Fréttablaðið - 05.04.2011, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 05.04.2011, Blaðsíða 34
5. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR26 sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Landsliðsmaðurinn Kol- beinn Sigþórsson fór meiddur af velli í leik AZ Alkmaar um helgina. Eftir leikinn gaf þjálfari liðsins í skyn að meiðsli Kolbeins væru það alvarleg að hann spilaði kannski ekki meira í vetur. „Ég spurði hann út í þetta og hann segist ekki hafa svarað alveg þannig. Hann sagði líklegt að ég væri tognaður en ef ég væri óhepp- inn væri veturinn kannski farinn hjá mér,“ sagði Kolbeinn um þessi ummæli en hann er sem betur fer ekki alvarlega meiddur. „Það er ekkert að mér. Ég var tæklaður illa í ökklann. Ég reyndi að halda áfram en gat það ekki. Fyrst ég gat hreyft mig eftir tæklinguna óttaðist ég aldrei að þetta væri eitthvað alvarlegt. Ég er aðeins tognaður og þarf að hvíla mig í eina til tvær vikur. Ég verð fljótur að jafna mig á þessu,“ sagði Kolbeinn brattur en það hefði verið mikið áfall fyrir U-21 árs landsliðið ef hann hefði meiðst alvarlega. Kolbeinn hefur spilað einkar vel í vetur og verið iðinn við marka- skorun. Talsvert hefur verið greint frá áhuga annarra félaga á honum og hafa nöfn eins og Newcastle og Feyenoord verið nefnd í því sambandi. „Ég finn fyrir miklum áhuga. Ég get ekki neitað því. Ég er annars ekkert að velta mér upp úr slíku og einbeiti mér að því að spila fót- bolta. Svo sjáum við bara hvað gerist í framhaldinu.“ - hbg Kolbeinn Sigþórsson er ekki alvarlega meiddur: Verð fljótur að jafna mig EKKI ALVARLEGT Kolbeinn verður kominn aftur á ferðina eftir nokkra daga. NORDICPHOTOS/AFP SKÓLAFÓLKIÐ í Bandaríkjunum mun allt mæta á Íslandsmeistaramótið í 50 metra laug sem fram fer í Laugardalslauginni um næstu helgi. Búast má við gríðarlega harðri keppni um Íslandsmeistaratitilinn í mörgum greinum því Hrafnhildur Lúthersdóttir, Erla Dögg Haralds- dóttir, Árni Már Árnason og Sarah Blake Bateman koma öll heim. Þetta mót er jafnan eitt mikilvægasta mót ársins þar sem sundfólkið gerir atlögu að lágmörkum fyrir stórmót erlendis á borð við HM50, Evrópumót unglinga, Smáþjóðaleikana og EM25. KÖRFUBOLTI Annar leikur loka- úrslita í Iceland Express-deild kvenna fer fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík klukkan 19.15 í kvöld en þar tekur öskubuskulið Njarð- víkur á móti bikarmeisturum Keflavíkur. Keflavík er 1-0 yfir eftir dramatískan eins stigs sigur, 74-73, í fyrsta leiknum á laugar- daginn þar sem sigurkarfa Lisu Karcic kom um leið og leiktíminn rann út. Njarðvíkurkonur hafa unnið alls þrjá heimaleiki sína í úrslita- keppninni til þessa og hafa ekki tapað í Ljónagryfjunni í sextíu daga, eða síðan Keflavík vann þriggja stiga sigur í leik liðanna í undanúrslitum Powerade-bikars- ins 4. febrúar. Fyrsti leikurinn lofar góðu um spennandi úrslitaeinvígi en Íslandsmeistaratitilinn hefur unn- ist í oddaleik undanfarin tvö ár. - óój Iceland Express-deild kvenna: Keflavík mætir í Ljónagryfjuna SHAYLA FIELDS Hefur skorað 24,4 stig að meðaltali í leik fyrir Njarðvík í úrslitakeppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Kynningarfundur um umhverfismál Norðurál og Elkem Íslandi halda opinn kynningarfund um umhverfismál og framleiðslu fyrirtækjanna á Grundartanga. Kynning verður að Hótel Glymi að Hvalfjarðarströnd, fimmtudaginn 7. apríl n.k. og hefst klukkan 13:00. Á fundinum munu fyrirtækin kynna niðurstöður mengunarvarna og umhverfisvöktunar á Grundartanga fyrir árið 2010. Einnig mun liggja frammi eintök af ársskýrslu umhverfisvöktunarinnar á Hvalfjarðarsvæðinu fyrir iðjuverin á Grundartanga, sem unnin var af verkfræðistofunni Eflu. Áhugasamir eru hvattir til að koma á fundinn. Iceland Express-deild karla: Keflavík-KR 104-103 Keflavík: Magnús Þór Gunnarsson 29/4 fráköst, Thomas Sanders 21/8 fráköst/7 stoðsend- ingar, Hörður Axel Vilhjálmsson 16/6 fráköst/7 stoðsendingar, Andrija Ciric 13/11 fráköst, Gunnar Einarsson 12/7 fráköst, Sigurður Gunnar Þor- steinsson 8/8 fráköst/7 stoðsendingar/5 varin skot, Þröstur Leó Jóhannsson 5. KR: Marcus Walker 28/9 stoðsendingar, Brynjar Þór Björnsson 20, Pavel Ermolinskij 16/17 fráköst/5 stoðsendingar, Finnur Atli Magnússon 12/8 fráköst/3 varin skot, Fannar Ólafsson 9/10 fráköst, Skarphéðinn Freyr Ingason 6, Ólafur Már Ægisson 6, Hreggviður Magnússon 6. Staðan í einvíginu er 2-2. ÚRSLIT KÖRFUBOLTI Keflvíkingar eru á góðri leið með því að endurtaka leikinn fyrir þremur árum þegar þeim tókst að vinna