar brotalamir sem verður að laga.“ Ögmundur segir að þeir sem gagnrýni störf Útlendingastofn- unar verði að hafa það í huga að starfsmenn hennar vinni eftir þeim reglum og þeirri stefnu sem stjórnvöld setji. „Ef sú stefna er röng verða stjórnvöld að breyta henni og það ætla ég að gera,“ segir innanríkisráðherra. Sigurður Örn Hilmarsson, lög- fræðingur Priyönku, segir að nú verði unnið í umsókninni og frekari gögn lögð fram. „Það er ánægjulegt að sjá að Útlendinga- stofnun hafi séð að sér með þetta mál,“ segir Sigurður Örn. Hann segir óvíst hvenær niðurstaða fáist í málið. „Það tók þrjá mánuði að afgreiða síðustu umsókn henn- ar svo stofnunin þekkir málið vel. Ég reikna því ekki með að þetta taki jafn langan tíma núna.“ Ekki náðist í Kristínu Völundar- dóttur, forstjóra Útlendingastofn- unar, í gær. kristjan@frettabladid.is Mál Priyönku tekið til skoðunar að nýju Ráðherra ætlar að breyta stefnu og regluverki Útlendingastofnunar í kjölfar máls Priyönku Thapa. Ráðherra fundaði með stjórnendum stofnunarinnar í gær og í kjölfarið var ákveðið að taka umsókn Priyönku til endurskoðunar. ÖGMUNDUR JÓNASSON PRIYANKA THAPA Útlendingastofnun synjaði umsókn Priyönku þar sem hún taldi ekki nægar sannanir fyrir því að hún yrði neydd í hjónaband eða að hennar biði ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í Nepal. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELMI KJARAMÁL „Við erum að tala okkur nær hver öðrum. Það er enginn búinn að hafna neinu eða sam- þykkja neitt,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, um ganginn í kjaraviðræðum SA og ASÍ. „Það hefur hvesst stundum en þetta þokast áfram,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. „Það hefur verið tekist á um launaliðinn. Það endaði með því að SA kom með útspil sem kom til móts við áherslur okkar að þessu leyti.“ Bæði Vilhjálmur og Gylfi segja enn standa upp á ríkisstjórnina til að ná megi samningi til þriggja ára. „Þetta er háð því að stjórnvöld beiti sér og taki ákvarðanir sem duga til þess að auka hér verulega innspýtingu og fjárfestingar og að hér hefjist hagvaxtarskeið.“ segir Gylfi. „Stjórnvöld verða að taka ákvarðanir, bæði um rammaáætl- anir og virkjanir, það gerist ekkert öðruvísi. Það er sjálfsblekking að halda að við getum aukið hagvöxt á óbreyttum umsvifum.“ Vilhjálmur segir mikið velta á því að menn sjái til lands í málum sem snúi að ríkisstjórninni. Meðal annars varðandi stórframkvæmd- ir og lækkun tryggingargjalds sem skipti afgerandi máli varðandi launahækkanir. Enn sé óvissa um sjávarútveginn. „Við lítum svo á að það sé nauðsynlegt að sjávarútveg- urinn sé með í samfélaginu,“ segir framkvæmdastjóri SA. - gar Viðræðum haldið áfram þótt snurða hafi hlaupið á þráðinn hjá ASÍ og SA í gær: Þokast áleiðis í kjaraviðræðum VILHJÁLMUR EGILSSON OG GYLFI ARNBJÖRNSSON ASÍ og SA halda áfram að þrýsta á ríkisstjórnina varðandi fjárfestingar og önnur málefni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.