seríu eftir að hafa lent 0-2 undir en það er í eina skiptið sem það hefur gerst. Kefl- víkingar tryggðu sér oddaleik á móti KR á fimmtudaginn eftir 104- 103 sigur í frábærum framlengd- um leik í Toyota-höllinni í Keflavík í gærkvöldi. Thomas Sanders skoraði sigur- körfu Keflavíkur eftir sókn- arfrákast níu sekúndum fyrir leikslok og KR-ingar fengu síðan tvö skot til þess að tryggja sér sigur en mistókst í bæði skiptin. Gunnar Einarsson varði lokaskot Ólafs Más Ægissonar og heimt- uðu KR-ingar villu en ekkert var dæmt. Marcus Walker hafði tryggt KR-liðinu framlengingu en tókst ekki að tryggja þeim sæti í lokaúrslitunum. Leikurinn var stórkostleg skemmtun, hraður, spennandi og uppfullur af áhlaupum beggja liða, frábærum tilþrifum og enda- lausum sveiflum fram og til baka. Keflvíkingar voru nokkrum sinn- um búnir að missa KR-liðið frá sér en þeim tókst alltaf að grafa sig aftur upp úr holunni og unnu á endanum mikinn karaktersigur. Keflavík lenti 0-2 undir í einvíg- inu en hefur unnið tvo síðustu leiki í framlengingu. „Þetta er bara langskemmtileg- ast svona að fara tvisvar í fram- lengingu á móti KR og vinna í bæði skiptin. Nú erum við bara einum leik frá því að komast í úrslit,“ sagði Sigurður Gunnar Þorsteins- son, kátur í leikslok. Sigurður var allt í öllu á báðum endum vallarins í lokin en þetta er þriðji leikurinn í úrslitakeppninni sem Keflavík vinnur í framlengingu og í þeim öllum hefði tap þýtt sumarfrí. „Við eigum framlengingarnar, það er bara svoleiðis,“ sagði Sig- urður Gunnar sem var með fyrir þremur árum þegar Keflavík sló út ÍR 3-2 eftir að hafa lent 0-2 undir. „Við vitum að eina liðið á Íslandi sem getur þetta er Kefla- vík. Við ætluðum bara að vinna þetta og það er það eina sem við trúum á. Við ætlum bara að vinna þessa seríu og það er það eina sem kemur til greina,“ sagði Sigurður Gunnar Þorsteinsson. Ef það var samt einhver einn maður sem ætlaði að koma sínum mönnum í oddaleikinn þá var það Magnús Þór Gunnarsson sem skoraði 29 stig í leiknum og þar af voru sjö þriggja stiga körfur sem voru flestar af svakalegri gerð- inni. Hörður Axel Vilhjálmsson kom líka mjög sterkur upp í lokin þegar Andrija Ciric, hetja síðasta leiks, var kominn með fimm villur. Annars var þetta sameinað átak sem landaði þessu hjá Keflavík. „Það er bara hluti af þessu að lenda í svona leikjum. Staðan er bara 2-2 og við vinnum á fimmtu- daginn. Þetta er smá aukakrókur en það er ekki hægt að kvarta yfir svona leikjum,“ sagði KR-ingurinn Brynjar Þór Björnsson sem skor- aði 16 af 20 stigum sínum í fyrri hálfleik en lenti í villuvandræðum í þeim síðari. „Þeir hittu úr svakalega stórum skotum og héldu sér inni í leiknum þannig. Það hefði síðan alveg mátt dæma villu í þriggja stiga skotinu undir lokin því þeir hafa pottþétt slegið ef ég þekki þá rétt. Það er samt ekki því að kenna að við töp- uðum því við klúðruðum þessu sjálfir,“ sagði Brynjar. „Þetta var smá kæruleysi hjá okkur undir lokin að missa þetta niður en við hættum að sækja og það kann ekki góðri lukku að stýra. Það er bara gaman að fá þetta í oddaleik og þetta verður stuð,“ sagði Brynjar. Pavel Ermolinskij virtist vera að klára leikinn í fjórða leikhlut- anum en það er vel þekkt að það þarf mikið átak til þess að senda Keflvíkinga í sumarfrí. Það hafa Keflvíkingar sýnt í þessari seríu og það sýndu þeir margoft þegar á móti blés í gær. Körfuboltinn er samt aðalsigur- vegarinn því tveir síðustu leikir hafa verið stórkostleg skemmt- un og menn geta varla beðið eftir oddaleiknum á fimmtudagskvöld- ið. Einn af þeim er Keflvíkingur- inn Hörður Axel Vilhjálmsson. „Nú er öll pressan á KR, þeir voru 2-0 yfir og vilja ekki tapa þessu 3-2. Ég get ekki beðið eftir þessum leik og vil helst fara að spila hann núna,“ sagði Hörður Axel. KR-ingar gleðjast örugglega að fá tvo daga til að fara yfir sinn leik en allir körfuboltaáhugamenn geta hins vegar varla beðið eftir rosalegu fimmtudagskvöldi. ooj@frettabladid.is Þetta geta bara Keflvíkingar Keflvíkingar tryggðu sér oddaleik á móti KR með því að vinna annan framlengda leikinn í röð. KR-ingar höfðu margoft náð góðu forskoti í Toyota-höllinni í gærkvöldi en Keflvíkingar voru ekkert á leiðinni í sumarfrí. Þeir komu endalaust til baka og ótrúleg þrautseigja þeirra skilaði afar sætum sigri að lokum. ÓTRÚLEGA SEIGIR Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í Keflavík hreinlega neita að gefast upp. Þeir unnu ótrúlegan sigur í gær sem þeir fögnuðu innilega. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.